ORKA - Fókus og einbeiting
Einbeiting og hugarstarfsemi
Magnesíum og taugakerfi
Kreatín
Sveppir fyrir heilann
Hvatberastuðningur
B-vítamín fyrir heilann
Designs for Health
Brain Vitale | Fyrir einbei...
10,750 kr
Brain Vitale™ er sérhönnuð formúla sem styður við eðlilega starfsemi heilans og hugræna virkni. Varan sameinar virk næringarefni sem gegna hlutverki í frumuorku, taugaheilbrigði og náttúrulegum varnarkerfum líkamans.
Formúlan inniheldur m.a. Acetyl-L-Carnitine, Citicoline, Ginkgo Biloba, Phosphatidylserine og kaffiberjaútdrátt (e. Coffeeberry extract) sem vinna saman að því að styðja við daglega andlega skerpu, einbeitingu og líðan.
Fyrir hvern er Brain Vitale™?
Hentar þeim sem vilja:
styðja eðlilega heilastarfsemi og minni
efla daglega einbeitingu og hugræna virkni
næra taugakerfið og frumuorku líkamans
styðja við jafnvægi við áreiti og andlegt úthald
halda góðri andlegri virkni í daglegu lífi og með hækkandi aldri
Designs for Health
CogniAid™ | Stuðningur við ...
6,990 kr
9,990 kr
CogniAid™ frá Designs for Health er jurtablanda sem styður við heilastarfsemi, minni og einbeitingu. Formúlan sameinar jurtir og plöntuútdrætti sem hafa lengi verið notaðir til stuðnings við andlega virkni og hugarorku.
Blandan inniheldur Bacopa Monnieri, Memophenol™ (Grape & Wild Blueberry Extract), NooGandha® Ashwagandha Extract, American Ginseng og Huperzine-A. Þessi virku næringarefni og jurtasambönd taka þátt í eðlilegri boðleið heilans og styðja við skýra hugsun, minni og jafnvægi í taugakerfi.
Grape og Blueberry útdrættir innihalda náttúruleg plöntuefni sem styðja við eðlilega frumuvörn. Bacopa og Ashwagandha hafa verið notaðar í Ayurvedískri nálgun til stuðnings einbeitingu, minni og daglegri hugrænni virkni.
CogniAid™ hentar þeim sem vilja styðja við einbeitingu, minni og andlega orku sem hluta af heilsusamlegum lífsstíl.
Fyrir hvern er varan?
• Fyrir þá sem vilja styðja minni og einbeitingu• Fyrir þá sem vinna hugrænt krefjandi starf eða nám• Fyrir einstaklinga sem vilja styðja ró og andlega skerpu• Fyrir þá sem sækjast eftir jurtamiðaðri heila- og vellíðunarblöndu
Vitality Pro
Magnesium Threonite
7,590 kr
Magnesíum threonite er eina viðbótarformið af magnesíum sem rannsakað er til að fara yfir blóðheilaþröskuldinn (e. blood brain barrier) sem gerir það sérstaklega gagnlegt fyrir heilaheilbrigði. Það er oft notað til að auka vitræna virkni, minni og einbeitingu og til að takast á við áhyggjur sem tengjast öldrun heilans og andlegan skýrleika.
Magnesium Threonite (750mg) í hverju hylki
Hver skammtur gefur 54mg af magnesíum innihaldi (7,2%)
90 hylki (30-45 daga skammtur)
Inniheldur engin erfðabreytt efni, gervilitarefni, rotvarnarefni eða bragðefni.
Prófað af þriðja aðila (tilraunastofu), allar niðurstöður birtar (sjá í myndum af vöru)
Hentar fyrir vegan
100% lífrænt niðurbrjótanlegar pakkningar
Framleiðendur mæla með að taka 2-3 hylki á dag.
Quicksilver Scientific
Liposomal Magtein í glerflösku
11,290 kr
Öflug magnesíumblanda fyrir hugann, skapið og svefninn.
Liposomal Magtein sameinar einstaka lípósómatækni Quicksilver með heilamiðaða magnesíum L-threonate (Magtein) og hágæða fosfatidýlkólíni (PC) – þekktu fosfólípíði sem styður við heilbrigðar frumuhimnur í heila og eðlilega boðefnaflutninga.
Af hverju Magtein® (magnesíum L-threonate)?
