Phosphatidyl Serine fyrir heilann | Heilsubarinn Phosphatidyl Serine fyrir heilann | Heilsubarinn
Seeking Health
Phosphatidyl Serine fyrir h... 7.490 kr
Talið styðja: Við einbeitingu og heilbrigða heilavirkni Slökun og gott skap Heilbrigt streituviðbragð Phostphatidyl Serine er fosfólípíð sem styður við heilbrigða streitusvörun í líkamanum. Þetta bætiefni inniheldur 150mg af phosphatidyl serine (óerfðabreytt) í hverju hylki.  Fosfólípíð eru fitulíkar sameindir sem mynda sveigjanlega frumuveggi líkamans og leyfa hormónum, taugaboðefnum og næringarefnum að starfa eðlilega.
Metýllaus fólinsýra|Tuggutöflur | Heilsubarinn Metýllaus fólinsýra|Tuggutöflur | Heilsubarinn
Seeking Health
Metýllaus fólinsýra|Tuggutö... 3.990 kr
Sumir einstaklingar eru viðkvæmir fyrir metýleruðum næringarefnum en þurfa samt að taka fólat.  Þetta form af fólati er mjög auðupptakanlegt og hentar vel fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir metýleruðum næringarefnum. Hver munnsogstafla inniheldur öflugan skammt af metýlfríu fólati sem fólinsýru. Hver tafla inniheldur 800 míkrógrömm af auðmeltanlegu formi fólinsýra.  Fólat er nauðsynlegt fyrir frumuskiptingu, vöxt og myndun nýrra rauðra blóðkorna. Fólat getur auðveldlega umbreytt sér í hvaða form á fólati sem líkaminn þarnast hverju sinni.  Fólinsýru er fljótt breytt í metýlfólat, aðalform fólats í mannslíkamanum. Á þennan hátt styður fólinsýra við bestu metýleringuna, hómósysteinmagn og orku. Aukaverkanir þeirra sem eru viðkvæmir við virka formi fólats, metýlfólati geta verið höfuðverkur, taugaveiklun eða kvíði, eða hraður hjartsláttur eftir að hafa tekið metýleruð næringarefni. 
Homocysteine Nutrients|Fyrir MTHFR | Heilsubarinn Homocysteine Nutrients|Fyrir MTHFR | Heilsubarinn
Seeking Health
Homocysteine Nutrients|Fyri... 5.790 kr
Þessi B-vítamín blanda frá Seeking Health inniheldur Fólat, B-12, B6, B2 og Betaine. Vítamínin eru á lífvirkum formum sem eru talin styðja vel við metýlerum og heilbrigðan homocysteine metabólisma.  Metýlerun er lífsnauðsynleg fyrir myndun frumuhluta eins og prótín, kjarnsýra sem finnast í DNA og RNA, og fosfólípíðum sem mynda frumuhimnur.  Hvað gerir metlýlerun? Með því flytja metýlhópa frá einni sameind til annarrar er metýlerun talin kveikja á genum, virkja ensím, keyra afeitrunar (detox) viðbrögð, hafa áhrif á seitingu hormóna. Því miður geta slæmt mataræði, oxunarálag (oxidative stress), sýkingar, efnaskiptagallar o.fl. hægt á og skert metýlerunar ferlana í líkamanum.  Til þess að styðja við metýlerun í líkamanum inniheldur þessi vara fólat, B12, B5, B2 og betaine í magni og formi sem nýtist vel og líkaminn þolir vel. Fyrir þá sem eru með MTHFR stökkbreytingar þá er oft ekki nóg að taka L-5-methylfolate, þess vegna bætir Dr. Lynch við betaine-i til þess að styðja heilbrigð homocysteine gildi og styðja metýlerunar hringinn.  Betaine er öflugur metýlgjafi fyrir líkamann, sérstaklega fyrir þá sem eru með MTHFR stökkbreytingar. Fyrir þá sem eru með MTHFR þá eru fleiri vörur sem geta mögulega hentað: Active B12 með L-5-MTHF
PQQ PQQ
Seeking Health
PQQ 6.590 kr
PQQ (Pyrroloquinoline Quinone) munnsogstöflur eru einstakt næringarefni í þægilegu töfluformi sem leysist upp í munni og veitir lífvirkt form PQQ. PQQ er náttúrulegt efnasamband sem er þekkt fyrir andoxunarvirkni sína og er oft notað til að styðja almenna vellíðan og frumuheilbrigði. Það er venjulega tekið yfir daginn, til dæmis eftir hreyfingu eða á tímum þegar þörf er á auknum næringarstuðningi. Hver munnsogstafla er hönnuð til að leysast upp í munni til að stuðla að góðu frásogi og er þægileg leið til að bæta PQQ inn í daglega rútínu. Sumir geta tekið eftir tímabundnum bláum lit í munni vegna eðlis efnisins, sem er saklaust og hægt er að draga úr með því að tyggja töfluna og kyngja henni strax í stað þess að leyfa henni að leysast alveg upp. Mælt er með að taka PQQ yfir daginn og forðast notkun nálægt svefni.
