Myotape, Munnplástrar fyrir neföndun frá Buteyko Clinic

Myotape | Munnplástrar fyrir neföndun

3.490 kr.

Myotape | Munnplástrar fyrir neföndun

3.490 kr.

Myotape | Munnplástrar fyrir neföndun

Stærð

Large Medium
3.490 kr.
  • Settur í kringum munninn, með opi í miðjunni
  • Mjúk bómull og milt lím fyrir viðkvæma húð
  • Large (yfir 52 mm) eða Medium (47 til 52 mm)
  • 30 plástrar í pakka

Frí sending yfir 20.000 kr

Fyrir hverja er Myotape?

  • Þá sem vilja anda með nefinu í svefniButeyko Clinic hannaði Myotape fyrir fullorðna sem vilja venja sig á að anda með nefinu frekar en munninum, samkvæmt framleiðanda.
  • Þá sem vilja ekki líma fyrir munninnPlásturinn er settur í kringum varirnar en ekki yfir þær. Í miðjunni er op.
  • Þá sem eru með viðkvæma húðMjúk bómull og milt lím sem er hannað fyrir viðkvæma húð, samkvæmt framleiðanda.
  • FullorðnaMyotape fæst í tveimur stærðum fyrir fullorðna, Large og Medium.

Hvernig virkar Myotape?

Myotape er settur í kringum munninn, á húðina ofan og neðan við varirnar. Plásturinn teygist og dregur varirnar mjúklega saman.

Í miðjunni er op, svo munnurinn er aldrei alveg lokaður. Það er hægt að opna munninn ef þarf, til dæmis til að tala eða fá sér vatnssopa, samkvæmt framleiðanda.

Buteyko Clinic kennir öndunaraðferð sem kennd er við lækninn Konstantin Buteyko. Í henni er lögð áhersla á að anda með nefinu.

Nánar: munurinn á Myotape og venjulegu límbandi

Venjulegt límband eða munnplástur er settur yfir varirnar og lokar munninum. Myotape lokar honum ekki, heldur liggur í kringum varirnar og heldur þeim saman. Opið í miðjunni gerir það að verkum að hægt er að anda frá sér um munninn, hósta eða hnerra ef þarf, samkvæmt framleiðanda.

Hvaða stærð?

Stærðin fer eftir breidd munnsins. Hún er mæld með reglustiku frá öðru munnviki að hinu, fyrir framan spegil.

Large

Munnbreidd yfir 52 mm. Hentar flestum körlum og um helmingi kvenna, samkvæmt framleiðanda.

Medium

Munnbreidd 47 til 52 mm. Fyrir minni andlit, samkvæmt framleiðanda.

Í hverjum pakka eru 30 plástrar, einn fyrir hverja nótt.

Þrjú skref fyrir svefninn

Bakið er tekið af plástrinum. Plásturinn er teygður um 20 til 30% og lagður í kringum munninn, á húðina ofan og neðan við varirnar. Þrýst er létt á hann svo hann festist.

Þeir sem eru með viðkvæma húð geta prófað lítinn bút á húðinni í nokkrar klukkustundir áður en plásturinn er notaður yfir nótt.

Hvað er í pakkanum?

30 plástrar · Large eða Medium

AtriðiUpplýsingar
Fjöldi30 plástrar
EfniMjúk bómull
LímMilt lím fyrir viðkvæma húð
StærðirLarge (munnbreidd yfir 52 mm), Medium (47 til 52 mm)

Samkvæmt framleiðanda.

Algengar spurningar

Hvernig virkar Myotape?

Plásturinn er settur í kringum munninn og dregur varirnar saman. Í miðjunni er op, svo munnurinn er aldrei alveg lokaður.

Hvaða stærð á ég að velja?

Large ef munnurinn er breiðari en 52 mm, sem á við flesta karla og um helming kvenna. Medium ef hann er 47 til 52 mm. Breiddin er mæld frá munnviki að munnviki, samkvæmt framleiðanda.

Úr hverju er plásturinn?

Mjúkri bómull og mildu lími sem er gert fyrir viðkvæma húð, samkvæmt framleiðanda.

