ENDURHEIMT OG BATI - Lungu og öndunarvegur
Designs for Health
Immunitone Plus™ | Jurta- o...
7.390 kr
Immunitone Plus™ er jurta- og sveppaformúla fyrir ónæmiskerfið.
Hún inniheldur jurtir og sveppi sem hjálpa ónæmiskerfinu að bregðast eðlilega við hugsanlegum ógnum. Staðlaðar jurtir eru notaðar í formúlunni til að tryggja ákjósanlegt magn af virkustu innihaldsefnunum.
Jurtirnar í Immunitone Plus™ styðja við jafnvægi cýtókína, sem eru mikilvæg stýriprótein ónæmisfruma. Echinacea og Andrographis stuðla að heilbrigðri bólgusvörun. Astragalus, grænt te þykkni og lækningasveppir, ásamt beta-glucans, styðja við ónæmissvörun.
Elderberry hjálpar til við að styðja andoxunarvirkni líkamans. Að auki stuðlar Arabinogalactan (sem ImmunEnhancer®) að eðlilegum örverufjölbreytileika í þörmum, sem er einnig mikilvægt fyrir heilsu ónæmiskerfisins.
Fyrir hverja:Þessi vara er ætluð fullorðnum sem vilja veita ónæmiskerfi sínu alhliða stuðning daglega eða á tímum þar sem þörf er á auknum stuðningi við eðlilega ónæmisvirkni. Hentar þeim sem vilja styðja við jafnvægi í ónæmiskerfinu, heilbrigða bólgusvörun og eðlilega starfsemi meltingarvegarins sem tengist ónæmisheilsu
Nutramedix
Elderberry
3.440 kr
Illiberin (e. Eldeberry) frá Nutramedix er fullt af andoxunarefnum og vítamínum sem geta styrkt ónæmiskerfið þitt.
Ásamt því að hafa verið notað af forngrikkjum og rómverjum fyrir heilsubætandi eiginleika sína, geta bæði berin og blómin í ylliberjum (e.eldeberry) stuðlað að ónæmisstyrkinguᶧ.
Kostir Nutramedix’s illiberjanna frá Nutramedix eru auðvelt frásog sem gerir það að öflugu illiberja bætiefni.
Nutrined
NAC nefsprey
7.420 kr
NAC er talið vera andoxunarefni og slímeyðandi efni.
NAC notkun í nefspreyi hefur verið rannsökuð fyrir möguleika þess til að styðja við öndunarheilbrigði, nánar tiltekið til að draga úr áhrifum eiturefna í umhverfinu, þar með talið myglu og sveppaeiturs.
Nef og ennis- og kinnholur geta verið geymsla þar sem mygla er geymd í líffilmusamfélögum. Líffilmur geta leyft langvarandi þrávirkni sveppa í nefi og skútum og gert meðferðir erfiðari.
NAC í nefspreyi er notað til að takast á við:
Líffilmumyndun í nefi og skútum:
NAC er taliðo hafa tilhneigingu til að brjóta niður utanfrumufylki líffilma sem gæti aukið virkni og árangur með sýklalyfjum.
Vitað er að NAC virkar gegn líffilmum með því að trufla líffilmur og draga úr viðloðun örvera við yfirborð.
Öndunarfæraeinkenni og ofnæmi:
NAC er talið hjálpa við ofnæmiskvef, ásamt á sárgræðandi áhrifum á nefslímhúð.
MARCoNS (margfaldir sýklalyfjaþolnir kóagúlasa-neikvæðir stafýlókokkar):
MARCoNS er hugtak sem notað er til að lýsa stafýlókokkum sem eru sýklalyfjaónæmir og geta komið sér fyrir í nefholum. Þeir mynda oft líffilmusamfélög og framleiða eiturefni.
MARCoNS getur stuðlað að langvinnri skútabólgu og krefst margþættrar meðferðar.N-asetýlcystein í nefi er nú metið sem viðbótarmeðferð í MARCoNS.
Notkun á spreyinu er talin:
Örugg
Áhrifarík
Engar aukaverkanir
Engin varnarorð
Bæði fyrir fullorðna og börn
Buteyko Clinic
Myotape | Munnplástrar fyri...
