Apex Energetics
Trizomal Glutathione|NAC+Li...
10.990 kr
Trizomal™ Glutathione er byltingarkennd formúla þar sem blandað er saman tveimur mismunandi tegundum af liposomal glutathione með N-acetyl-L-cysteine (NAC).
Formúlan er talin styðja líkamann á þrjá vegu til að auka og hámarka glutathione gildi:
Innanfrumu með S-acetyl L-glutathione
Innanfrumulífmyndun með NAC
Innan- og utanfrumu (kerfis stuðningur) með reduced glutathione (SAG)
Athugið að glerflaskan inniheldur 47 dagskammta.
Liposomal S-acetyl L-glutathione-ið í formúlunni gefur einnig tvöfalt lag (asetýlering+lípósóm) til að vernda glutathione sameindina sem gefur meira aðgengi innanfrumu.
Glútaþíón er nauðsynlegt líffræðilegt andoxunarefni og afeitrunarefnasamband sem er mikilvægt fyrir heilsuna og er virkt í öllum frumum og vefjum.
Glútaþíón virkar sem „meistara andoxunarefnið“ til að vinna gegn oxunarálagi og frumuskemmdum um allan líkamann. Glútaþíon gegnir sérstaklega mikilvægu hlutverki í lifrarheilbrigði og afeitrun, og í heilsu lungna og öndunarfæra.
Skortur á glútaþíóni getur stafað af öldrun, ófullnægjandi neyslu á amínósýrunni cysteini sem inniheldur brennistein í mataræði, eða vegna útsetningar fyrir skaðlegum efnum eins og sveppaeiturefnum (e. mycotoxins), lyfjum, áfengi og umhverfismengun.
Lágt glútaþíón magn er talið geta aukið hættuna á frumuskemmdum vegna sindurefna sem tengjast fjölmörgum heilsufarskvillum tengdum oxunarálagi og bólgu.Rannsóknir sýna að hægt er að hækka magn glutathione-s með bætiefnum eins og þessu. Erfitt er að ná því með glutathione sem er ekki liposomal því það brotnar hratt niður af magasýru, sem skerðir getu þess til að hækka glutathione magn í líkamanum.Liposomal glutathione er mjög stöðugt form glutahione-s sem þolir niðurbrot í maga með því að vera umlukið í feitu „lípósómi“ - hlífðarhjúp sem er búið til með fosfatidýlkólíni sem er unnið úr sólblómalesitíni sem er ekki erfðabreytt.
Liposome tækni veitir vernd gegn oxun og niðurbroti, gerir frásog í þörmum skilvirkara og eykur flutning glútaþíons til frumna og vefja. Nýleg rannsókn benti til þess að hámarkshækkun á glútaþíonmagni hafi náðst innan tveggja vikna eftir lípósómal glútaþíonuppbót hjá heilbrigðum fullorðnum sem tóku annað hvort 500 mg eða 1000 mg á dag.
Algengt er að þessi blanda sé notuð þegar verið er að ná endurheimt eftir umhverfisveikindi. Einnig er blandan mjög vinsæl erlendis sem "anti-aging" bætiefni.
Formúlan kemur í glerflösku.
Varan er glútenlaus og mjólkurlaus (prófað fyrir því)
47 skammtar eru í flöskunni ef tekinn er fullur skammtur.
Biostack Labs
GlyNAC+
7.690 kr
Virk innihaldsefni:- L-Glycine - 3000mg- N-Acetyl Cysteine (NAC) - 1200mg- Calcium Alpha Ketoglutarate - 300mg- Molybdenum (as Molybdenum Glycinate) – 50mcg - Selenium (as Selenomethionine) – 25mcg
Mælt er með að taka í 5 daga í einu og taka svo 2 daga í pásu.
Biostack Labs
Cell Shield|Fyrir frumurnar
9.990 kr
Cell Shield er hannað til að vernda og viðhalda heilsu hverrar frumu í líkamanum fyrir daglegu árásum sindurefna.
Blandan er hugsuð til að einfalda bætiefna inntökuna þína með því að sameina öflugustu andoxunarefnin í einni blöndu. Blandan inniheldur glútaþíon á mjög nýtanlegu og frásoganlegu formi (Setria ® L-Glutathione), ásamt CellG8 ® Liposomal Vitamin C, Curcumin C3 ® Complex og AstraGin ®.
Designs for Health
NAC (N-Acetyl-L-Cysteine) 6...
6.550 kr
N-Acetyl-L-Cysteine (NAC) er asetýlerað form amínósýrunnar L-cysteins, sem er lykilforsendi fyrir myndun glútaþíons.
Glútaþíon er eitt mikilvægasta andoxunarefni líkamans sem hjálpar til við að hlutleysa sindurefna (frjálsra radikala) og vernda frumur gegn oxunarálagi.
Með því að auka magn glútaþíons, styður NAC við náttúrulega hreinsunarferla líkamans, sérstaklega í lifur og nýrum. Það getur einnig stutt við öndunarfærin, hugsanlega með því að draga úr seigju slíms og auðvelda þannig útthreinsun agna og baktería úr lungum.
NAC stuðlar að því að viðhalda frumuheilsu og er oft notað sem hluti af heildrænum stuðningi við ónæmiskerfið og almennan lífsþrótt.
Fyrir Hverja:Þetta bætiefni getur hentað öllum sem vilja styðja við glútaþíon framleiðslu, efla andoxunarvörn líkamans eða veita stuðning við öndunarfæri og náttúrulega afeitrun.
Quicksilver Scientific
Liposomal Glutathione með s...
8.990 kr
Hjálpaðu til við að losa líkamann þinn við óæskileg efni og endurnæra hann með liposomal glutathione. Þetta glutathione frá Quicksilver er á mjög aðgengilegu og nýtanlegu formi fyrir líkamann og er það talið styðja við:
Heilbrigða öldrun
Heilbrigt ónæmiskerfi
Hreinsun á óæskilegum efnum
Andoxun
Orku framleiðslu
Glutathione er til staðar í nánast hverri frumu líkamans með hæsta styrk í lifur. Lifrin er stöðugt að vinna úr og fjarlægða eiturefni og þarf glutathione til að styðja við þessar hreinsunararaðgerðir.
Hvers vegna liposomal?
Það getur verið erfitt að fylla á glutathione með góðum árangri með hylkja afhendingarkerfi. Glutathione á duft formi brotnar auðveldlega niður í meltingarferlinu í einstaka amínósýruefni, glútamat, glýsín og cystein.
Með því að nota liposomal afhendingartækni er hægt að skila glutathione ósnortnu til frumna með litlum en stöðugum ögnum og hágæða hráefni.