Get ég hóstað eða fengið mér vatn með plásturinn á?

Já. Opið í miðjunni leyfir það, samkvæmt framleiðanda.

Get ég notað plásturinn ef ég er með skegg?

Myotape fyrir fullorðna hentar ekki þeim sem eru með skegg, samkvæmt framleiðanda.

Hvenær á ekki að nota plásturinn?

Ekki eftir neyslu áfengis eða vímuefna eða töku róandi lyfja, né þegar ógleði er til staðar eða hætta á uppköstum, samkvæmt framleiðanda.

Hvað eru margir plástrar í pakka?

30 plástrar, einn fyrir hverja nótt.

Ég er á lyfjum, barnshafandi eða með barn á brjósti. Má ég nota plásturinn?

Það er gott að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er. Plásturinn á ekki að nota eftir töku róandi lyfja, samkvæmt framleiðanda.

Myotape munnplástrar frá Buteyko Clinic

Í kringum munninn, ekki yfir hann

Myotape frá Buteyko Clinic, úr mjúkri bómull. 30 plástrar í pakka, Large eða Medium.

  • 5 stars: 17 (85%)
  • 4 stars: 1 (5%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 1 (5%)
  • 1 star: 1 (5%)
Ó
Óþekktur
Mæli með

Frábær vara

S
Stella Prelip
Munnplástur (sensitive)

Vissi ekki að þessi vara væri til en var bent á þetta til að bæta svefn og ég get klárlega mælt með!

M
Margrét Þóra Jónsdóttir
Mjög ánægð

Ég finn mun og ég sef betur. Er ekki að vakna á morgnanna með þurrk í muninum🥰

E
Eyrún Ólafsdóttir
Myotape plástur

Þessi plásturinn hjálpar mér að sofa betur, ég vakna mikið minna á nætur og ég verð hressari eftir svefninn. Ég er með væg kæfisvefn. Ég er mjög ánægð með vörurnar.

G
Guðríður Traustadóttir

Virka rosalega vel en það á það til að skilja eftir plástur eða lím í kringum munninn

E
Elísabet Axelsdóttir
Er búin að leita lengi að einhverju sem virkar gegn kæfisvefni

Er búin að nota plásturinn í ca hálfan mánuð og það er engin spurning að þetta virkar. Virðist ekki fara í öndunarstopp lengur !

S
Sigurveig Bjornsdottir

Plástrarnir eru að virka sem er ánægjuleg upplifun. Mun vissulega kaupa þá aftur

H
Hörður Ingi Jóhannsson
Minnplástur

Keypti munnplástur og er ekki sáttur með þessa vöru, plástur inn losnar af á nóttunni og er venjulega dottinn af um miðja nótt

S
Sólrún Sverrisdóttir
Bættur svefn

Þessir plástrar hafa bætt svefn minn til muna, hef notað þá á annað ár. Er með þröng nefgöng og farið í gegnum örmögnun en með plástrunum stýrist ég alveg í neföndun sem er róandi fyrir taugakerfið. Ég næ betur djúpsvefni, er ekki að vakna eins stífluð eða við munnþurrk. Hef prófað að hætta að nota þá en þá fer ég aftur í að anda með munninum vegna nefstíflu. Hef prófað að sofa með þá kvefuð og nefgöngin héldust betur opin. Einstaka sinnum pirrar hann mig en þá er lítið mál að kippa honum af. Hef prófað aðrar týpur en finnst kostur að hafa gat og geta vætt varir eða fengið mér vatnssopa. Væri til í að fá húðlituðu plástrana aftur í stað þeirra bláu.

Ó
Ó.M.
🤌

Virkar vel, er að kaupa þriðju pakkninguna. Situr þæginlega í kringum muninn og einfaldir í notkun. Passa bara að setja ekki of feitt krem á undan ;)

G
G.T.
Kæfisvefn

Ég er með kæfisvefn og á að fá tæki til að sofa með, sá þennann plástur auglýstan og ákvað að prófa, það sakar ekki. Ég var strax ánægð eftir 1 nóttina, svaf alla nóttina og var ekki til þreytt, var orkumeiri og makinn var mjög ánægð að heyra ekkert. Ég ákvað strax að þetta kæmi í staðin fyrir svefngrímuna og hávaðann og óþægindin sem fylgdi henni. Mæli hiklaust með þessum plástri þótt hann sé blár að lit. Takk fyrir að koma með þetta á markað.