4.490 kr
Myotape plásturinn umlykur munninn með gat fyrir varir og er hannaður til að færa varir saman á öruggan máta til þess að stuðla að neföndun.
Hvernig veistu hvort þú sofir með opinn munninn?
Algeng einkenni þess að sofa með opinn munninn eru:
Að vakna þurr í munninum
Andremma
Að vakna með særindi í hálsi
Morgunhöfuðverkur
Af hverju í ósköpunum ætti ég að plástra á mér munninn?
Eftirfarandi er mögulegur ávinningur af því að plástra munninn og stuðla að neföndun í staðinn fyrir munnöndun:
Draga úr munnhrotum:
Við vitum að hrotur minnka gæði svefns þíns og makans þíns. Það að anda með opinn munninn getur ýkt hrotur þar sem öndunarvegurinn verður þurr og þröngur. Auka rúmmálsflæðið sem verður við oföndun með munni býr til hringiðu í nefi, munni og hálsi og ýtir undir hrotur. Með því að auka grunna, rólega neföndun geturðu dregið úr einkennum hrota og kæfisvefns og farið í slökunarástand.
Bæta kæfisvefn og styðja CPAP (kæfisvefnsvélar)
Kæfisvefn er ekki þæginlegt ástand og truflar svefn, ásamt því að geta valdið einkennum á borð við kvíða, þunglyndi, hjartavandamálum og háþrýstingi. Munnöndun er einn þáttur kæfisvefns. Rannsóknir hafa sýnt að kæfisvefnsvélar virka ekki sem skyldi vegna munnöndunar og fer þá loftið fram hjá munninum í stað þess að komast í öndunarveginn. Með því að nota neföndun þá nýtisti kæfisvefnsvélin þín betur.
Hjálpa við einbeitingu, bæta svefngæði og minnka þreytu:
Þegar við verðum fyrir svefntruflunum, verður allt erfiðara... Þú vaknar upp pirruð/pirraður, átt erfiðara með einbeitingu, framleiðnin minnkar og stressið eykst. Hæga, djúpa öndunin sem þú framkvæmir þegar þú andar með nefinu hjálpar nægu súrefni að komast í heilann þannig að þú hugsir skýrar. Það virkjar einnig parasympatíska taugakerfið og kallar þannig fram slökun.
Draga úr astma einkennum
Astma, nefslímubólga og bólgur haldast í hendur og er það þess vegna sem svo margir sem eiga við öndunarerfiðleika að glíma eru með stíflur í nefi. Það skapar vítahring af stífluðu nefi, pirringi í öndunarvegi, stífluðu nefi og ennþá meiri munnöndun. Jafnvel þótt þú finnir ekki fyrir því þá eru gæði svefnsins þíns verri ef þú ert með stíflað nef vegna ofnæmis, astma eða nefslímubólgu þá ertu tvisvar sinnum líklegri til að upplifa meðal til alvarlegra svefntruflana vegna þessa. Ef þú ert með astma þá getur það að skipta í neföndun úr munnöndun bætt lífsgæði til muna. Margir finna fyrir um helmingi minni einkenna eftir að hafa skipt.
Bæta munn- og tannheilsu:
Sýnt hefur verið fram á að munnöndun valdi tannskemmdum, tannholdssjúkdómum og andremmu. Það er mjög auðvelt að vita hvort þú hafir sofið með munninn opinn eða lokaðan, því þú vaknar með þurran munn og vont bragð í munninum ef þú hefur sofið með munninn opinn og notað munnöndun. Munnvatn er mjög mikilvægt fyrir góða meltingu og hjálpar að halda munninum rökum, hreinum og hlutlausu sýrustigi.
Draga úr kvíða:
Neföndun virkar eins og áður hefur komið fram parasympatíska taugakerfið sem er frábær leið til að minnka einkenni kvíða. Það leiðréttir einnig oföndun sem lækkar koltvísýring í blóði (sem er þekkt kveikja á kvíðaköstum)
Auka íþróttaárangur og þrek:
Þegar þú æfir þá er rétt öndun lykill að góðum árangri og þoli. Þegar þú skiptir í neföndun þá stendurðu sjaldnar á öndinni, færð meiri kjarnastyrk og getur dregið úr meiðslum. Þú færð einnig aukið súrefni til vöðva og getur dregið úr áreynsluastma.
