ENDURHEIMT OG BATI - Lifur, hreinsun og útskilnaður
Lifrarstuðningur
Gallsölt
Bindiefni (e. binders)
Frárennsli og sogæðakerfið
Glutathione og forverar
BodyBio
Liposomal PC|Phosphatidylch...
frá 8.290 kr
Frábært fæðubótarefni fyrir heila og lifur. Þessi blanda inniheldur:
Phosphatidylcholine (PC) sem er nauðsynlegt fyrir gott minni.
Phosphatidylethanolamine (PE) sem er nauðsynlegt fyrir góða virkni hvatbera.
Phosphatidylinositol (PI) sem styður við heila og taugaboð.
Phosphatidylserine (PS) - nauðsynlegt fyrir minnið.
Skortur á PC í líkamanum er talið hafa áhrif á heila og hjarta sem aftur getur haft áhrif á minni, einbeitingu og hegðun.
Margir hafa verið að finna mun á sér í mygluveikindum með því að taka inn PC. Þetta PC er af mjög góðum gæðum og er liposomal og er því með meiri upptöku en önnur PC fæðubótarefni.
Horfa á vídeó um PC
Skammtastærðir: Athugið að þær eru mjög einstaklingsbundnar. Mælt er með að taka 2 perlur eða 1/2 tsk daglega til að byrja með. Ef þú finnur fyrir einkennum eins og þreytu getur verið gott að minnka skammtinn ennþá meira. Algengt er að fólk hækki skammtinn smám saman eins og það þolir.
Við hverju má búast og hvernig virkar olían? (samkvæmt framleiðanda)
Vika 0-2: Eins og með öll bætiefni eða nýja heilsurútínu, þá spila þættir eins og aldur, lífstíll og heilsa inní. Fljótlega eftir að hafa byrjað á olíunni, þá byrja fosfólípíða gildin í frumunum að aukast and með samfelldni í inntöku byrja frumuviðgerðir og endurnýjunar ferlar.
Vika 2-4: Á þessum tíma má búast fyrir að finna fyrir meiri skýrleika, orku og minni heilaþoku.
Vika 4 og lengur: Með tímanum getur þú tekið eftir meiri skerpu og skýrleika og almennt betri heilsu. Margir tala um meiri orku í gegnum daginn.
Designs for Health
LV-GB Complex™ | Stuðningur...
4.490 kr
LV-GB Complex™ er ítarleg blanda af næringarefnum og jurtum, hönnuð til að hámarka starfsemi lifrar og gallblöðru. Formúlan stuðlar að eðlilegu gallflæði sem er mikilvægt ferli fyrir úrvinnslu eiturefna. Lipotropísk efni eins og L-Methionine, Taurine og Inositol eru innifalin til að aðstoða við að fjarlægja fituinnihald úr lifrinni.
Mjólkurþistillinn er staðlaður í 80% silymarin og veitir stuðning við lifrarfrumur. Ox Bile og Artichoke auka meltingu fitu og þar með upptöku mikilvægra fituleysanlegra vítamína (A, D, E, K).
Fyrir hverja:Þessi formúla er kjörin fyrir einstaklinga sem þurfa að efla lifrar- eða gallblöðrustarfsemi, þá sem eiga erfitt með að melta feitan mat, eða upplifa loft eða uppþembu eftir máltíðir.
Natroceutics
Milk Thistle bioactive | Br...
5.490 kr
Milk Thistle bioactive er formúla sem byggð er á vísindum fyrir góða lifrarheilsu, efnaskiptaheilsu og almenna vellíðan.
Þessi háþróaða mjólkurþistils formúla sameinar breiðvirkt sílýmarín þykkni og Siliphos®, öflugt lífvirkt silýbínþykkni (mjólkurþistils þykkni) sem er aukið með Phytosome™ tækni. Þetta tryggir að 300% meira silybin berst inn í líkamann, með 400% meira sem berst til lifrarinnar, þar sem það er helst virkt í meira en 48 klukkustundir.
Umbúðir eru úr gleri og endurvinnanlegum pappa.
