Þessi litla stærð af Brain Octane olíunni frægu frá Bulletproof er hugsuð fyrir þá sem vilja prófa olíuna og fyrir þá sem vilja taka hana með sér, t.d. í vinnuna eða í ferðalagið. Brain Octane olían frá Bulletproof er 100% hrein C8 olía sem þýðir að hún gefur frábæra ketóna orku og gerir það betur hefðbundnar MCT olíur. Bulletproof eru þekktir fyrir C8 olíuna sína sem er eitt af innihaldsefnunum í Bulletproof kaffi. Olían er talin gefa heilanum orkuskot og skýra hugsun. Hún umbreytist hratt í ketóna orku sem gefur líkamanum orku og talið hjálpa við matar- og sykurlanganir. Olían er einnig talin hjálpa til við orkuskipti sem getur hjálpað við fitubrennslu. Olíuna má t.d. nota í Bulletproof kaffi, hella yfir salat, grænmeti eða steik, eða blanda í hristinginn þinn.
Athugið að fyrir þá sem eru ekki vanir að taka inn MCT olíur, þá er gott að byrja rólega til að það endi ekki með klósetthlaupum... Gott er að byrja á einni teskeið og vinna sig síðan upp í hærra magn ef þú þolir hana vel.
Innihaldslýsing:
Serving size: 1 Tbsp
Servings Per Container: about 6
Amount Per Serving | % Daily Value* | ||
---|---|---|---|
Calories 130 | |||
Total Fat 14g | 18% | ||
Saturated Fat 14g | 70% | ||
Trans Fat 0g | |||
Caprylic Acid Triglycerides 14g | ** |
* Percent Daily Values (DV) are based on a 2,000 calorie diet.
** Daily Value not established.