GlycanAge|Heilsuástandsmæling|Hversu gamall er líkaminn þinn?

GlycanAge ástandsmæling | Öldrunarklukka

55.900 kr

GlycanAge ástandsmæling | Öldrunarklukka

55.900 kr

GlycanAge ástandsmæling | Öldrunarklukka

55.900 kr

• Heimamæling á glýkansamsetningu í líkamanum
• Mælir IgG glýkóm sem eru lífmerki fyrir líffræðilega öldrun
• Stafrænn aðgangur að niðurstöðum og skýrslu
• Hentar fyrir þá sem vilja fylgjast með líkamsbreytingum yfir tíma
• Ekki greiningartæki - ráðfærðu þig við lækni um niðurstöður

Frí sending yfir 15 þúsund krónur. Pantanir eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13, annars daginn eftir (virka daga). Ekki er afgreitt um helgar. Þær eru afhentar með Dropp, á þann stað sem þú velur.

Örugg greiðslulausn með Saltpay eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

Nánari Lýsing

GlycanAge er mæling sem gefur upplýsingar um glýkansamsetningu í líkamanum. Glýkanar eru sykurkeðjur sem tengjast ákveðnum próteinum og breytast yfir lífið. Með þessari mælingu færðu innsýn í hvernig glýkansnið þitt litur út á þessum tímapunkti.

Hvað fylgir mælingunni?

  • Heimapróf þar sem þú tekur sýni sjálf/ur
  • Aðgangur að stafrænum reikningi þar sem þú skoðar niðurstöður
  • Skýrsla sem útskýrir glýkansnið þitt og hvernig það breytist hjá fólki yfir tíma.

Fyrir hverja er mælingin?

  • Einstaklingar sem vilja fá betri yfirsýn yfir glýkansnið sitt.
  • Þeir sem eru að fylgjast með breytingum yfir tíma, t.d. fyrir og eftir lífstílsbreytingar.
  • Fólk sem hefur áhuga á eigin líkamsmynstri, mælingum og reglulegu eftirliti með breytum sem hægt er að skoða yfir lengri tíma. 

Helstu eiginleikar:

  • Einfalt að framkvæma heima.
  • Skýrar og greinargóðar niðurstöður í stafrænu viðmóti
  • Hægt að vera saman mælingar yfir tíma ef fleiri próf eru keypt.

Gott að hafa í huga:

  • Prófið er ekki læknisfræðilegt greiningarpróf
  • Niðurstöður eru ætlaðar sem fræðandi upplýsingar um glýkansnið þitt.

GlycanAge mælingin hefur meira en 200 ritrýndar vísindagreinar á bakvið sig og hefur gögnum verið safnað á yfir 200 þúsund einstaklingum erlendis. Glýkanar hafa verið rannsakaðir í yfir 20 ár af vísindamönnum.  Listi af hluta af vísindagreinum um glýkana er hér fyrir neðan með tenglum á greinarnar fyrir áhugasama. 

Ólíkt öðrum öldrunarklukkum (e. aging clocks) mælingum á markaðnum tekur GlycanAge mið af áhrifum erfða, utangenaerfðum (e. epigenetics) og umhverfisþáttum á öldrun.

GlycanAge mælingin mælir samsetningu IgG glýkóma (glýkanar sem eru fastir við IgG). IgG glýkómar breytast þegar við eldumst en hefur einnig áhrif á bólgur á mörgum stigum. Glýkanar eru ekki aðeins lífmerki (e. biomarkers) heldur einnig hagnýtir áhrifavaldar öldrunar. Margar rannsóknir hafa sýnt að hröðun glýkan öldrunar er tengd óheilbrigðum lífstíl og sjúkdómum. Í sumum tilfellum kom fram að glýkanar voru taldir valda framþróun sjúkdóma.

Hvað eru glýkanar? (sjá myndir)

Glýkanar (e. glycans) eru sykursameindir sem umlykja og breyta prótínum í líkamanum þínum. Útskýring í Instagram vídeó hjá GlycanAge

Hvernig virkar þetta próf?

1. Þú pantar próf á Heilsubarnum og færð sent eins og aðrar vörur. 

2. Hérna er vídeó sem þú getur skoðað hvernig þú tekur sýnið.

3. Þú sendir sýnið með pósti til Glycanage.

6. Eftir um 4-6 vikur koma niðurstöður á reikninginn þinn sem þú getur skoðað.

ÍTARLEGRI UPPLÝSINGAR

Upplýsingum sem eru á síðunni er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustu.

Sjúklingar á lyfjum, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Ekki skal neyta meira af vörunni en ráðlagður neysluskammtur segir til um.

Fæðubótarefna skal ekki neyta í stað fjölbreyttrar fæðu.

Geyma skal vöruna þar sem börn ná og sjá ekki til.