Helstu kostir:
Styður lifrarheilsu: Talið stuðla að góðri afeitrun og talið auka lifrarstarfsemi.
Talið auka efnaskiptavirkni: Hjálpar til við að bæta insúlínviðnám og styðja við heilbrigð efnaskipti.
Betri húðheilsa: Hjálpar til við að draga úr unglingabólum og stuðlar að heilbrigðara yfirbragði með bættum afeitrunarferlum.
Tilvalið fyrir alla sem leita að náttúrulegri en öflugri leið til að styðja við lifrarheilsu sína og almenna vellíðan.
Seeking Health
Gallsölt|Ox Bile |Fyrir mel...
4.490 kr
Hvað gera gallsölt?
Styðja við heilbrigt niðurbrot á fitu
Styður við heilbrigða meltingu
Viðheldur heilbrigðri orkuframleiðslu
Styður við upptöku næringarefna
Beyond Balance
Tox Ease Bind|Bindiefni
8.690 kr
TOX-EASE BIND™ er formúla sem er hönnuð til að bindast eiturefnum sem íþyngja líkamanum.Hörfræolíuduft inniheldur leysanlegar og óleysanlegar trefjar sem geta hjálpað til við að fjarlægja óæskilega málma. Sýnt hefur verið fram á að slímeiginleikar þess smyrja þarmaveggi á sama tíma og þeir veita róandi áhrif og hjálpa til við að fjarlægja úrgang. Margir "binderar" eiga það til að valda hægðatregðu en þetta duft hjálpar til við að koma hægðum í gegn.Forn Ayurvedic læknisfræði lítur á shilajit sem fjölkerfa aðlögunarefni með stjórnandi og styrkjandi hæfileika á sama tíma og það býður upp á verulega afeitrunar eiginleika. Rannsóknir hafa sýnt að það gæti haft einstaka hæfileika til að skila næringu inn í frumur á meðan það flytur´óæskileg efni eins og þungmálma út úr frumum í gegnum brotthvarfsferlana. Shilajit inniheldur hæsta styrk af ætu formi fulvínsýru. Fulvínsýra getur virkað sem klóbindiefni (e.chelate) en samt hefur verið sýnt fram á að hún innihaldi hátt í sextíu steinefni og snefilefni og er mikilvæg uppspretta steinefnasalta.Rannsóknir hafa sýnt að virk kol (e. activated charcoal) nota aðsogsferli til að styðja við brotthvarf yfir 4.000 tegunda eiturefna í líkamanum, þar á meðal þungmálma og sveppaeiturs. Rannsóknir leiddu í ljós að þótt virk kol geti klóað (e.chelate), dregur það ekki úr nauðsynlegum næringarefnum líkamans ef það er notað á réttan hátt (tekið frá fæðu, bætiefnum og lyfjum).Vegna hugsanlegra fitufleytandi eiginleika þess getur plöntusterólið, þekkt sem beta-sítósteról, komið í veg fyrir endurupptöku taugaeiturs sem ákveðnar myglutegundir geta gefið frá sér.
Þessi "binder" hentar vel með öðrum vörum frá Beyond Balance og Nutramedix til þess að ná endurheimt eftir veikindi eftir viðveru í rakaskemmdu húsnæði. Vörurnar eru sérstaklega hannaðar með flóknari veikindi í huga sem umhverfisveikindi geta verið.
Cellcore
Bio Toxin Binder|60 dagar
11.990 kr
BioToxin Binder er talinn ýta undir náttúrulega getu líkamans til að hreinsa sig. Hann veitir aukinn stuðning við örverur í þörmum sem hámarkar ónæmi og meltingarstarfsemi. Kolefnistækni sem notuð sem er talin styðja við frumuviðgerðir og aukna orkuframleiðslu.BioToxin Binder er tilvalið fyrsta skrefs hreinsunar bætiefni.Samsett með kolefnistækni"Carbon Technology" er sérblanda af "fulvinsýrum" og fjölsykrum sem eru taldar styðja við frumuviðgerðir og náttúrulega getu líkamans til að hreinsa sig. Með lágu pH hjálpar Carbon Technology einnig talið vernda innihaldsefni gegn magasýru í meltingunni, þannig að þau haldist ósnortinn þegar þau komast á æskilegan stað í líkamanum.
