Bulletproof mct olía (Brain Octane C8 MCT olía) | Heilsubarinn

Bulletproof Brain Octane | C8 MCT olía úr kókos

2,790 kr

Bulletproof Brain Octane | C8 MCT olía úr kókos

2,790 kr

Bulletproof Brain Octane | C8 MCT...

Stærð

90ml 417ml 946ml
2,790 kr

Hrein C8 MCT olía frá Bulletproof, unnin eingöngu úr kókos.

  • 100% C8 (caprylic acid), engin blanda
  • Án pálmaolíu
  • Bragð- og lyktarlaus
  • 90 ml, 417 ml eða 946 ml

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • 100%
    C8 MCT
  • Aðeins úr
    kókos
  • Án
    pálmaolíu
  • Bragð-
    laus
Bulletproof Brain Octane C8 MCT olía

Bulletproof

Hrein C8 MCT olía

Brain Octane er 100% C8 MCT olía, unnin eingöngu úr kókos og án pálmaolíu. Engum öðrum olíum er blandað saman við hana.

Olían er bragð- og lyktarlaus og er eitt af innihaldsefnunum í Bulletproof kaffi. Hana má líka nota í þeytinga og salatsósur.

Fyrir hverja?

  • Þá sem búa til Bulletproof kaffi
  • Þá sem vilja bragðlausa olíu út í kaffi, þeytinga eða salatsósur
  • Þá sem vilja MCT olíu án pálmaolíu
  • Vegan

Umsagnir viðskiptavina

Það sem viðskiptavinir segja

Allar umsagnirnar eru neðar á síðunni.

„Algjörlega bragðlaus og er því hægt að nota hana í allt. Ég nota hana út í kaffibollann á morgnana.“Stella S. · Staðfest umsögn
„Frábær þjónusta, geggjuð olía í bulletproof kaffið.“Ingibjörg E. · Staðfest umsögn

Stærðir

Þrjár stærðir

90 ml

Til að prófa

Lítil flaska sem hentar vel til að prófa eða taka með í ferðalög.

417 ml

Algengasta stærðin

Fyrir þá sem nota olíuna daglega, til dæmis í morgunkaffið.

946 ml

Stærsta flaskan

Fyrir þá sem nota mikið af olíunni.

C8

Hvað er C8 MCT olía?

MCT stendur fyrir medium-chain triglycerides, eða meðallangar fitusýrukeðjur. Þær eru styttri en flestar fitusýrur í venjulegri matarolíu.

Fitusýrurnar eru nefndar eftir fjölda kolefnisatóma. C8 er caprylic acid, með átta kolefnisatóm. Í kókosolíu eru nokkrar tegundir, meðal annars C8, C10 og C12 (lauric acid).

Í Brain Octane er eingöngu C8, en margar aðrar MCT olíur eru blanda af C8 og C10.

Í eldhúsinu

Hvernig á að nota hana

Olían er bragð- og lyktarlaus og blandast vel í heita og kalda drykki. Algengast er að setja hana í kaffi, með smjöri eða ghee, og blanda í blandara. Þá verður kaffið froðukennt.

Hana má líka setja út í þeytinga, hella yfir salat eða grænmeti, eða nota í salatsósur.

Olían hentar ekki til steikingar við háan hita.

Notkun

Byrjaðu rólega

  1. 1

    Byrjaðu á einni teskeið á dag.

  2. 2

    Auktu magnið smám saman upp í eina matskeið ef þú þolir það vel.

  3. 3

    Blandaðu í kaffi, þeytinga eða salatsósur.

Gott að vita

Ef þú ert óvön eða óvanur MCT olíu getur of stór skammtur í byrjun valdið óþægindum í maga. Byrjaðu því á lítilli skeið.

Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi.

Meira frá Bulletproof

Frá sama framleiðanda

InnerFuel: bragðlaus trefjablanda út í drykki.

Bulletproof

Bandarískt fyrirtæki, þekktast fyrir Bulletproof kaffi með MCT olíu.

Skoða vörumerkið

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er Brain Octane C8 MCT olía?

Varan hentar meðal annars þeim sem búa til Bulletproof kaffi; þeim sem vilja bragðlausa olíu út í kaffi, þeytinga eða salatsósur; og þeim sem vilja MCT olíu án pálmaolíu. Hún er vegan.

Hvað er C8 MCT olía?

Olía sem inniheldur eingöngu caprylic acid (C8), meðallanga fitusýru úr kókos.

Úr hverju er hún unnin?

Eingöngu úr kókos, án pálmaolíu, samkvæmt framleiðanda.

Er bragð af henni?

Nei. Hún er bragð- og lyktarlaus.

Hvernig byrja ég?

Á einni teskeið á dag og síðan smám saman upp í eina matskeið. Of stór skammtur í byrjun getur valdið óþægindum í maga.

Má steikja upp úr henni?

Hún hentar ekki til steikingar við háan hita. Notaðu hana í drykki, þeytinga og salatsósur.

Hvaða stærðir eru til?

90 ml, 417 ml og 946 ml.

Hvernig bý ég til Bulletproof kaffi?

Settu uppáhellt kaffi, MCT olíu og smjör eða ghee í blandara og blandaðu í 20 til 30 sekúndur, þar til kaffið verður froðukennt.