Exhale kaffi|Lífrænt|"Mycotoxin" laust|Hátt í andoxunarefnum

Exhale kaffi | House Roast | Lífrænt | Kólumbía

4,990 kr

Exhale kaffi | House Roast | Lífrænt | Kólumbía

4,990 kr

Exhale kaffi | House Roast |...

Tegund

Organic House Roast|Baunir (450g) Organic House Roast|Malað (450g)
4,990 kr

Lífrænt vottað sérvalið kaffi frá Kólumbíu, miðlungsbrennt.

  • 100% arabica frá einum uppruna
  • Hunang, grænt epli, mangó
  • Prófað af óháðum rannsóknarstofum
  • 450 g, baunir eða malað

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • Frá
    Kólumbíu
  • Miðlungs
    brennsla
  • Lífrænt
    vottað
  • 450 g
    poki
Exhale Exhale House Roast

Exhale

Miðlungsbrennt kaffi frá Kólumbíu

House Roast er 100% arabica kaffi frá einum uppruna, Inza í Cauca-héraði í Kólumbíu. Það er ræktað hátt yfir sjávarmáli í eldfjallajarðvegi og þvegið eftir tínslu.

Kaffið er miðlungs til ljósbrennt. Bragðinu er lýst sem mjúku hunangi, stökku grænu epli, mangó og púðursykri.

Fyrir hverja?

  • Þá sem vilja milt, ávaxtaríkt kaffi
  • Þá sem vilja lífrænt vottað kaffi frá einum uppruna
  • Þá sem nota pressukönnu, AeroPress, uppáhellingu eða mokkakönnu

Brennslan

Af hverju miðlungsbrennt?

Exhale brennir kaffið sitt aðeins miðlungs eða „dark(ish)“, aldrei mjög dökkt. Við dekkri brennslu brotna fleiri af náttúrulegu efnunum í bauninni niður, og bragðið færist frá ávöxtum yfir í ristaða tóna.

Miðlungsbrennsla heldur betur í náttúrulegt bragð baunarinnar, samkvæmt framleiðanda.

Þrjár tegundir

Hvaða kaffi hentar þér?

House RoastDark(ish)Decaf
UppruniCauca, KólumbíuCajamarca, PerúChiapas, Mexíkó
BrennslaMiðlungs til ljósDökk, en ekki of dökkMiðlungs
BragðHunang, grænt epli, mangóDökkt súkkulaði, núggat, karamellaHlynsíróp, möndlur, mjólkursúkkulaði
KoffínJáJáKoffínlaust

Gæði

Sérvalið og prófað

Exhale kaupir aðeins kaffi sem flokkast sem sérvalið kaffi (specialty grade), með að minnsta kosti 84 stig af 100 á kvarða Specialty Coffee Association. Baunirnar eru frá einum uppruna og hægt er að rekja þær til býlisins.

Hver sending er prófuð af óháðum rannsóknarstofum, meðal annars fyrir myglu og gersveppum, mygluefnum (ochratoxin A og aflatoxin), varnarefnaleifum og þungmálmum, samkvæmt framleiðanda.

Kaffið er vottað lífrænt af Soil Association og brennt í litlum skömmtum í London í hverri viku. Umbúðirnar eru plastlausar, samkvæmt framleiðanda.

Notkun

Í pressukönnu

  1. 1

    Notaðu um 17 g af kaffi í bolla.

  2. 2

    Helltu heitu vatni sem hefur fengið að standa í um 30 sekúndur eftir suðu.

  3. 3

    Hrærðu eftir 30 sekúndur og þrýstu pressunni niður eftir 5 mínútur ef þú notar pressukönnu.

Gott að vita

Geymdu kaffið í lokuðum poka á þurrum og dimmum stað.

450 g poki dugar í um 30 bolla, samkvæmt framleiðanda.

Meira frá Exhale

Frá sama framleiðanda

Dark(ish) Roast: dekkri brennsla, frá Perú.
Decaf: koffínlaust, frá Mexíkó.

Exhale

Kaffibrennsla í London sem brennir sérvalið kaffi í litlum skömmtum.

Skoða vörumerkið

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er Exhale House Roast?

Varan hentar meðal annars þeim sem vilja milt, ávaxtaríkt kaffi; þeim sem vilja lífrænt vottað kaffi frá einum uppruna; og þeim sem nota pressukönnu, AeroPress, uppáhellingu eða mokkakönnu.

Er kaffið lífrænt?

Já. Það er vottað lífrænt af Soil Association, samkvæmt framleiðanda.

Hvernig er það prófað?

Óháðar rannsóknarstofur prófa kaffið meðal annars fyrir myglu, mygluefnum, varnarefnaleifum og þungmálmum, samkvæmt framleiðanda.

