Organifi grænn djús, Grænmetis- og jurtaduft með myntu

Organifi grænn djús|Grænmetis- og jurtaduft með myntu

8.990 kr.

Organifi grænn djús|Grænmetis- og jurtaduft með myntu

8.990 kr.

Organifi grænn djús|Grænmetis- og jurtaduft með...

8.990 kr.

Grænmetis- og jurtaduft frá Organifi, með myntubragði.

  • Hveitigras, spirulina, chlorella og moringa
  • 600 mg KSM-66® ashwagandha
  • Myntubragð, vegan
  • 30 skammtar

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • Hveitigras
    og þörungar
  • KSM-66®
    ashwagandha
  • Myntu-
    bragð
  • 30
    skammtar
Organifi Organifi grænn djús

Organifi

Grænmetis- og jurtaduft

Organifi grænn djús er duft sem er hrært út í vatn eða annan drykk. Í því eru hveitigras, moringa, spirulina, chlorella, kókosvatn og KSM-66® ashwagandha, ásamt rauðrófu, sítrónu, grænu tei og túrmerik.

Það er með myntubragði og sætt með luo han guo.

Fyrir hverja?

  • Þá sem vilja grænt duft út í vatn
  • Þá sem vilja hveitigras, spirulina og chlorella í einum drykk
  • Vegan

Innihaldið

Grænt duft

Í hverjum skammti eru 1000 mg af hveitigrassafadufti, 1000 mg af kókosvatnsdufti, 250 mg af moringa-laufi og 600 mg af KSM-66® ashwagandha, sem er þykkni úr rót ashwagandha (Withania somnifera).

Í blöndu eru hveitigras, spirulina og chlorella, sem eru grænþörungar, sítróna, rauðrófa, grænt te og túrmerikþykkni.

Organifi hjá Heilsubarnum

Þrjú duft

HarmonyRauður djúsGrænn djús
GrunnurKakó og macaRauðrófur og berHveitigras og grænþörungar
BragðSúkkulaðiBerMynta
BestHeittKaltKalt

Hin duftin frá Organifi eru Harmony og Rauður djús.

Gæði

Vottanir

Innihaldsefnin eru lífrænt vottuð (USDA Organic), samkvæmt framleiðanda.

Varan er vegan, glútenlaus og án mjólkurafurða og soja, samkvæmt framleiðanda.

Næringargildi

Næringarupplýsingar

Næringarupplýsingar

Skammtur 1 skeið (um 9,3 g) · 30 skammtar

Í 1 skeið (um 9,3 g)
Orka30 kcal
Kolvetni6 g
þar af sykur1 g
Trefjar3 g
Prótein1 g
KSM-66® ashwagandha þykkniWithania somnifera, rót600 mg
Hveitigrassafaduft1000 mg
Moringalauf250 mg
Kókosvatnsduft1000 mg
Blandahveitigras, spirulina, chlorella, sítróna, rauðrófa, grænt te (lauf), túrmerikþykkni4,2 g

Önnur innihaldsefni: trefjar úr tapíóka, náttúruleg appelsínu- og myntubragðefni, luo han guo ávaxtaþykkni.

Inniheldur kókos.

Notkun

Út í vatn

  1. 1

    Hrærðu 1 skeið út í 240 til 300 ml af vatni eða öðrum drykk.

  2. 2

    Best kalt.

  3. 3

    Geymist á köldum og þurrum stað.

Gott að vita

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti, tekur lyf eða átt aðgerð fyrir höndum skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar, samkvæmt framleiðanda.

Meira frá Organifi

Frá sama framleiðanda

Harmony: kakóduft með maca og jurtum, best heitt.
Rauður djús: duft með rauðrófum og berjum, best kalt.

Organifi

Bandarískt fyrirtæki sem framleiðir drykkjarduft úr jurtum, grænmeti og ávöxtum.

Skoða vörumerkið

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er Organifi grænn djús?

Varan hentar meðal annars þeim sem vilja grænt duft út í vatn og þeim sem vilja hveitigras, spirulina og chlorella í einum drykk. Hún er vegan.

