Þetta hreinsiefnis þykkni er náttúrulegt og er samkvæmt framleiðanda og óháðri tilraunastofu talið henta vel við þrif á myglugróum á yfirborði eins og gólfi, húsgögnum, skóm, bíl, veggjum o.fl. Efnið virkar við snertingu þannig að það hreinsar það yfirborð sem það snertir.
Þykknið þarf að þynna og nota í úðabrúsa, þínum eigin eða EC3 spreybrúsanum. Hægt verður að leigja spreytæki fljótlega á Heilsubarnum, hafið endilega samband ef þið hafið áhuga.
Brúsinn er 473ml og blandast í 3.3 lítra af vatni eða skipt niður í minni einingar.
Hérna fyrir neðan er samanburðartafla sem sýnir hvernig spreyið virkar miðað við önnur efni samkvæmt framleiðandanum:
Athugið að spreyinu er ekki ætlað að þrífa burtu myglubletti.
Þetta sprey er hluti af mygluprotocol læknisins Dr. Don Dennis fyrir þá sem eru með mikil vandamál í ennis-og kinnholum og með önnur umhverfisveikinda tengd einkenni. Spreyjið og EC3 kertið er talið henta vel saman til að hreinsa vel heimili eða bílinn.
Hristið vel fyrir notkun.
Innihaldslýsing:
Active Ingredients:Proprietary natural botanical blend of citrus seed extracts.Inactive Ingredients:Distilled water, Vegetable glycerin