Sænskt grasfóðrað kollagen 500g

Sænskt vatnsrofið kollagen (grasfóðruð naut)

6,490 kr

Sænskt vatnsrofið kollagen (grasfóðruð naut)

6,490 kr

Sænskt vatnsrofið kollagen (grasfóðruð naut)

6,490 kr

Vatnsrofið kollagen frá Nyttoteket úr grasfóðruðum nautgripum.

  • 13,5 g prótein í 15 g, gerð I og III
  • Bragðlaust, leysist upp í heitu og köldu
  • Ekkert annað innihaldsefni
  • 500 g, um 35 til 70 skammtar

Prótein stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • 13,5 g prótein
    í 15 g
  • Grasfóðraðir
    nautgripir
  • Gerð I
    og III
  • 500 g
    í poka
Nyttoteket Clean Collagen

Nyttoteket

Vatnsrofið kollagen, ekkert annað

Clean Collagen er 100% vatnsrofið kollagen (hydrolysed collagen) úr grasfóðruðum nautgripum, frá sænska fyrirtækinu Nyttoteket. Það er bragðlaust og lyktarlaust og leysist upp bæði í heitum og köldum vökva.

Kollagenið er aðallega af gerð I, ásamt smá af gerð III.

Prótein stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.

Fyrir hverja?

  • Þá sem vilja hreint kollagen án annarra efna
  • Þá sem vilja kollagen út í kaffi, te, þeytinga eða súpur
  • Þá sem borða lítið af beinaseyði, sinum eða innmat

Umsagnir viðskiptavina

Það sem viðskiptavinir segja

Allar umsagnirnar eru neðar á síðunni.

„Stenst allar mína væntingar með collagen, bragðlaust, hrærist vel, boostin verður mjög rjómakendur.“Ágústa Sigurðardóttir · Staðfest umsögn

Vatnsrof

Hvað þýðir vatnsrofið kollagen?

Kollagen er stórt prótein. Við vatnsrof er það brotið niður í minni peptíð með hjálp ensíma. Þá leysist það upp í vökva, bæði heitum og köldum, án þess að hlaupa.

Í Clean Collagen er meðalstærð peptíðanna 3000 dalton, samkvæmt framleiðanda.

Kollagen er um 30 til 35% af öllu próteini líkamans. Það finnst í húð, hári, nöglum, liðum, sinum og líffærum. Áður fyrr fékk fólk kollagen úr beinaseyði, sinum og innmat, en í dag borða fáir slíkan mat reglulega.

Kollagen hjá Heilsubarnum

Hvaða kollagen hentar þér?

Clean CollagenHreint gelatín
FormVatnsrofið kollagenGelatín
Í köldum vökvaLeysist uppLeysist ekki upp
Í heitum vökvaLeysist upp, hleypur ekkiLeysist upp og hleypur þegar það kólnar
NotkunKaffi, te, þeytingar, súpurHlaup, búðingar, sósur, bakstur

Ef þú vilt kollagen með hýalúrónsýru og C-vítamíni er Advanced Collagen frá Vitality Pro með gerðum I, II og III. Complete Collagen frá NoordCode er með fimm gerðum.

Amínósýrur

Amínósýrur í 15 g

Þær amínósýrur sem mest er af, samkvæmt framleiðanda.

  • Glýsín3,5 g
  • Prólín2,06 g
  • Hýdroxýprólín1,85 g
  • Glútamínsýra1,5 g
  • Alanín1,26 g
  • Arginín1,16 g

Kollagen er ríkt af glýsíni, prólíni og hýdroxýprólíni. Það inniheldur ekki tryptófan og er því ekki fullkomið prótein eitt og sér.

Ávinningur

Prótein

Clean Collagen er próteinríkt.

Þetta eru viðurkennd hlutverk próteins.

Bein

Prótein stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.

Vöðvar

Prótein stuðlar að viðhaldi vöðvamassa.

Næringargildi

Næringarupplýsingar

Næringarupplýsingar

Í 15 g (1 matskeið) · um 35 til 70 skammtar í poka

Í 100 gÍ 15 g
Orka364 kcal57 kcal
Fitaþar af mettuð0 g0 g0 g0 g
Kolvetniþar af sykurtegundir0 g0 g0 g0 g
Trefjar0 g0 g
Prótein91 g13,5 g
Salt0,2 g0 g

Innihald: vatnsrofið kollagen (hydrolysed collagen) úr nautgripum.

Notkun

Ein til tvær matskeiðar á dag

  1. 1

    Hrærðu 1 til 2 matskeiðar út í vökva, heitan eða kaldan.

  2. 2

    Það leysist upp án kekkja og hefur hvorki bragð né lykt.

  3. 3

    Í kaffi, te, þeytinga, djús, súpur eða pottrétti.

Gott að vita

Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi.

Meira frá Nyttoteket

Frá sama framleiðanda

Mysuprótein: mysuprótein úr grasfóðruðum kúm, hreint, með súkkulaði eða vanillu.
Gelatín: í hlaup, búðinga, sósur og bakstur.
Kreatín: 100% Creapure® creatine monohydrate, bragðlaust.
Beinaseyðisprótein: hreint, kryddað eða með súkkulaði.

Nyttoteket

Sænskt fyrirtæki sem framleiðir prótein og kollagen úr grasfóðruðum dýrum.

Skoða vörumerkið

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er Clean Collagen?

Varan hentar meðal annars þeim sem vilja hreint kollagen án annarra efna; þeim sem vilja kollagen út í kaffi, te, þeytinga eða súpur; og þeim sem borða lítið af beinaseyði, sinum eða innmat.

Hvað er í Clean Collagen?

Aðeins vatnsrofið kollagen (hydrolysed collagen) úr grasfóðruðum nautgripum.

Hvaða gerðir af kollageni eru í því?

Aðallega gerð I, ásamt smá af gerð III.

Leysist það upp í köldu?

Já. Það leysist upp bæði í heitum og köldum vökva án kekkja.

Er bragð af því?

Nei. Það er bragðlaust og lyktarlaust.

Hvað er mikið prótein í skammti?

13,5 g af próteini í 15 g, sem er um ein matskeið.

Hver er munurinn á kollageni og gelatíni?

Hvort tveggja er úr kollageni. Kollagenið er vatnsrofið og leysist upp í köldu án þess að hlaupa. Gelatínið leysist bara upp í heitu og hleypur þegar það kólnar.

Hvað dugar pokinn lengi?

Í 500 g poka eru um 35 skammtar af 2 matskeiðum eða 70 af 1 matskeið.