Karfa

  • Engar vörur í körfu

Magnesíum byltingin|Fyrir svefn og endurheimt

5.890 kr

Frír sendingarkostnaður ef verslað er fyrir meira en 15.000 kr.
- eða komdu í áskrift, sparaðu 15% og fáðu fría heimsendingu -
Kaupa í áskrift
Framleiðandi: Bioptimizers

Magnesíum er talið eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans. Það tekur þátt í yfir 600 mismunandi lífefnafræðilegum viðbrögðum líkamans [1]. Þessi blanda frá BiOptimizers er einstök blanda á markaðnum sökum þess að hún inniheldur 7 mismunandi tegundir af magnesíum ásamt B6 vítamíni og mangan fyrir hámarks áhrif.

Hvað gera þessar mismunandi tegundir af magnesíum: 

Magnesium Chelate:

Mikilvæg fyrir vöðvabyggingu, endurheimt og heilbrigði. 

Magnesium Citrate:

Hjálpar við áhrif ofþyngdar. 

Magnesium Bisglycinate

Oft notað til að minnka einkenni of mikillar magasýru, eins og við óþægindum í maga, bakflæði og brjóstsviða.

Magnesium Malate:

Margir telja að þetta form sé nýtanlegasta formið fyrir líkamann. Það finnst náttúrulega í ávöxtum. Er talið geta hjálpað við mígreni og króníska verki. 

Magnesium Aspartate:

Þetta form er talið hjálpa við tengingu heilans og vöðva, hjartslátt og sýru-basa jafnvægi í líkamanum. Einnig talið styðja við gott skap. Það er talið nauðsynlegt fyrir metabólisma á makróbískum næringar efnum (macronutrients), ásamt nýtingu steinefna, B, C og E-vítamína.

Magnesium Taurate:

Þetta form er talið best fyrir hjartað. 

Magnesium Orotate:

Talið hjálplegt fyrir hjartað en einnig talið besta formið fyrir bætingu á orkuskiptum líkamans. Þessir eiginleikar gera þetta form vinsælasta formið fyrir íþróttafólk sem eru að sækjast eftir aukinni endurheimt, orku og árangri. 

Hvenær er best að taka magnesíum?

Þegar þú tekur magnesíum á morgnana, þá styður það við heilavirkni og stress viðbragð yfir daginn. Ef þú tekur háa skammta á kvöldin, þá styður það slökun og getur hjálpað við svefn. Þess vegna er betra að dreifa inntökunni yfir daginn til að fá sem mest útúr því. Ef það er ekki hægt, þá tekurðu það bara þegar hentar. Best er að taka steinefna fæðubótarefni á tóman maga fyrir hámarskupptöku, en sumir finna fyrir magaóþægindum þegar þeir gera það og taka það þá með mat.

Líkaminn hefur ekki mikla hæfileika til að geyma mikið af magnesíum í líkamanum, þess vegna er mikilvægt að reyna að taka það á hverjum degi fyrir hámarks árangur.

Kostir magnesíums:

Hjartaheilsa:

Magnesíum er einstaklega mikilvægt fyrir hjarta- og æðaheilsu [2]. Magnesíum skortur virðist hafa neikvæð áhrif á eiginleika æða til að dragast saman, blóðstorknun og stress viðbrögð sem öll tengjast hjartanu. Aukin magnesíum inntaka til að leiðrétta skort virðist hjálpa til að bæta hjartaheilsu.  

Eiginleikar til að tækla stress og hjálpa við slökun:

Rannsókn sýndi fram á að inntaka á magnesíum fæðubótarefni hjálpaði til við að lækka stress hjá fólki sem var í magnesíum skorti [3]. Í annarri rannsókn var sýnt fram á að inntaka B6 vítamíns samhliða inntöku á magnesíum fæðubótarefni hjálpaði 40% meira en eingöngu inntaka á magnesíum við alvarlegu stressi. [4]

Skap, heila- og hugarheilsa:

Í einni rannsókn var 248mg af elemental magnesíum gefið og gefur rannsóknin til kynna að töluverð bæting á skapi hafi átt sér stað eftir 2 vikur [5]. Önnur rannsókn sýndi fram á að magnesíum fæðubótarefni hafi bætt skap eldra fólks með sykursýki 2. [6].

