Zenz Organic vörurnar eru hágæða danskar umhverfisvænar hárvörur. Vörurnar eru svansmerktar, ofnæmisprófaðar og sérhannaðar fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir kemískum efnum sem oft er að finna í hárvörum.
Þessi tegund af hárnæringu hentar fyrir allar hárgerðir; viðkvæmt hár/hársvörð, börn, barnshafandi og aðra með ilmefnaofnæmi/óþol. Ofnæmisstimpill.
Hárnæringin er ilmefnalaus og nærir hárið með lífrænu aloe vera, lífrænu glycerine og lífrænni kaldpressaðri avókadó olíu.