HoloImmune™ frá Healthy Gut

HoloImmune™

10.990 kr.

HoloImmune™

10.990 kr.

HoloImmune™

10.990 kr.

Hitameðhöndlaðir gerlastofnar og beta glucan frá Healthy Gut.

  • IMMUSE™, Immuno-LP20™ og L-92
  • Beta glucan úr geri
  • 1 hylki á dag, þarf ekki kæli
  • 30 hylki, vegan

Frí sending yfir 20.000 kr

Fyrir hverja er HoloImmune?

  • Þá sem vilja hitameðhöndlaða gerlaÞrír gerlastofnar sem hafa verið hitameðhöndlaðir og eru því ekki lifandi.
  • Þá sem vilja beta glucan og gerla í einu hylkiBeta glucan úr geri ásamt stofnunum þremur.
  • Þá sem vilja vöru sem þarf ekki kæliÞar sem gerlarnir eru ekki lifandi þarf ekki að geyma pakkninguna í kæli, samkvæmt framleiðanda.
  • Þá sem vilja eitt hylki á dagEitt hylki með mat. 30 hylki í pakkningu.
  • Þá sem eru veganVegan, samkvæmt framleiðanda.

Af hverju þessi blanda?

Í HoloImmune eru tvær gerðir efna saman í einu hylki á dag: beta glucan úr geri og þrír gerlastofnar sem hafa verið hitameðhöndlaðir. Hvor gerðin er útskýrð hér fyrir neðan.

Gerlarnir eru stofnarnir Lactococcus lactis Plasma (IMMUSE™), Lactobacillus plantarum L-137 (Immuno-LP20™) og Lactobacillus acidophilus L-92.

Hitameðhöndlaðir gerlar eru stundum kallaðir paraprobiotics. Þeir eru ekki lifandi og fjölga sér ekki, en byggingin helst. Þess vegna þolir varan stofuhita.

Beta glucan er fjölsykra, keðja úr glúkósa, sem er meðal annars í frumuveggjum gers, sveppa, hafra og byggs. Í HoloImmune er beta glucan úr bakarageri (Saccharomyces cerevisiae), af gerðinni beta-1,3/1,6-D-glucan.

Nánar: hvað þýðir 1,3/1,6?

Tölurnar segja til um hvernig glúkósaeiningarnar eru tengdar saman í keðjunni. Beta glucan úr geri og sveppum er af gerðinni 1,3/1,6, en beta glucan úr höfrum og byggi er af gerðinni 1,3/1,4. Byggingin er því ólík eftir uppruna.

Nánar: hvað er Lactococcus lactis?

Mjólkursýrubaktería sem hefur lengi verið notuð við ostagerð og gerjun mjólkur. Plasma er heiti ákveðins stofns innan tegundarinnar.

Nánar: hvað er stofn?

Hver tegund baktería skiptist í marga stofna, sem geta verið ólíkir þótt þeir beri sama tegundarheiti. Heitin Plasma, L-137 og L-92 vísa til ákveðinna stofna. Samkvæmt framleiðanda hefur hver þeirra verið rannsakaður sérstaklega.

Eitt hylki á dag

Eitt hylki á dag með mat, samkvæmt framleiðanda.

Í pakkningunni eru 30 hylki, sem duga í 30 daga miðað við eitt hylki á dag. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Pakkningin þarf ekki að vera í kæli. Hún geymist á köldum og þurrum stað, vel lokuð, í upprunalegum umbúðum.

Healthy Gut er bandarískt fyrirtæki í Boulder í Colorado sem framleiðir fæðubótarefni fyrir meltinguna.

Næringarupplýsingar

Skammtur 1 hylki · 30 hylki

InnihaldÍ 1 hylki
Beta glucanbeta-1,3/1,6-D-glucan, úr Saccharomyces cerevisiae250 mg
Lactococcus lactis PlasmaIMMUSE™, hitameðhöndlaður, 100 milljarðar frumna50 mg
Lactobacillus plantarum L-137Immuno-LP20™, hitameðhöndlaður50 mg
Lactobacillus acidophilus L-92hitameðhöndlaður21 mg

Næringarviðmiðunargildi er ekki skilgreint fyrir innihaldsefnin.