M
M.Í.J.

Þetta virkadi fyrstu dagana en svo þegar lídur á get ég vel opnad munninn án mótstödu frá plástrinum.... Finn þad því ég vakna þurr í hálsi og munnurinn ekki eins ferskur og fyrstu dagana

S
S.R.M.
Minni hrotur

Virka mjög vel og miklu minna mál en ég hélt. Hafði áhyggjur af því að fá einhverja köfnunartilfinningu, en þar sem það er gat á plástrinum, þá voru þær áhyggjur óþarfar. Hrotur hafa minnkað til mikilla muna, sem maki minn er mjög ánægður með. :)

F
F.A.
Kom skemmtilega á óvart

Ákvað af rælni að kaupa og prufa plástrana. Vakna iðulega þurr í munni, sár í hálsi og með stíflað nef og hrýt víst eins og drukkinn sjóari! Kom skemmtilega á óvart hvað það tók stuttan tíma að venjast plástrimum og finn merkjanlegan mun á þessum einkennum sem ég fann fyrir àður. Hafði áhyggjur af húðinni þar sem plásturinn liggur en þær voru óþarfar, merki engin neikvæð áhrif.
Það eina sem ég vildi óska væri að plásturinn fengist í húðlit, væri minna áberandi 😉

R
R.G.
Virkar virkilega vel

Uppfyllir þær væntingar sem ég hafði og get mælt með því að prófa þessa lausn.

S
S.I.Á.
Góðir plástrar

Var mjög efins í byrjun en þetta mjög góðir plástrar, virka samt ekki þegar maður er með mikið skegg en ef það er bara stytt skeggið þá er þetta algjötlega málið, svefninn miklu betri 👌

B
B.Þ.

Frábær plástur sem ég mæli algjörlega með. Hélt að það yrði svo erfitt að anda eingöngu með nefinu en það kom skemmtilega á óvart hvað það var í raun auðvelt. Og svo eitt enn...prófið þó ekki sé nema fyrir lúkkið...ef þú átt fúlan dag settu þá á þig plástur og leiðindin fjúka út í veður og vind...og ég skora jafvel á þig að taka selfí og byrta hana...þú gleður þá fleiri en bara þig.Takk og endilega kaupa plástur ekki seinna en í gær.

C
Customer
Betri svefn og virkari neföndun

Hef lengi verið í vandræðum með að nef stíflast auðveldlega og vaknaði oftast með þurran munninn eftir að hafa sofið alla nóttina með hann opinn. Hafði heyrt af því að fólka væri að nota teyp eða plástra til líma fyrr munn á nóttinni. Leyst reyndar ekki alveg á þær aðferðir þar sem nefið á mér var oft hálf stílfað á nótinni! En eftir að hafa séð My-o-tape plástarana hjá heilsubarnum ákvað ég að prófa þetta. Miklu minna mál heldur en ég átti von á, með gatið fyrir munninn og góða teygju í plástrinum voru þeir ekki að valda neinum óþæginum. Þægilegt að smella þeim á og haldast vel á yfir nóttinu. Húðin kemur líka vel undan þeim eftir nóttina og engin útbrot eða þurrkur á húð eftir límið. Eitthvað sem ég hafði frekar miklar áhyggjur af í fyrstu. Mæli hiklaust með þessum plástrum fyrir alla sem vilja bæta svefn og/eða neföndun. Hefur hjálpað mér með bæði. Finn einnig mikinn mun á að nefið er mun sjaldnar stíflað, hvort sem er á morgnana eða bara yfir daginn.

R
R.E.
Plastrar

Finnst limið ekki nogu sterkt, losnaði af huð oft. Finnst erfitt að setja það a rettan stað svo munnurinn geti ekki opnað. Finn engan mun a liðan eftir um manuð.

I
Ingibjörg Elíasdóttir

Mæli með þessum plástrum :)