Cellcore
LymphActiv|Styður við sogæð...
7.990 kr
Rétt sogæðahreyfing er nauðsynleg til að koma á besta frárennslinu og styðja við náttúruleg afeitrunarferli líkamans.
Ólíkt hjarta- og æðakerfinu hefur sogæðakerfið ekki sína eigin dælu til að hjálpa til við að tæma vökva úr vefjum.LymphActiv býður upp á öfluga blöndu af átta jurtum til að styðja við náttúruleg afeitrunarferli líkamans og sogæðahreyfingar sem nauðsynlegar eru til að styðja við frárennsli ,þar á meðal astragalusrót (e. astragalus root), chuchuhuasi börk (Chuchuhuasi bark), rabbabararót (e. Rhubarb root), sauðasúru (e. Sheep sorrel), hálan álm (e. Slippery elm) og súrsópslauf (e. Souroup leaf).
Saman styðja þessar jurtir einnig heilbrigða nýrnahettu- og lifrarstarfsemi, ónæmi og andlegan skýrleika.
Skammtur og notkun:
Venjulegt: 1 hylki tvisvar á dag
Fyrir viðkvæma: 1 hylki á dag
Apex Energetics
Trizomal Glutathione|NAC+Li...
10.990 kr
Trizomal™ Glutathione er byltingarkennd formúla þar sem blandað er saman tveimur mismunandi tegundum af liposomal glutathione með N-acetyl-L-cysteine (NAC).
Formúlan er talin styðja líkamann á þrjá vegu til að auka og hámarka glutathione gildi:
Innanfrumu með S-acetyl L-glutathione
Innanfrumulífmyndun með NAC
Innan- og utanfrumu (kerfis stuðningur) með reduced glutathione (SAG)
Athugið að glerflaskan inniheldur 47 dagskammta.
Liposomal S-acetyl L-glutathione-ið í formúlunni gefur einnig tvöfalt lag (asetýlering+lípósóm) til að vernda glutathione sameindina sem gefur meira aðgengi innanfrumu.
Glútaþíón er nauðsynlegt líffræðilegt andoxunarefni og afeitrunarefnasamband sem er mikilvægt fyrir heilsuna og er virkt í öllum frumum og vefjum.
Glútaþíón virkar sem „meistara andoxunarefnið“ til að vinna gegn oxunarálagi og frumuskemmdum um allan líkamann. Glútaþíon gegnir sérstaklega mikilvægu hlutverki í lifrarheilbrigði og afeitrun, og í heilsu lungna og öndunarfæra.
Skortur á glútaþíóni getur stafað af öldrun, ófullnægjandi neyslu á amínósýrunni cysteini sem inniheldur brennistein í mataræði, eða vegna útsetningar fyrir skaðlegum efnum eins og sveppaeiturefnum (e. mycotoxins), lyfjum, áfengi og umhverfismengun.
Lágt glútaþíón magn er talið geta aukið hættuna á frumuskemmdum vegna sindurefna sem tengjast fjölmörgum heilsufarskvillum tengdum oxunarálagi og bólgu.Rannsóknir sýna að hægt er að hækka magn glutathione-s með bætiefnum eins og þessu. Erfitt er að ná því með glutathione sem er ekki liposomal því það brotnar hratt niður af magasýru, sem skerðir getu þess til að hækka glutathione magn í líkamanum.Liposomal glutathione er mjög stöðugt form glutahione-s sem þolir niðurbrot í maga með því að vera umlukið í feitu „lípósómi“ - hlífðarhjúp sem er búið til með fosfatidýlkólíni sem er unnið úr sólblómalesitíni sem er ekki erfðabreytt.