Hvar er það brennt?

Í litlum skömmtum í London, í hverri viku.

Fæst það malað eða í baunum?

Hvort tveggja, í 450 g pokum.

Hvað dugar pokinn lengi?

450 g poki dugar í um 30 bolla, samkvæmt framleiðanda.

Hvaðan kemur kaffið?

Frá Inza í Cauca-héraði í Kólumbíu. Það er 100% arabica frá einum uppruna.

  • 5 stars: 14 (82%)
  • 4 stars: 2 (12%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 1 (6%)
Ó
Óþekktur
Eg er með ógreiddan poka sem ég fékk í netto seljabraut.

Eg er ekki mikill kaffi neitandi, en ég vil hafa kaffið milt en samt með fillingu og lífrænt.
Exhale kaffi |House Roast get ég treist til að skila mér þessum gæðum i miklum mæli, og er það ánægjustund að njóta þess.

V
Vic Pal
Gæði fyrir filterbollann

Er áskrifandi. Mæli með. Virkilega gott í filter blöndu.

S
Steinunn Vilmarsdóttir
Gæðastund í bolla

Virkilega bragðgott kaffi sem fer vel í mann.

B
Birgitta
Fínt kaffi

Fínt kaffi og gott bragð.

R
Rannveig Traustadottir
Frábært kaffi

Ég hef notað Exhale kaffið í nokkrar vikur og er MJÖG ánægð með það. Nota House Roast. Að mínu mati er þetta besta lífræna kaffið sem ég hef prófað. Kærar þakkir fyrir frábært kaffi.

A
Auður Jónsdóttir

Mjög gott kaffi venst vel

H
Hanna Eiðsdóttir

Mjög gott kaffi. Ég væri til í að drekka það alla daga..olían er mjög góð líka.

H
Harrysson Harry

Mér fannst þetta kaffi ekki gott. En mitt mat endurspeglar ekki mat þjóðarinnar.

H
Hildur Sigurðardottir
Kaffi

Frábært kaffi

L
Lilja Óladóttir

Mjög gott kaffi

P
P.e.
Hvetjandi kaffidrykkja

Silkimjúkt og einstaklega bragðgott kaffi. Loksins get ég drukkið mína 4-5 dagsbolla með góðri samvisku og notið hvers dropa. Mæli eindregið með!

A
A.B.
Besta kaffið sem að ég hef drukkið hingað til

Frábært lífrænt kaffi með fullt sf heilsubætandi efnum. Mæli mjög með, drekk 3 bolla daglega á morgnana og mæli með því að setja Jarðaberja Haagen Daz ís ofan í, lýður mjög vel eftir notkun, hef persónulega ekki funding fyrir neinum óþægindum aem að fylgja oft koffeini : "jitters".

K
K.S.
Lang besta kaffið

Er svo ánægð með kaffi baunirnar, dark róast. Er mikil kaffiljélling. Þetta kaffi kom á óvart. Áferðin er mjúk og tónninn mildur, en samt með þessum kryddkeim. gæði í hverjum sópa. Hlakka til að fá næstu sendi gu.

E
E.J.
Mjög bragðgott kaffi sem mér líður vel af

Mæli hiklaust með! Hef prófað báðar tegundir af Exhale kaffinu og finnst kaffið einstaklega bragðgott auk þess sem það fer vel í mig. Enginn há- og lágtindur í orku heldur jöfn og góð orka inn í daginn. Koffínlausa kaffið er líka algjör snilld en ég fæ mér það yfirleitt ef mig langar í annan bolla eftir hádegi.

S
S.S.
Sigurjón Ernir og Exhale kaffið

Það fer ekkert milli mála að Exhale kaffið er á öðru leveli þegar kemur að kaffi.

Eftir að hafa notað það nánast eingöngu í 4-5 mánuði sé ég að ég finn engar aukaverkanir líkt og flestir finna fyrir eftir 2-4 bolla. Ég get drukkið fleiri bolla en með hefðbundnum baunum og orkan er mun betri og jafnari 🤝🤝

Hér er á ferðinni sannkallað gæðakaffi og bragð og áferð svíkur engan ⚡️⚡️

C
Customer
Next level kaffi!

Þetta er eina kaffið í dag sem ég get drukkið með góðri samvisku.. maður finnur næringuna og hreinleikann 👍🏼
Mæli 100% með kaffinu ef þú ert að leita af því besta fyrir þinn líkama 👌🏼

Takk Heilsubarinn fyrir að leifa okkur að njóta með þér 🙏🏻

B
B.B.Þ.
Mjög gott kaffi!

Ég hef bæði prófað decafe og með koffíni og er mjög ánægð með kaffið 👌🏼