Önnur innihaldsefni: hylkisskel (hypromellose).

Algengar spurningar

Hvað er í HoloImmune?

Beta glucan úr geri og þrír hitameðhöndlaðir gerlastofnar: Lactococcus lactis Plasma (IMMUSE™), Lactobacillus plantarum L-137 (Immuno-LP20™) og Lactobacillus acidophilus L-92. Magn hvers efnis er í næringartöflunni.

Eru gerlarnir lifandi?

Nei. Þeir hafa verið hitameðhöndlaðir og eru því ekki lifandi, en bygging þeirra helst.

Þarf að geyma vöruna í kæli?

Nei, samkvæmt framleiðanda. Hún geymist á köldum og þurrum stað.

Hvernig á að taka vöruna?

Eitt hylki á dag með mat, samkvæmt framleiðanda.

Hversu mikið beta glucan er í hylkinu?

250 mg í hverju hylki.

Hvaðan kemur beta glucan?

Úr bakarageri (Saccharomyces cerevisiae). Beta glucan er unnið úr frumuveggjum gersins.

Hvað þýðir paraprobiotic?

Gerlar sem hafa verið gerðir óvirkir, til dæmis með hita, svo þeir eru ekki lifandi. Bygging þeirra helst.

Er sama beta glucan í höfrum?

Nei. Beta glucan úr höfrum og byggi er af gerðinni 1,3/1,4. Beta glucan úr geri, eins og í HoloImmune, er af gerðinni 1,3/1,6. Byggingin er ólík.

Hver framleiðir vöruna?

Healthy Gut, bandarískt fyrirtæki í Boulder í Colorado sem framleiðir fæðubótarefni fyrir meltinguna.

Er varan vegan?

Já, samkvæmt framleiðanda. Hylkisskelin er úr hypromellose, sem er unnið úr plöntutrefjum.

Hver er munurinn á HoloImmune og venjulegum góðgerlum?

Í flestum góðgerlavörum eru lifandi gerlar, mældir í CFU. Gerlarnir í HoloImmune eru hitameðhöndlaðir og ekki lifandi. Dæmi um lifandi gerla eru ProBiota HistaminX og P3-OM.

Hvað dugar pakkningin lengi?

Í pakkningunni eru 30 hylki, sem duga í 30 daga miðað við eitt hylki á dag.

Ég er á lyfjum, barnshafandi eða með barn á brjósti. Má ég taka vöruna?

Það er gott að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing áður en byrjað er.

HoloImmune frá Healthy Gut

Hitameðhöndlaðir gerlar og beta glucan

HoloImmune frá Healthy Gut. Beta glucan og þrír hitameðhöndlaðir gerlastofnar. Eitt hylki á dag, þarf ekki kæli. 30 hylki í pakkningu.

  • 5 stars: 1 (100%)
  • 4 stars: 0 (0%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 0 (0%)
H
Hrund Gautadóttir
Virkar!

Ég hef tekið Tributyrinx frá sama fyrirtæki í nokkra mánuði og virkar það frábærlega vel. Ég ákvað því að prófa Holoimmune líka. Nú hef ég tekið það í tvo mánuði og hef tekið eftir nokkrum breytingum. Ég hef alltaf fengið mikið ofnæmi á haustin og tengi það við rotnunina úti og tel það tengjast histamíni, þetta er fyrsta haustið í nokkur ár sem ég hef ekki þurft að taka ofnæmislyf og liðið hræðilega. Ég lenti í myglu fyrir nokkrum árum og ónæmiskefið hefur verið í rúst síðan, ég starfa sem kennari og hef fengið allar pestir sem hægt er að fá, t.d. bara núna í sumar fékk ég ælupest og varð tvisvar mjög veik eftir að hafa farið erlendis. Ég hef tekið Holoimmune í sept. og okt. og aðeins verið veik einn dag og vil ég meina að Holoimmune spili þar stóran þátt.