Hvernig virkar plásturinn og hvernig er hann ólíkur teipum sem eru notuð til að loka munninum?
Teygjan í plástrinum gefur létta en stöðuga áminningu um að halda vörum saman sem er ólíkt teipum sem halda munninum alveg saman. Plásturinn er hugsaður sem æfingartæki í að halda munni lokuðum og anda með nefinu. Þar sem hægt er að opna munninn og tala eða ef eitthvað óhapp kemur upp þá er það mun öruggara en að teipa munninn alveg saman.
Talið er að það taki um 60 til 90 daga til að breyta venjum og er því mælt með að nota plásturinn í svo marga daga (að sjálfsögðu með að skipta um á hverjum degi).
Athugaðu að velja skegg plásturinn ef þú ert með skegg. Húðin þarf að vera hrein og ekki nýkremuð, annars haldast plástrarnir ekki á.
Mismunandi stærðir:
Athugið að það hentar flestum fullorðnum að taka large plástur.
Small: Aldur 4-15 ára
Medium: 16 ára og eldri (þeir sem eru með minni munn). Gatið er 3.7cm og það á að teygja plásturinn 30% sem endar í 4.8cm.
Large: 16 ára og eldri. Gatið eru 4cm sem fer í 5,2cm með strekkingu fyrir þá sem vilja mæla.
Quicksilver Scientific
Lípósómal C vítamín í gleri...
5.990 kr
Lípósómal C-vítamín getur:
Boðið upp á sterka andoxunarvörn
Náð háum nýtanlegum skammti
Stuðlað að kollagenmyndun og vefjaviðgerð
Stutt ónæmiskerfið
Frásog fituefna C-vítamíns byrjar þegar í munni þökk sé sérhæfðu fitukerfi (lípósómum) sem gerir því kleift að frásogast beint í frumurnar þar sem þess er þörf.
Sem andoxunarefni hlutleysir C-vítamín sindurefni í líkamanum og verndar vefi gegn oxunarálagi. C-vítamín stuðlar einnig að myndun kollagens, bandvefsins sem styður slagæðaveggi, húð, bein og tennur, styður við ónæmiskerfið og hjálpar til við að endurnýja önnur andoxunarefni, þar á meðal E-vítamín.Frásog hefðbundins C-vítamíns minnkar hratt þegar skammturinn stækkar og aðeins lítið magn kemst inn í frumurnar þínar þar sem þess er mest þörf.Quicksilver Scientific sameinar kraft C-vítamíns af lyfjafræðilegum gæðum og sérstakt fitukerfi (lípósóm). Þau nanó-hylja C-vítamín sem gerir því kleift að frásogast beint inn í frumur líkamans.
Quicksilver Scientific
Quinton saltvatns nefúði
4.490 kr
Quinton Daily Nasal Spray er öflug og náttúruleg lausn sem hjálpar til við að halda öndunarvegum hreinum og heilbrigðum á sama tíma og hún styður ónæmiskerfið.
Úðinn inniheldur steinefnaríkt Isotonic sjávarvatn frá Quinton sem veitir mikilvæg steinefni beint í nefgöngin, róar og gefur slímhúðinni raka og styður við nefheilsu.
Tilvalið til daglegrar notkunar – Quinton Daily Nasal Spray dregur úr ertingu af völdum frjókorna, mengunar og þurrs lofts, svo þú getir andað léttar og haldið þér hraustum allt árið um kring.
Af hverju að velja Quinton Daily Nasal Spray?
Náttúrulega steinefnaríkt – Inniheldur allt að 78 nauðsynleg steinefni og snefilefni úr hafinu.
Áhrifaríkt – Ísótónísk lausn sem líkist líkamsvökva og róar, gefur raka og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri slímhúð í nefi.
Byggir upp þol – Dregur ekki bara úr ertingu frá frjókornum og mengun heldur styrkir einnig nefgöngin og eykur þol gegn árstíðabundnum áskorunum.
Án rotvarnarefna & ofnæmisvalda – 100% náttúrulegt, kaldpressað og örsíað sjávarvatn án aukaefna.