 

Æfingar og endurheimt

Inntaka magnesíums er talin bæta snerpu og styrk hjá íþróttafólki [13], mögulega með því að gera glúkósa orkuskiptin betri. Hún er einnig talin styðja við nauðsynlegt stress viðbragð við æfingum, minnka skemmdir í vöðvum og bæta æfingaendurheimt (400mg tekin daglega með morgunmat). [14] 

Svefngæði

Ein rannsókn sem 46 eldri einstaklingar með svefnvandamál tóku þátt í, sýndi fram á að inntaka 500mg af magnesíum daglega minnkaði endurgjöf þátttakenda á svefnvandamálum, tíma sem það tók að sofna og kortisól. Einstaklingarnir sem tóku inn magnesíum höfðu einnig hærri melatónín gildi í blóðvökva, sváfu dýpra og voru ólíklegri að vakna upp um miðja nótt. [15]

Sterkari bein

Magnesíum er þekkt fyrir að vera ein af byggingareiningum beinanna. [16] Magnesíumskortur getur ýtt undir beinþynningu með því að:

  • koma í veg fyrir eðlilega beinmyndun.
  • að valda vægum bólgum í líkama
  • að auka kortisól sem getur leitt til lækkunar í beinmassa.
  • lækka kalkkirtilshormón

Í klínískri rannsókn sem 73684 konur í tíðahvörfum tóku þátt í, kom fram að lág inntaka magnesíums virtist tengjast lægri beinþéttni í mjöðmum og í líkamanum öllum. Inntaka af magnesíum rétt yfir ráðlögðum dagsskammti virtist tengjast lægri tíðni af framhandleggs- og úlnliðsbrotum. [17]

 

Innihaldslýsing:

Ingredients per portion 2 capsules % RDA
Elemental magnesium (from 1830 mg
magnesium patented mix)
  • Magnesium chelate
  • Magnesium citrate
  • Magnesium bisglycinate
  • Magnesium malate
  • Magnesium oxide [Sucrosomial®]
  • Magnesium taurate
  • Magnesium orotate
  • Humic acid / Fulvic acid monoatomic blend
500 mg 133 %
Vitamin B6 (as pyridoxine HCl) 2 mg 143 %
Manganese (as citrate) 1 mg 50 %

RDA = standard recommended daily intake based on a daily intake of 2000 kcal.
* RDA unknown

Additional ingredients:
cellulose (capsule), Nu-Mag®, Nu-Flow®, Silica.

Sucrosomial® is a registered trademark of Alesco S.r.l.
Nu-FLOW® and Nu-MAG™ are registered trademarks of RIBUS, Inc.

Upplýsingum sem eru á síðunni er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar á lyfjum, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. 

Fræðigreinar og heimildir:

[1] https://journals.physiology.org/doi/full/10.1152/physrev.00012.2014

[2] https://openheart.bmj.com/content/5/2/e000775 

[3] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC5452159

[4] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC6298677

[5] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC5487054

[6] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/19271419

[7] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/19271419

[8] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/15319146

[9] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/1541384

[10] https://care.diabetesjournals.org/content/26/4/1147

[11] https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/10408398.2020.1790498

[12] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/26016859

[13] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC5622706

[14] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC6723322

[15] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC3703169

[16] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC3775240

[17] https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC3953885 

[18] https://www.ahajournals.org/doi/full/10.1161/hypertensionaha.116.07664 

Customer Reviews

Based on 41 reviews
90%
(37)
7%
(3)
0%
(0)
2%
(1)
0%
(0)
I
Ingi Hans Ágústsson
Magnesíum

Fann ekki mikinn mun á svefni en betur fyrir magann en svipa og annað Magnesíum sem ég hef verið að nota svo fanst mér þetta vera heldur of dirt

B
Bergsteinn Helgason
hef ekki undi nein einustu áhrif

hef ekki fundið nein áhrif enn

L
Linda Gunnarsdóttir
Magnesíum

Ekki komin mikil reynsla, en það sem er merkjanlegt er að sinadrátturinn í fótunum hefur minnkað sem er mjög gott. Einnig hefur svefninn lagast örlítið og hægðir örlítið, svo þetta er allt í rétta átt. Eftir tvær til þrjár vikur ætti ég að geta mælt með þessum töflum við fólk ef heldur áfram sem horfir.
Takk fyrir.

A
Anna Ósk Rafnsdóttir
Magnesíum

Ég veit ekki hvað mer finnst ym þessar pillur sef illa og er endalaust með fótapirring

S
Sigurður Pétursson
Betri svefn

Hef átt við fótapirring til fjölda ára en hef verið svo til laus við hann í þennan mánuð á meðan ég hef tekið þessar töflur. Held að það hafi komið tvær nætur en var hverja nótt áður. Ætla að halda áfram og taka annan mánuð.