NAD Regen, Háþróað bætiefni fyrir heilbrigða öldrun frá Biostack Labs

NAD Regen|Háþróað bætiefni fyrir heilbrigða öldrun

10,990 kr

NAD Regen|Háþróað bætiefni fyrir heilbrigða öldrun

10,990 kr

NAD Regen|Háþróað bætiefni fyrir heilbrigða öldrun

10,990 kr

Dagleg blanda með B3-vítamíni, kopar og jurtaþykkni í tveimur hylkjum á dag.

  • 126 mg níasín og 0,2 mg kopar í hverjum skammti
  • 2 hylki á dag, 60 hylki í glasi
  • Prófað fyrir þungmálmum af óháðum aðila

Níasín (B3-vítamín) stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum og að því að draga úr þreytu.

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • Með
    B3-vítamíni
  • 2 hylki
    á dag
  • 30 daga
    skammtur
  • Prófað fyrir þungmálmum
    af óháðum aðila

Umsagnir viðskiptavina

4,7

★★★★★

3 umsagnir

  • 52
  • 41
  • 30
  • 20
  • 10

Það sem viðskiptavinir segja

„Mjög áhrifaríkt.“Unnur Fanney Bjarnadóttir · Staðfest umsögn

Allar umsagnirnar eru neðar á síðunni.

Smá lífefnafræði

Hvað er NAD+?

Fyrir hverja?

  • Þá sem vilja daglega blöndu með níasíni (B3-vítamíni) í tveimur hylkjum
  • Þá sem taka GlyNAC+ og vilja para þau saman

NAD+ (nicotinamide adenine dinucleotide) er kóensím sem finnst í öllum frumum líkamans og tekur þátt í fjölmörgum efnahvörfum, meðal annars í orkuefnaskiptum.

Líkaminn myndar NAD+ meðal annars úr B3-vítamíni. Í NAD Regen er B3-vítamín á formi níasínamíðs, 126 mg í hverjum skammti.

Níasín (B3-vítamín) stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og að því að draga úr þreytu.

Næringargildi

Hvað er í hverjum skammti

Næringarupplýsingar

Skammtur 2 hylki · 30 skammtar

InnihaldÍ 2 hylkjum% NV*
Níasínsem níasínamíð og koparníasín126 mg788%
Koparsem koparníasín0,2 mg20%
NAD3®311 mg**
Resveratrol200 mg**
AstraGin®50 mg**
Spermidín5 mg**

*NV = næringarviðmiðunargildi · **NV ekki skilgreint

Innihaldsefni: NAD3® (wasabi-þykkni, theacrine, koparníasín), resveratrol, níasínamíð, AstraGin® (Astragalus membranaceus, Panax notoginseng), spermidín, hylkisskel (hypromellose), hrísgrjónamjöl, örkristallaður sellulósi.

Framleitt í verksmiðju sem einnig vinnur með mjólk, egg, soja, hveiti, jarðhnetur, trjáhnetur, fisk og skelfisk.

Notkun

Tvö hylki á dag

Mestu skiptir að taka hylkin reglulega, dag eftir dag.

  1. 1

    Taktu 2 hylki á dag með vatnsglasi. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt.

  2. 2

    Með morgunmat er auðveldast að muna eftir þeim.

  3. 3

    Gefðu henni tíma. Framleiðandinn mælir með 60 til 90 daga samfelldri notkun.

Gott að vita

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða tekur lyf skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar.

Fer vel saman

NAD Regen og GlyNAC+

Tvær vörur frá Biostack Labs.

GlyNAC+ inniheldur glýsín, NAC og kalsíum alfa-ketóglútarat ásamt seleni og mólýbdeni.

Fylgdu ráðlögðum skammti á hvoru glasi.

Frá Biostack Labs

Daglega: NAD Regen
5 daga, svo 2 daga hlé: GlyNAC+

Skoða GlyNAC+

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er NAD Regen?

Varan hentar meðal annars þeim sem vilja daglega blöndu með níasíni (B3-vítamíni) í tveimur hylkjum og þeim sem taka GlyNAC+ og vilja para þau saman.

Hvað er NAD+?

NAD+ (nicotinamide adenine dinucleotide) er kóensím sem finnst í öllum frumum líkamans og tekur þátt í fjölmörgum efnahvörfum, meðal annars í orkuefnaskiptum. Líkaminn myndar það meðal annars úr B3-vítamíni. Níasín, sem er B3-vítamín, stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum.

Inniheldur NAD Regen NAD+?

Nei. NAD Regen inniheldur ekki NAD+ sjálft. Í henni er meðal annars B3-vítamín á formi níasínamíðs.

Hver er munurinn á NAD Regen og NAD+ og NADH frá Vitality Pro?

Þetta eru ólíkar vörur. NAD Regen eru hylki með B3-vítamíni, kopar og jurtaþykkni, tvö hylki á dag. NAD+ og NADH frá Vitality Pro er duft sem inniheldur NAD+ og NADH, ein til tvær skeiðar á dag.

Hvenær dagsins er best að taka hana?

Við mælum með að taka hylkin með morgunmat, þá er auðveldast að muna eftir þeim.

Hversu lengi á ég að taka hana?

Framleiðandinn mælir með að taka NAD Regen samfleytt í 60 til 90 daga áður en þú metur hvernig hún hentar þér.

Hvað dugar glasið lengi?

Í glasinu eru 60 hylki, sem dugar í 30 daga miðað við tvö hylki á dag.

Er níasínamíð það sama og níasín?

Bæði eru form B3-vítamíns. Níasínamíð (nicotinamide) veldur almennt ekki roða í húð eins og nicotinic acid, annað form níasíns, getur gert.

Má taka hana með GlyNAC+?

Já. GlyNAC+ er líka frá Biostack Labs og innihaldsefnin eru ólík. Fylgdu ráðlögðum skammti á báðum glösum.

Úr hverju er hylkið og inniheldur varan ofnæmisvalda?

Hylkið er úr hypromellose, sem er unninn úr plöntutrefjum. Varan er framleidd í verksmiðju sem einnig vinnur með mjólk, egg, soja, hveiti, jarðhnetur, trjáhnetur, fisk og skelfisk.

Ég er á lyfjum, barnshafandi eða með barn á brjósti. Má ég taka hana?

Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú byrjar. Varan er ekki ætluð barnshafandi konum, konum með barn á brjósti eða börnum nema í samráði við lækni.