Natroceutics
Quercetin bioactive
6.990 kr
Nýttu náttúrulegan kraft quercetins, flavínóða sem finnst í ávöxtum og grænmeti, með háþróaðri formúlu sem er hönnuð til að auka vellíðan þína.
Umbúðir eru úr gleri og endurvinnanlegum pappa.
Helstu kostir:
Styður heilbrigða bólgu- og ónæmissvörun.
Mótar histamínviðbrögð
Bætt með Quercefit™, með 20x bættu aðgengi quercetins.
Háþróuð samsetning sem sameinar Quercefit™ og Phytosome™ afhendingartækni til að tryggja hámarks frásog og viðvarandi virkni í allt að 12 klukkustundir.
Designs for Health
NAC (N-Acetyl-L-Cysteine) 6...
6.350 kr
N-Acetyl-L-Cysteine (NAC) er asetýlerað form amínósýrunnar L-cysteins, sem er lykilforsendi fyrir myndun glútaþíons.
Glútaþíon er eitt mikilvægasta andoxunarefni líkamans sem hjálpar til við að hlutleysa sindurefna (frjálsra radikala) og vernda frumur gegn oxunarálagi.
Með því að auka magn glútaþíons, styður NAC við náttúrulega hreinsunarferla líkamans, sérstaklega í lifur og nýrum. Það getur einnig stutt við öndunarfærin, hugsanlega með því að draga úr seigju slíms og auðvelda þannig útthreinsun agna og baktería úr lungum.
NAC stuðlar að því að viðhalda frumuheilsu og er oft notað sem hluti af heildrænum stuðningi við ónæmiskerfið og almennan lífsþrótt.
Fyrir Hverja:Þetta bætiefni getur hentað öllum sem vilja styðja við glútaþíon framleiðslu, efla andoxunarvörn líkamans eða veita stuðning við öndunarfæri og náttúrulega afeitrun.
Seeking Health
Histamin Nutrients|Næringar...
9.790 kr
Of mikið histamín í líkamanum getur valdið einkennum eins og að roðna snöggt, nefrennsli, svefnvandamálum og/eða höfuðverkjum.
Þessi einkenni geta komið fram þegar hægist á ensímavirkni í histamine ferlinu. Þó að DAO sé aðalensímið sem brýtur niður matartengt histamín í meltingunni, þá taka önnur ensím einnig þátt.
Þessi blanda var hönnuð til að styðja við öll histamín tengdu ensímin, ekki bara DAO.
Blandan inniheldur sjö nauðsynleg næringar- og andoxunarefni sem styðja við histamín efnaskiptin í hverri frumu.
Óæskilegar aukaafurðir verða til þegar histamín er metabólliserað, eins og ammónía, vetnisperoxíð og acetaldehýð sem geta einnig valdið aukaverkunum og frumuskaða. Histamin Blok PLUS inniheldur einnig bætiefni sem styðja við niðurbrot á þessum efnum.
Hérna eru aðalinnihaldsefnin og tilgangur:
DAO: Inniheldur 5,000 HDU af einkaleyfisvernduðu DAO, aðalensímið sem brýtur niður histamín
Kopar: Styður við DAO ensímið SAMe: Styður við HNMT ensímið, sem er mikilvægt ensím sem styður við niðurbrot á histamíni Alpha Keto-Glutarate: Styður við niðurbrot á ammíníu Riboflavin: Styður við MAOA og MAOB ensímin sem vinna á aukaafurðum histamín niðurbrots.Sink og B3 Vítamín: Stuðningur við ALDH ensíma fjölskylduna sem hjálpar við að brjóta niður acetaldehýð.
Ráðlagður dagsskammtur:
2 hylki hvenær sem er yfir daginn. Þú getur prófað að taka 2 hylki fyrir svefninn, það getur hjálpað til við að sofna. Athugið að það er níasín í vörunni sem getur valdið níasín "flushi" sem er ekkert hættulegt en þá roðnarðu vel og finnur smá kláða. Ef þú ert færð svona (og vilt ekki) þá er um að gera að borða mat með bætiefnunum.
Athugið að þessi vara hentar EKKI vegan og grænmetisætum eða þeim sem eru með ofnæmi fyrir svínakjöti.