Liposome tækni veitir vernd gegn oxun og niðurbroti, gerir frásog í þörmum skilvirkara og eykur flutning glútaþíons til frumna og vefja. Nýleg rannsókn benti til þess að hámarkshækkun á glútaþíonmagni hafi náðst innan tveggja vikna eftir lípósómal glútaþíonuppbót hjá heilbrigðum fullorðnum sem tóku annað hvort 500 mg eða 1000 mg á dag.
Algengt er að þessi blanda sé notuð þegar verið er að ná endurheimt eftir umhverfisveikindi. Einnig er blandan mjög vinsæl erlendis sem "anti-aging" bætiefni.
Formúlan kemur í glerflösku.
Varan er glútenlaus og mjólkurlaus (prófað fyrir því)
47 skammtar eru í flöskunni ef tekinn er fullur skammtur.
Biostack Labs
GlyNAC+
7.690 kr
Virk innihaldsefni:- L-Glycine - 3000mg- N-Acetyl Cysteine (NAC) - 1200mg- Calcium Alpha Ketoglutarate - 300mg- Molybdenum (as Molybdenum Glycinate) – 50mcg - Selenium (as Selenomethionine) – 25mcg
Mælt er með að taka í 5 daga í einu og taka svo 2 daga í pásu.
Biostack Labs
Cell Shield|Fyrir frumurnar
9.990 kr
Cell Shield er hannað til að vernda og viðhalda heilsu hverrar frumu í líkamanum fyrir daglegu árásum sindurefna.
Blandan er hugsuð til að einfalda bætiefna inntökuna þína með því að sameina öflugustu andoxunarefnin í einni blöndu. Blandan inniheldur glútaþíon á mjög nýtanlegu og frásoganlegu formi (Setria ® L-Glutathione), ásamt CellG8 ® Liposomal Vitamin C, Curcumin C3 ® Complex og AstraGin ®.
Designs for Health
NAC (N-Acetyl-L-Cysteine) 6...
6.550 kr
N-Acetyl-L-Cysteine (NAC) er asetýlerað form amínósýrunnar L-cysteins, sem er lykilforsendi fyrir myndun glútaþíons.
Glútaþíon er eitt mikilvægasta andoxunarefni líkamans sem hjálpar til við að hlutleysa sindurefna (frjálsra radikala) og vernda frumur gegn oxunarálagi.
Með því að auka magn glútaþíons, styður NAC við náttúrulega hreinsunarferla líkamans, sérstaklega í lifur og nýrum. Það getur einnig stutt við öndunarfærin, hugsanlega með því að draga úr seigju slíms og auðvelda þannig útthreinsun agna og baktería úr lungum.
NAC stuðlar að því að viðhalda frumuheilsu og er oft notað sem hluti af heildrænum stuðningi við ónæmiskerfið og almennan lífsþrótt.
Fyrir Hverja:Þetta bætiefni getur hentað öllum sem vilja styðja við glútaþíon framleiðslu, efla andoxunarvörn líkamans eða veita stuðning við öndunarfæri og náttúrulega afeitrun.
Quicksilver Scientific
Liposomal Glutathione með s...
8.990 kr
Hjálpaðu til við að losa líkamann þinn við óæskileg efni og endurnæra hann með liposomal glutathione. Þetta glutathione frá Quicksilver er á mjög aðgengilegu og nýtanlegu formi fyrir líkamann og er það talið styðja við:
Heilbrigða öldrun
Heilbrigt ónæmiskerfi
Hreinsun á óæskilegum efnum
Andoxun
Orku framleiðslu
Glutathione er til staðar í nánast hverri frumu líkamans með hæsta styrk í lifur. Lifrin er stöðugt að vinna úr og fjarlægða eiturefni og þarf glutathione til að styðja við þessar hreinsunararaðgerðir.
Hvers vegna liposomal?
Það getur verið erfitt að fylla á glutathione með góðum árangri með hylkja afhendingarkerfi. Glutathione á duft formi brotnar auðveldlega niður í meltingarferlinu í einstaka amínósýruefni, glútamat, glýsín og cystein.
Með því að nota liposomal afhendingartækni er hægt að skila glutathione ósnortnu til frumna með litlum en stöðugum ögnum og hágæða hráefni.