GlycanAge heilsuástandsmælingin mælir bólgur á sameindastigi sem er vísir að núverandi heilsuástandi þínu og getur spáð fyrir um hvernig heilsan þín þróast.
Mælingin gefur upp ástand ónæmiskerfisins og bólguástand líkamans.
Eftir að hafa rannsakað um 80 þúsund einstaklinga á yfir 20 árum hafa vísindamenn komist að því að hægt er að greina líffræðilegan aldur með því að skoða glýkana (e. glycans) og hvernig lífstílsbreytingar geta haft áhrif á aldurinn á tiltölulega skömmum tíma. Fjöldinn allur af ritrýndum vísindagreinum hefur verið birtur um glýkana og má sjá brot af þeim hér fyrir neðan í heimildunum og eru linkar á greinarnar þar.
Hvað eru glýkanar?
Glýkanar (e. glycans) eru sykursameindir sem umlykja og breyta prótínum í líkamanum þínum. Þeir bregðast við lífstílsbreytingum og gefa til kynna ástand ónæmiskerfis þíns eins og áður hefur komið fram sem ákvarðar líffræðilegan aldur þinn.
Hvernig veistu að lífstílsbreytingar þínar eða mataræðisbreytingar eru að skila tilætluðum árangri eða hvort þær henta þér og þínum líkama?
GlycanAge er fyrsta prófið sem selt er til einstaklinga og gefur þér niðurstöður með líffræðilegum aldri þínum. Það er eina mælingin sem sannað hefur verið að hægt sé að mæla skammtíma lífstílsbreytingar og hvernig þær hafa áhrif á bólgur og líffræðilegan aldur.
Ítarleg greining er gerð á glýkönunum þínum, þú færð uppgefinn líffræðilegan aldur og gefin eru gildi á "Glycan Mature" sem eru slæmir (bólguhvetjandi) glýkanar, "Glycan Health" sem eru góðir glýkanar (bólguhamlandi) og síðan "Glycan Youth" sem einnig eru góðir glýkanar. Þessi gildi eru gefin upp og þau borin saman við annað fólk á þínum aldurshópi.
Hvernig virkar þetta próf?
1. Þú pantar próf á Heilsubarnum og færð sent eins og aðrar vörur.
2. Hérna er vídeó sem þú getur skoðað.
Í grófum dráttum þá:
- Hitarðu hendurnar aðeins með því að nudda þeim saman.
- Sótthreinsarðu svæði á puttanum sem þú ætlar að stinga í.
- Þrýstir plaststykki að húð og lítil ná skýst í fingur (eins og í blósykursmælingu)
- Setur nokkra blóðdropa á pappa sem fylgir með.
- Setur plástur á fingur.
- Pakkar inn eftir leiðbeiningum
3. Lætur Heilsubarinn vita að þú sért að fara að skila inn mælingu og ferð með hana í Even Labs, Faxafeni 14.
4. Heilsubarinn póstleggur hana og pakkinn brunar til GlycanAge þar sem hann fer beint á tilraunastofu og er blóðið greint þar.
- Eftir um 4-6 vikur koma niðurstöður á reikninginn þinn sem þú getur skoðað og í kjölfarið býðst þér að fá ítarlega ráðgjöf frá GlycanAge, ráðleggingar og yfirferð á niðurstöðunum.
Heimildir:
1. Immunoglobulin G glycome composition in transition from premenopause to postmenopause
2. Altered IgG glycosylation at COVID-19 diagnosis predicts disease severity
5. Multiomics Profiling Reveals Signatures of Dysmetabolism in Urban Populations in Central India
9. Plasma N-glycome shows continuous deterioration as the diagnosis of insulin resistance approaches
10. Extensive weight loss reduces glycan age by altering IgG N-glycosylation
12. N-glycosylation of immunoglobulin G predicts incident hypertension
13. Systems Glycobiology: Immunoglobulin G Glycans as Biomarkers and Functional
Effectors in Aging and Diseases
14. Immunoglobulin G glycome composition in transition from pre-menopause to menopause
19. Effects of estradiol on biological age measured using the glycan age index
20. Biomarkers of biological age as predictors of COVID-19 disease severity
22. Global variability of the human IgG glycome
26. Association of the IgG N-glycome with the course of kidney function in type 2 diabetes
27. Inflammatory bowel disease - glycomics perspective
28. Translational glycobiology: from bench to bedside
29. Comprehensive N-glycosylation analysis of immunoglobulin G from dried blood spots
31. Altered N-glycosylation profiles as potential biomarkers and drug targets in diabetes
33. Intense Physical Exercise Induces an Anti-inflammatory Change in IgG N-Glycosylation Profile
35. Breaking the Glyco-Code of HIV Persistence and Immunopathogenesis
38. The changes of immunoglobulin G N-glycosylation in blood lipids and dyslipidaemia
40. Deep molecular phenotypes link complex disorders and physiological insult to CpG methylation
41. Network inference from glycoproteomics data reveals new reactions in the IgG glycosylation pathway
43. Glycosylation of Immunoglobulin G Associates With Clinical Features of Inflammatory Bowel Diseases
46. Genome-Wide Association Study on Immunoglobulin G Glycosylation Patterns
47. The sweet spot for biologics: recent advances in characterization of biotherapeutic glycoproteins
48. IgG glycan patterns are associated with type 2 diabetes in independent European populations
49. IgG glycosylation and DNA methylation are interconnected with smoking
50. Increased central adiposity is associated with pro-inflammatory immunoglobulin G N-glycans
51. Immunoglobulin G glycosylation in aging and diseases
52. Ubiquitous Importance of Protein Glycosylation
53. The N-glycosylation of immunoglobulin G as a novel biomarker of Parkinson's disease
54. Connecting genetic risk to disease end points through the human blood plasma proteome
56. Effects of statins on the immunoglobulin G glycome
57. Estrogens regulate glycosylation of IgG in women and men