Við erum svo heppin að hafa fengið til liðs við okkur hana Alettu Sørensen sem er reyndur, löggiltur næringarfræðingur með áherslu á hagnýta læknisfræðilega (e. functional medicine) nálgun sem býður nú upp á heilsuráðgjöf fyrir kúnnana okkar.
Aletta hefur einstakan skilning á líkamanum, heildræna hugsun, víðtæka menntun, gríðarlega reynslu og hefur hún náð miklum árangri með skjólstæðingum sínum.
Hún hefur sjálf lent í alvarlegum veikindum sem hún hefur þurft að vinna sig upp úr með hjálp næringar, lífstílsbreytinga og bætiefna. Þetta hefur gefið henni einstaka innsýn í hvað virkar og hvað ekki á eigin skinni og hvernig er hægt að vinna að því að komast að rót veikinda með hjálp hagnýtrar læknisfræðinálgunar.
Aletta hefur mörg sameiginleg skjólstæðing um allan heim og hefur sérhæft sig í flokkum veikindum þar sem kerfi líkamans eru í ólagi. Þá hefur hún einnig með fjölmörgum með minna flokkum heilsuvandamál þar sem markmiðið er að efla heilsuna og hámarka hana. Hún nýtir sér nýjustu klínískar rannsóknir og fjölbreyttar tækni og aðferðir til að hjálpa skjólstæðingum sínum að ná tökum á heilsumarkmiðum sínum.
Hún leggur mikið upp úr að efla heilsu með því að fræða og veita skjólstæðingum sínum verkfæri til að taka sjálft ábyrgð á heilsu sinni og þannig bætt lífsgæði.
Hún hefur einnig fengist við ráðgjöf á háþróuðum bætiefnalínum, að námskeiðum í samstarfi við þekkt erlendar stofnanir og sérfræðinga í greininni, ásamt því að fá umfjöllun í fjölda- og heilsutímaritum.
Hvort sem þú ert að leitast eftir að hámarka heilsuna eða vinna með flókin heilsufarsleg vandamál þá tekur Aletta á móti þér í ráðgjöf.
Hér koma ummæli frá skjólstæðingum Alettu erlendis frá:
“ Ég mæli hiklaust með Alettu vegna þess að hún hefur hjálpað mér að skilja mikilvægi heilbrigðs mataræðis og lífstíls. Hún er sérfræðingur sem hefur mikinn tíma í að afla sér þekkingar á sínu sviði. Með nákvæmni sinni, eftirtekt og greiningaraðferðum tókst henni að komast að orsök sem ég hef glímt við í mörg ár. Með hennar hjálp tókst mér að tileinka mér mun heilbrigðari lífsstíl. Hún er fær í að setja fram flóknar læknisfræðilegar upplýsingar á skýran og einfaldan hátt. Aðrir eiginleikar hennar sem mér finnst bera af eru hversu áreiðanleg hún er og fagleg. Ég mun alltaf leita til Alettu í framtíðinni með mín heilsuvandamál.“
- Adelina skjólstæðingur
“Aletta er mjög heildrænn næringarfræðingur! Hún gaf mér ekki næringaráætlun heldur einnig heilbrigðari lífstíl sem hefur bara aðstoðað mig með þunga eftir tíðahvörf! Ég mæli mikið með uppskriftunum hennar og næringaráætlun.”
- Celia skjólstæðingur
“Aletta breytti lífi mínu. Eftir að hafa verið með síþreytu og mikla heilaþoku í yfir 15 mánuði og vandamál í lungum eftir Covid og verið við það að gefast upp með einhverjum bata og ná fyrri heilsu fékk ég tækifæri til að vinna með Alettu. Eftir mjög ítarlega upphafsráðgjöf þá náði hún að finna rót vandamálanna hjá mér og koma með ítarlega næringar- og bætiefnaáætlun. Lífið mitt breyttist eftir þetta. Ég hafði aldrei haft þessa nálgun á mataræði en áætlunin innihélt að hreinum mat, mikið af próteinum og að forðast unninn mat. Með þessu einu og sér leið mér mun betur. Aletta hefur haldið áfram að vinna með mér og styðja mig í gegnum breytingar sem ég fann fyrir í vegferðinni. Ég er nú orðin 85% af því sem ég var áður og er farin að æfa eins og áður sem er yndislegt. Nú hef ég verkfærin og þekkingu til að halda áfram á þessari vegferð. Ég hefði aldrei trúað að þetta væri hægt fyrir 9 mánuði síðan. Ég er svo þakklát fyrir hjálpina og þessa öflugu þekkingu sem Aletta hefur gefið mér. Þekking hennar er einstök, ég hef lært svo mikið á því að vinna með henni. Ég myndi mæla með henni við hvern sem er.
- Ebony skjólstæðingur
„Ég hafði verið með krónísk einkenni þreytu og öndunarfæravandamála, ásamt öðrum vandamálum yfir 14 mánuði þegar ég hitti Alettu fyrst. Öll einkennin eftir að ég fékk Covid-19. Ég eyddi 14 mánuði í að ná bata án stuðningsmanna. Ég prófaði fjöldann allan af vítamínum og lífstílsbreytingum án nokkurs bata. Aletta kom eins og ferskur andblær. Ég fór í ítarlegt viðtal til hennar og sagði henni heilsufarssöguna mína. Hún fann strax lykilatriði sem við yrðum að tækla til að líkaminn minn fengi tækifæri í að lækna sig. Það hefur enginn hlustað jafn vel á mig og skilið mig alla mína ævi. Hún hefði ekki getað haft meira rétt fyrir sér í þeim skrefum sem við tókum næst með næringu og bætiefnum því eftir 5 vikur fann ég strax ótrúlegan árangur. Ég hef einnig lært svo mikið af henni um næringu, þekking hennar er einstök. Takk Aletta!!”
- Sara skjólstæðingur
Athugaðu að ráðgjöfin fer fram á ensku og í símaviðtali eða netviðtali . Ef enskan er vandamál getum við einnig skoðað stuðning við þýðingu. Fyrsti tíminn er einn og hálfur tími þar sem farið er í ítarlega heilsufarssögu og síðan kemur Aletta með ráðleggingum í formi næringar, lífsstíls, og/eða bætiefna eftir því sem við á.
Fyrsti tími í ráðgjöf er einn og hálfur tími og kemur Aletta svo með ítarlegum ráðleggingum eftir því, næringar, lífstíls og/eða bætiefnatengdar eftir því sem við á.
Stundum bendir hún á bætiefni sem við eigum ekki til en við erum í þeirri aðstöðu að geta sérpantað bætiefni eftir þörfum.