Exhale kaffi|Lífrænt|"Mycotoxin" laust|Hátt í andoxunarefnum

Exhale kaffi |Darkish Roast|Lífrænt|Myglulaust|Hátt í andoxunarefnum

4.990 kr

Exhale kaffi |Darkish Roast|Lífrænt|Myglulaust|Hátt í andoxunarefnum

4.990 kr

Exhale kaffi |Darkish Roast|Lífrænt|Myglulaust|Hátt í andoxunarefnum

Tegund

Organic Darkish Roast|Baunir (450g) Organic Darkish Roast|Malað (450g)
4.990 kr

• Speciality Grade lífrænt kaffi frá Kólumbíu
• Prófað fyrir myglueitur, skordýraeitur og þungmálma
• Mjög hátt í pólýfenólum og andoxunarefnum
• Laust við Ochratoxin A, Aflatoxin og myglu
• Dekkra ristað fyrir súkkulaðibragð - hentar espresso

Frí sending yfir 15 þúsund krónur. Pantanir eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13, annars daginn eftir (virka daga). Ekki er afgreitt um helgar. Þær eru afhentar með Dropp, á þann stað sem þú velur.

Örugg greiðslulausn með Saltpay eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

Nánari Lýsing

Exhale kaffið er "Speciality Grade", lífrænt, bragðgott, umhverfisvænt, mjög hollt og prófað á tilraunastofu til þess að tryggja að engin óæskileg efni og eiturefni séu til staðar og að næringarefni eins og pólýfenólar sé hámarkað og alltaf til staðar.

Þegar fyrirtækið Exhale var að þróa Exhale kaffið smökkuðu og prófuðu þau á tilraunastofu yfir 45 tegundir af kaffi frá öllum heiminum til að finna hollasta, bragðbesta og umhverfisvænasta kaffið. 

Þau ristuðu kaffið á mjög fjölbreyttan máta til að finna út hvað gæfi hollustu útgáfuna af kaffi með sem mestu af næringarefnunum. 

Exhale kaffið - eiginleikar og prófanir:

Exhale kaffið hefur eins og áður sagði verið prófað á tilraunastofu og fyrir áhugasama og fyrir gegnsæi eru allar skýrslurnar settar fram í linkunum hérna fyrir neðan.

1 Exhale kaffibolli inniheldur jafnmikið af andoxunarefnum og 1.8kg af bláberjum eða í 55 appelsínum. (þetta er sannreynt af tilraunastofu, sjá niðurstöður hér.

Kaffið er laust við sveppaeitur eins og Ohratoxin A og Aflatoxin (e.mycotoxins) frá myglu, ásamt því að vera laust við skordýraeitur. Það er einnig laust við myglu- og gersveppi

Kaffið er einnig laust við þungmálma eins og sjá má í þessari skýrslu frá tilraunastofu. 

Kaffið með koffíni er frá bænum Belen á Inzá, Cuca svæðinu í Kólumbíu. Koffínlausa kaffið er frá Mexíkó. Kaffið er ristað í London

Kaffið er 100% Arabica.

Exhale kaffið er mjög hátt í pólýfenólum og er talið að það geti dregið úr kvíða eða hruni sem sumir lenda í eftir að drekka kaffi.

Einnig er talið að pólýfenólar geti aukið árangur í bæði þol- og sprett íþróttum. Rannsóknir hafa einnig sýnt að pólýfenólrík fæða sé náttúruleg leið til að styðja við heilbrigðan heila.

Exhale kaffið er sérstaklega hátt í klórógensýru (e.CGA) sem er einn mest rannsakaðisti pólýfenóllinn í kaffi og eru vísindagreinar um hollustu á kaffi helst byggðar á honum. 

Exhale kaffið er hátt í B3 vítamínum. 

Magn:

450g í pokanum

Athugið að hægt er að velja baunir eða malað í öllum tegundum.

Organic Darkish Roast:

Sama holla kaffið og House roast nema ristað aðeins dekkra fyrir meira súkkulaði bragð.

Bragð: hlynsíróp og kirsuber. Smá keimur af apríkósum og kanil. 

Hentar best: Fullkomið fyrir espresso, og alla kaffidrykki með mjólk eins og Bulletproof til dæmis. Eða ef sterkara bragð hentar.

 

ÍTARLEGRI UPPLÝSINGAR

Eins og þú vilt

Upplýsingum sem eru á síðunni er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustu.

Sjúklingar á lyfjum, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Ekki skal neyta meira af vörunni en ráðlagður neysluskammtur segir til um.

Fæðubótarefna skal ekki neyta í stað fjölbreyttrar fæðu.

Geyma skal vöruna þar sem börn ná og sjá ekki til.