1. Skilmálar og notkunarskilyrði Heilsubarins
Síðast uppfært: 26.11.2025
Vinsamlega lestu eftirfarandi skilmála áður en þú verslar á heilsubarinn.is. Með því að nota síðuna staðfestir þú að þú hafir lesið og samþykkt þessa skilmála.
1. Um fyrirtækið
Heilsubarinn ehf.
Kt. 471021-0320
Sjafnarbrunnur 1, 113 Reykjavík
Netfang: heilsubarinn@heilsubarinn.is
Fyrirtækið starfar undir starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Heilsubarinn
2. Verð og pantanir
Öll verð á vefnum eru birt með VSK.
Heilsubarinn áskilur sér rétt til að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga, vöruskorts eða annarra mistaka. Við áskiljum okkur einnig rétt til að staðfesta pantanir símleiðis.
3. Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar og sendar með Dropp og/eða Górilla samkvæmt eftirfarandi verðskrá:
• Dropp – næsti afhendingarstaður: 990 kr. (1090 kr. utan höfuðborgarsvæðis)
• Frítt í Dropp við kaup fyrir 15.000 kr. eða meira
• Heimsending á höfuðborgarsvæðinu: 1590 kr. (1690 kr. á Suðurlandi)
• Samskip – utan höfuðborgarsvæðis: 1690 kr.
Ef vara er ekki til munum við hafa samband og bjóða aðra lausn eða endurgreiðslu.
Heilsubarinn ber ekki ábyrgð á tjóni eftir að pakki hefur verið póstlagður.
4. Skilaréttur og endurgreiðslur
Viðskiptavinir hafa 14 daga skilarétt frá móttöku. Varan skal vera:
• óopnuð
• í upprunalegum óskemmdum umbúðum
• með innsigli órofið ef við á
Skila þarf vöru gegn framvísun sölureiknings. Endurgreiðslur eru framkvæmdar á sama greiðslumáta og upphafleg kaup fóru fram.
5. Gölluð vara
Sé vara gölluð býður Heilsubarinn upp á nýja vöru eða fulla endurgreiðslu og greiðir allan sendingarkostnað.
Um önnur réttindi fer samkvæmt lögum um neytendakaup og fjarsölu.
6. Persónuvernd
Við vinnum með persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög og persónuverndarstefnu verslunarinnar.
Vinsamlega sjá Persónuverndarstefnu Heilsubarins fyrir nánari upplýsingar.
7. Vefkökur
Vefurinn notar kökur í þeim tilgangi að tryggja virkni, bæta notendaupplifun og birta viðeigandi auglýsingar.
Nánari upplýsingar eru í Kökustefnu Heilsubarins.
8. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
Rísi ágreiningur skal hann rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

