Grunnurinn að góðri heilsu byrjar með réttri næringu. Hér finnur þú dagleg vítamín, steinefni, ómega fitusýrur, próteín og hollan mat sem styðja líkamann á hverjum degi.
Dagleg næring er grunnurinn sem allt annað byggir á. Fjölvítamín tryggja breiðan grunn af nauðsynlegum næringarefnum, D-vítamín styður bein og ónæmiskerfi, B-vítamín styðja orku og taugakerfi, og steinefni eins og magnesíum, sink og selen gegna mikilvægu hlutverki í hundruðum líkamsferla.
Ómega 3 fitusýrur úr smáfiski eru eitt mikilvægasta bætiefnið sem hægt er að taka og styðja heila, hjarta og almennt heilbrigði. Á Heilsubarnum finnur þú öflugustu ómega 3 olíurnar á markaðnum frá Bare Biology, bæði fyrir fullorðna, börn og þungaðar konur.
Prótein og kollagen eru mikilvæg byggingarefni líkamans sem styðja vöðva, bein, húð og liði. Meltingarheilsa er líka hluti af grunninum — góðgerlar, forgerlar og meltingarensím hjálpa líkamanum að nýta næringuna úr fæðunni. Hér finnur þú allt sem þú þarft til að byggja sterkan grunn að góðri heilsu frá hágæða fagvörumerkjum.