ProbioMed™ Kids er breiðvirk, hágæða meltingargerla blanda sem er sérhönnuð til að styðja við örveruflóru og ónæmisheilsu barna.
Miklar örverubreytingar eiga sér stað í þörmum þegar barn vex frá ungbarni til unglings sem krefst oft stuðnings til að byggja upp fjölbreytileika baktería og styðja við meltingarfæri og ónæmisheilsu.
Ýmsir þættir, eins og sýklalyfjanotkun snemma á ævinni, einhæft mataræði og sýkingar, geta truflað þetta þarmabakteríujafnvægi.
ProbioMed™ Kids inniheldur 11 fjölbreytta, vel rannsakaða Lactobacillus og Bifidobacterium probiotic bakteríu stofna, ásamt Saccharomyces boulardii (S. boulardii). Þessi formúla skilar 10 milljörðum CFU af örverum á skammt, og er magn hvers stofns skýrt gefið upp.
Hver tuggutafla hefur ljúffengt bragð af blönduðum berjum og er sætt með monk fruit extract og inniheldur engin gervilitarefni eða bragðefni.
Þó að varan sé ætluð börnum 4 ára og eldri, er hún einnig hentug fyrir fullorðna sem kjósa tuggutöflu form.