Vísindalega rannsakað innihaldsefni – Þróað út frá rannsóknum við MIT
Nær heilanum – Talið fara yfir blóð-heila þröskuldinn fyrir hámarks áhrif
Talið stuðla að betri minni, einbeitingu og námi – Eykur taugamótanleika (neural plasticity)
Hjálpar til við að róa streitu og styðja djúpan svefn – Stjórnar taugaboðefnum fyrir betra jafnvægi
Snjallari upptaka – Magtein + lípósómatækni tryggir frábæra upptöku og árangur
Thorne
Hágæða kreatín (monohydrate...
9,490 kr
Kreatín er amínósýra sem finnst aðallega í vöðvum og í heila. Það er náttúrulega framleitt í líkamanum úr öðrum amínósýrum. Kreatín er einnig að finna í matvælum eins og kjöti, eggjum og fiski.
Það gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðslu líkamans á frumuorku með því að hjálpa til við að búa til ATP, sameind sem þarf fyrir mikla hreyfingu, sem og til að veita orku til að dæla hjarta þínu og knýja heilann.Ávinningur af Creatine Monohydrate frá Thorne:
Vöðvaframmistaða: Stuðlar að líkamlegu þreki, krafti og aukinni vinnugetu vöðva
Magur líkamsmassi: Eykur styrk og stuðlar að mögrum líkamsmassa
Vitsmunir: Styður vitræna virkni og heilbrigða líkamssamsetningu, sérstaklega hjá öldruðum
Frumuorkuframleiðsla: Kreatín hjálpar frumum líkamans að búa til orku á skilvirkari hátt og gagnast þannig æfingagetu.
Forvarnir gegn meiðslum: Stuðlar að minni tíðni ofþornunar, vöðvakrampa og meiðslum á vöðvum, beinum, liðböndum, sinum og taugum
Næringarstuðningur: Fyrir einstaklinga sem hafa aukna mataræðisþörf, svo sem íþróttamenn, eða fyrir þá sem eru ekki að neyta nægjanlegrar matar sem inniheldur kreatín í venjulegu mataræði sínu.
Það sem aðgreinir Creatine Monohydrate frá Thorne frá öðrum Kreatínum:
NSF vottað fyrir Sport®
Auðvelt að blanda saman
Mjög rannsakað form
Litlaust, engin lykt og aukin leysni
Hver lota af NSF Certified for Sport® vöru er prófuð með tilliti til fullyrðinga á merkimiða og til að tryggja að meira en 200 efni sem eru bönnuð af mörgum helstu íþróttasamtökum séu ekki í vörunni.
Varan fæst einnig hjá Hreyfingu.
Nyttoteket
Creatine Monohydrate | Crea...
5,990 kr
Pristine Creatine, hreint kreatín mónóhýdrat
Pristine Creatine er 100% hreint kreatín mónóhýdrat, þróað og framleitt í Þýskalandi með áherslu á gæði, hreinleika og virkni. Auðleysanlegt, bragðlaust og lyktarlaust, án bragðefna, fylliefna eða annarra aukaefna.
Hvers vegna kreatín?
Kreatín finnst náttúrulega í líkamanum og gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu. Fullorðinn einstaklingur geymir um 80 til 130 grömm af kreatíni, og allt að 2% af þeim forða er nýttur daglega og þarf því að endurnýja. Líkaminn framleiðir hluta sjálfur og við fáum kreatín úr kjöti, en eldun getur eyðilagt stóran hluta þess og því þyrfti að borða mjög mikið magn til að viðhalda fullum forða.
Orka þegar þú þarft hana mest
Við ákafar eða sprengikraftsæfingar tæmist ATP-orkuforði líkamans á nokkrum sekúndum. Þar kemur kreatín til skjalanna. Með því að halda fosfókreatín gildum háum hjálpar kreatín líkamanum að endurnýja ATP hratt, svo þú getir afkastað meira, lengur og af fullum krafti.
Vísindalega staðfest virkni
Kreatín eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar, stuttar og ákafar æfingar. Dagleg inntaka kreatíns getur einnig eflt áhrif styrktarþjálfunar á vöðvastyrk hjá fullorðnum yfir 55 ára aldri. Þessi jákvæðu áhrif nást með 3 g daglegri inntöku af kreatíni.
