TUDCA er gallsýra sem myndast náttúrulega í líkamanum og styður við meltingu og nýtingu á fitum og olíum og er talin hafa taugaverndandi áhrif.
TUDCA frá BodyBio er mjög hrein vara og er sérstaklega formúlerað til þess að styðja við meltingu, lifrina og veita taugaverndandi stuðning.
Samkvæmt BodyBio eru eftirfarandi taldir kostir þess að taka inn TUDCA:
- Styðja við niðurbrot á fitum og olíum
- Stuðla að heilbrigðri þarmaflóru og líffræðilegri fjölbreytni
- Styðja við heilbrigt bólguviðbragð í meltingarvegi til að minnka líkur á gegndræpum þörmum ( Leaky Gut).
- Hjálpa við að minnka frumustreitu og vernda DNA
- Mögulega hjálpa við fitulifur, skorpulifur og lifrarbólgu
- Geta stutt við taugasjúkdóma
- Hjálpa til við að losa óæskileg efni (toxins) úr líkamanum
- Geta leyst upp gallsteina áður en þeir myndast almennilega
Við hverju máttu búast við þegar þú tekur inn TUDCA?
Vika 0-2: Styður við kólestról inni í frumum (þú finnur ekki fyrir því en er gott að vita af :-)) Styður við meltingu og niðurbrot á fitu og hjalpar til við að styðja heilbrigt gall flæði. Þarna tekur þú mögulega eftir því að þegar þú hefur borðað fituríka máltíð þá er meltingin betri.
Vika 2-4: Styður við insúlín næmi (e. insulin sensitivity), eykur virkni lifrar og styður við myndun heilbrigðra og góðra baktería í þarmaflórunni og minnkaðar bólgur.
Vika 4+: Aukinn stuðningur við heilann og taugaeinkenni
Innihaldslýsing:
Tauroursodeoxycholic acid, rice flour, gelatin (capsules)
Ráðlagður dagsskammtur:
1-2 hylki með mat
Ekki mælt með
Ef þú ert með greiningu á gallblöðruvandamálum eða illa virkandi gallblöðru
Algengar spurningar til framleiðanda:
1. Hvað er mælt með að taka mikið TUDCA? Í sumum rannsóknum er mælt með því að taka inn 500-1500mg á dag eða um 10mg af TUDCA á hvert kíló á dag.
2. Hvenær er best að taka inn TUDCA? Mælt er með að taka það einu sinni til þrisvar sinnum á dag með máltíð. Það má þó taka það inn utan máltíðar. Ef að búið er að fjarlægja gallblöðruna þína þá er mælt með að taka TUDCA með mat til að styðja við meltinguna.
3. Hefur TUDCA einhverjar þekktar aukaverkanir? Almennt er TUDCA talið mjög öruggt fæðubótarefni ef það er tekið í skömmtum sem mælt er með. Einhverjir hafa fengið niðurgang ef þeir hafa farið yfir 1500mg á dag sem ekki er mælt með. Það eru engar aðrar skráðar aukaverkanir.
4. Hvað tekur það TUDCA langan tíma að virka? Rannsóknir hafa sýnt að notendur hafi fundið kosti þess að taka inn TUDCA á 1-6 mánuðum.
5. Inniheldur TUDCA gall frá dýrum? Nei
Heimilidir:
6. Tauroursodeoxycholic Acid Improves Motor Symptoms in a Mouse Model of Parkinson's Disease