Hvað er í græna djúsnum?

Hveitigras, moringa, spirulina, chlorella, kókosvatn, KSM-66® ashwagandha, sítróna, rauðrófa, grænt te og túrmerik.

Hvað er KSM-66®?

Þykkni úr rót ashwagandha (Withania somnifera). 600 mg í hverjum skammti.

Hvernig á að drekka hann?

Hrærðu 1 skeið út í 240 til 300 ml af vatni eða öðrum drykk.

Hvernig er bragðið?

Myntubragð, sætt með luo han guo.

Er hann vegan?

Já, og glútenlaus, samkvæmt framleiðanda.

  • 5 stars: 15 (100%)
  • 4 stars: 0 (0%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 0 (0%)
M
Margret
Mjög bragðgóður og gefur góða orku

Mjög bragðgóður og gefur góða orku. Fæ mér fyrri hluta dags. Á eftir að kaupa aftur.

K
Kolla Bjöss
Orkuboost

Þar sem ég fasta alltaf til hádegis vantaði mig smá aukaorku fyrri hluta dags og svei mér þá hvað hann virkar vel. Organifi græni djúsinn er stútfullur af vítamínum og mjög bragðgóður. Og orkan er sem betur fer orðin betri. Mæli með!

K
Klara Guðmundsdóttir

Hressir og kjætir og gott að drekka þetta ískalt

H
Hugrún Vignisdóttir
Besti græni safinn

Bragðgóður og orkugefandi. Mæli með til að byrja daginn. Frábært að grípa ferðapakkningu ef þú ert á flakki.

T
THorunn Sigurdardóttir

Frábær djús,

T
T.S.
Grænn djús

Alveg frábær

M
M.H.S.
Mæli 100% með

Mjög frískandi og bragðgóður. Ég drekk einn á morgnana og finn mikinn mun á mér. Kemur klárlega til með að vera partur af minni morgunrútínu áfram :)

G
G.e.

Okkur finnst græni djúsinn alveg frábær, góð byrjun á deginum, enda það fyrsta sem að við setjum ofaní okkur í byrjun dags.

K
K.B.
Organifi grænn djús

Ég er búinn að vera drekka þennan djús í 3 mánuði sem segir all sem segja þarf, Hefur hjálpað mér mikið þar sem ég er eingöngu að borða grænt grænmeti og ég hef þetta sem morgunmat. Ég mæli með að þeir sem eru grænmetis eða vegan noti þetta með sínum mat.

K
K.B.
5

Tek þetta í hádeginu og er mjög bragð gott, set það út í grískan jógúrt. Á eftir að kaupa mér aftur. Takk fyrir mig

L
L.Ó.
Frábær drykkur

Mjög hitt að drekka eitt glas um hádegi ég er ekkert að narta í annan mat fyrr en er kvöldmatur kl 6 og mér finnst drykkurinn góður a bragðið
Þessi drykkur er með góð næringar efni allt í eitt glas þægilegt og ekki svo dýrt

H
H.K.

Frábær drykkur, stútfullur af flottri næringu og ekki skemmir fyrir hvað hann er bragðgóður. Ég kaupi hann í bréfum og tek með mér í vinnuna til að blanda í vatn. Gæti ekki verið einfaldara!

G
Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir

Bragðgóður drykkur með fullt af góðum vitamínum í og flottu stöffi ...blanda hann í vatn og tek hann inn fyrir hádegi

A
Anna Lind Fells Snorradóttir
Besti græni drykkur sem ég hef smakkað!

Ég fæ mér glas af grænum Organifi alla daga og hann er ótrúlega bragðgóður! 100% lífrænn og án aukaefna í þokkabót ;)

H
Hrund Gautadóttir
Geggjaður djús

[****] djús til að drekka á föstu, það kom mér á óvart hvað hann er bragðgóður. Ég fæ mér eitt glas af honum daglega og ætla að kaupa mér meira þegar ég er búin með dolluna. Mæli með!