Kreatín og heilinn
Heilafrumur eru meðal orkufrekustu fruma líkamans og nýta sömu ATP/fosfókreatín orkukerfi og vöðvar. Um það bil 5% af heildar kreatínforða líkamans er geymdur í heilanum. Rannsóknir á hlutverki kreatíns í heilastarfsemi eru í örum vexti og fylgjumst við vel með þeim og munum skrifa grein um það fljótlega.
Pristine Creatine er einföld, hrein og áhrifarík leið til að viðhalda kreatínforða líkamans í hámarki.
Bare Biology
High Flyer Kreatín (Mónóhýd...
6,490 kr
High Flyer Kreatín Mónóhýdrat setur frumurnar þínar á hraðhleðslu og hjálpar drífandi konum að virkja styrk, kraft og úthald, bæði í og utan líkamsræktarinnar.
Hver skammtur inniheldur 5 g af Creavitalis® kreatíni (mónóhýdrati), framleitt í Þýskalandi samkvæmt klínískum gæðastöðlum.
High Flyer hefur mildan, örlítið beiskan keim sem hverfur þegar því er blandað út í uppáhalds heitan eða kaldan drykk. Hentar grænmetisætum og grænkerum og er sérstaklega þróað fyrir konur.
Af hverju High Flyer:
5 g kreatín mónóhýdrat í hverjum skammti – hreint Creavitalis®, hannað fyrir konur
Hratt frásog, milt fyrir magann: ofurfínt, örmalað duft
Prófað af þriðja aðila: hver framleiðslulota er prófuð fyrir hreinleika og virkni (upplýsingar um niðurstöður á pokanum.
Þýsk gæðaframleiðsla – Creavitalis® frá Alzchem Trostberg GmbH
Hentar grænmetisætum og grænkerum
Tveggja mánaða skammtur: stöðugur kraftur, á hverjum degi
Engin fylliefni.
Bioptimizers
Sveppa Byltingin| Kollagen ...
9,990 kr
Blanda af fjórum öflugum sveppum og vatnsrofnu nauta og fiski kollageni sem gefur þér hámarks hugarkraft, heilbrigðari húð, liði og vöðva og styður við ónæmiskerfið.1 drykkur inniheldur 544g af hráum sveppum:
50:1 Lion's Mane
100:1 Chaga
100:1 Cordyceps
100:1 Reishi
Magn: 558g (30 skammtar)
Designs for Health
Mitochondrial NRG™ | Stuðni...
10,550 kr
Mitochondrial NRG™ er samvirk blanda af næringarefnum og jurtaefnum sem ætlað er að styðja við starfsemi hvatbera, sem framleiða meira en 90% af orku frumna (ATP).
Skilvirkir hvatberar geta stutt við eðlilegt orkustig, almenna vellíðan og heilbrigða líkamsamsetningu.
Formúlan veitir hvatberunum lykilnæringarefni sem eru nauðsynleg fyrir orkuferla líkamans. Þetta felur í sér Coenzyme Q10, R-lípósýru, L-karnitín (sem aðstoðar við að flytja fitu inn í hvatberana til orkuvinnslu) og D-ríbósa.
Einnig inniheldur blandan sértækar sýrur (eplasýru og bergsýru) sem eru þátttakendur í Krebs-ferlinum, sem er ein helsta orkuvinnsluleiðin í hvatberunum.
Virk B-vítamín styðja við mörg skref í orkuframleiðsluferlinu.
Resveratrol og curcumín eru jurtir sem styðja við heilsu hvatbera innan frumunnar og andoxunarvirkni, sem getur hjálpað til við að vinna gegn uppsöfnun frjálsra radíkala.
Fyrir Hverja:Mitochondrial NRG™ hentar öllum sem vilja styðja við eðlilega frumuorkuframleiðslu, heilaheilsu og stuðla að viðhaldi hvatbera með aldrinum.
Seeking Health
PQQ
6,590 kr
PQQ (Pyrroloquinoline Quinone) munnsogstöflur eru einstakt næringarefni í þægilegu töfluformi sem leysist upp í munni og veitir lífvirkt form PQQ.
PQQ er náttúrulegt efnasamband sem er þekkt fyrir andoxunarvirkni sína og er oft notað til að styðja almenna vellíðan og frumuheilbrigði. Það er venjulega tekið yfir daginn, til dæmis eftir hreyfingu eða á tímum þegar þörf er á auknum næringarstuðningi.
Hver munnsogstafla er hönnuð til að leysast upp í munni til að stuðla að góðu frásogi og er þægileg leið til að bæta PQQ inn í daglega rútínu. Sumir geta tekið eftir tímabundnum bláum lit í munni vegna eðlis efnisins, sem er saklaust og hægt er að draga úr með því að tyggja töfluna og kyngja henni strax í stað þess að leyfa henni að leysast alveg upp.
Mælt er með að taka PQQ yfir daginn og forðast notkun nálægt svefni.
Seeking Health
B vítamín blanda með virkum...
5,490 kr
Þessi B vítamín blanda frá Seeking Health inniheldur 8 tegundir af B vítamínum.
Fólatatið, B-12, ribóflavín og B6 eru á virku formi.
Blandan inniheldur einnig B vítamín samverkandi kólín til að styðja við metabólisma.
Virka formið af fólati, L-5-MTHF er sérstaklega hentugt til að styðja við þarfir taugakerfisins þar sem þetta er eina tegundin af fólati sem fer í gegnum heilaþröskuld í blóði (blood brain barrier).
Formið (methylcobalamin og adenosylcobalamin) á B-12 í þessari blöndu er mjög auðupptakanlegt.
Níasín er mikilvægt fyrir meltingu, húð, og taugar og er mikilvægt til að breyta mat í orku.
Thíamín (B1): er mikilvægt fyrir orkuskipti líkamans.
Ribóflavín ( B2): er mikilvægt fyrir heilbrigða orku, sterkt ónæmiskerfi, heilbrigt hár og heilbrigða húð og slímhimnur.
P-5-P og B6 er mikilvægt fyrir heilbrigða virkni yfir 100 ensíma, aðallega tengt prótín metabólisma.
Pantóþensýra (B5): aðstoðar hin B vítamínin í að umbreyta fæðu í nothæfa orku. Hún er líka nauðsynlegur hluti af eiginleika líkamans til að búa til fjölbreytt ensím.
Bíótín: styður heilbrigðan kolvetna metabólisma og er nauðsynlegt fyrir heilbrigt hár, heilbrigða húð og neglur.
Seeking Health
Methyl B12 with L-Methylfolate
4,390 kr
B-12 Vítamín með L-5-MTHF er fyrir alla þá sem vilja:
Styðja á náttúrulegan hátt við MTHFR stökkbreytingar.
Styðja gott skap og og góða orku.
B-12 vítamín er nauðsynlegt til þess að mynda heilbrigð rauð blóðkorn, fyrir orkuframleiðslu, stuðning við taugakerfið, heilavirkni og reglun hómócysteins.
Fólat á formi L-5-MTHF tekur einnig þátt í hómócystein metabólisma og styður metýlun og virkni taugakerfis.
Natroceutics
Activated B-Complex Advanced
5,490 kr
Activated B-Complex Advanced hefur verið framleitt fyrir þá sem eru að leita að ákjósanlegum dagskammti af metýleruðum B-vítamínum.
Blandan er bætt enn frekar með liposomal delivery tækni sem eykur frásog vítamínanna og veitir viðvarandi losun og lífvirkni. Þetta er mikilvægt atriði þar sem B-vítamín eins og B12 frásogast annað hvort illa eða önnur hverfa hratt í venjulegum B-vítamín blöndum.
Helstu eiginleikar Activated B-Complex Advanced:
Alhliða virkjuð B-vítamín blanda
Bætt með L-theanine.
Aukið frásog + lífvirkt
Liposomal afhendingartækni
1 hylki á dag
B-vítamín falla undir hóp, þar af 8 sem hvert um sig hefur sérstakt og mikilvægt hlutverk í heilsunni þar sem sameiginlegi hópurinn hefur margvíslegan ávinning. Ákveðnar aðstæður, lífsstílsþættir og aldur gætu þurft viðbótar B-vítamínstuðning.
Advanced B-Complex veitir ákjósanlegan og yfirgripsmikinn dagskammt með afhendingartækni sem styður við aukið frásog. Varan er sérstaklega gagnleg fyrir einstaklinga sem hafa skerta getu til að taka upp og umbrotna B-vítamín.