Milt járn sem fer vel í maga (ásamt C vítamíni) | Heilsubarinn Milt járn sem fer vel í maga (ásamt C vítamíni) | Heilsubarinn
Seeking Health
Milt járn sem fer vel í mag... 3.990 kr
Þetta járn frá Seeking Health inniheldur járn á "Ferrochel® Ferrous Bisglyninate Chelate" formi sem er þolanlegt fyrir flesta og með C vítamíni sem gerir það auðupptakanlegt. Algengt er að fólk fái í magann af því að taka inn járn. Þessi tegund af járni er mjög mild fyrir magann. Járn er steinefni sem líkaminn þarnast fyrir heilbrigðan vöxt og þroska. Líkaminn notar járn til að búa til hemóglóbín, prótín í rauðu blóðkornunum sem ber súrefni frá lungum til allra hluta líkamans. Einnig til að búa til myoglobin, prótín sem færir vöðvum súrefni. Járn er líka mikilvægt fyrir eðlilega nýmyndun hormóna og til að viðhalda heilbrigðum bandvefjum. 
Optimal Electrolyte|Steinefnasölt | Heilsubarinn Optimal Electrolyte|Steinefnasölt | Heilsubarinn
Seeking Health
Optimal Electrolyte|Steinef... 6.590 kr
Optimal Electrolyte er hollur, sykurlaus íþróttadrykkur sem hentar frábærlega í stað íþróttadrykkja með sykri og litarefnum. Hann kemur á duftformi sem er blandað í vatn.   Steinefnasölt (elektrólýtar) bera rafmagnshleðslur og spila stórt hlutverk í að viðhalda stöðugleika í frumuhimnum og tryggja góða vöðvavirkni. Blandan inniheldur natríum sem Himalayan bleikt salt, ásamt kalíum. Þetta er nauðsynleg raflausn sem styður við vökvun og vatnsjafnvægi í frumum.  HydroPrime ®: Styður vökvunarstöðu, sérstaklega við æfingar í hita og styður við heilbrigða endurheimt.  PeakATP ®: Styður frammistöðu á æfingum, endurheimt og heilbrigt blóðflæði.  Níasín: Byggingarefni fyrir NAD+, sem eru nauðsynleg í Krebs hringrásinni fyrir orkuframleiðslu. Magnesíum: Ómissandi raflausn sem gefur rafhleðslu fyrir starfsemi frumuhimnunnar. Það styður einnig við heilbrigðan vöðvasamdrátt og viðgerð. Taurín: Amínósýra sem styður upptöku magnesíums og heilbrigðan svita. Kalíum: 99% fólks er talið vera með kalíum skort og þess vegna er meira kalíum en natríum í blöndunni annað en í hefðbundunum blöndum. Notast er við "potassium bicarbonate" til að styðja heilbrigt basískt pH gildi þar sem æfingar auka sýru. Kreatín: er talið styðja heilbrigt vökvajafnvægi í vöðvum. Blanda af kreatíni og "PeakATP®" er einnig talið styðja íþróttaárangur.  
Probiota Histamin X |Meltingargerlar fyrir histamín stuðning | Heilsubarinn Probiota Histamin X |Meltingargerlar fyrir histamín stuðning | Heilsubarinn
Seeking Health
Probiota Histamin X |Meltin... 6.590 kr
Meltingargerlanir í þessari blöndu eru sérstaklega valdir með það í huga að útiloka gerla sem eru taldir auka histamín í þörmunum og hentar blandan þeim vel sem eru viðkvæmir fyrir histamínum. Histamín vinveittir meltingargerlar eru sérstaklega valdir sem geta stutt við heilbrigðan metabólisma histamína sem fæða sem við neytum getur innihaldið. Blandan styður við heilbrigða þarmaflóru og meltingu.  Histamín eru nauðsynleg fyrir heilbrigða meltingu, til að styðja vöku/svefn hringinn og fyrir sterkt ónæmiskerfi. Of mikið histamín getur hins vegar valdið óþægindum.   Einkenni histamín viðkvæmni/óþols geta verið: [1] Niðurgangur Bólgur Lágur blóðþrýstingur Höfuðverkur Kláði Histamín roði (flush) Hnerri  Kláði í nefi Augnpirringur Sumir finna fyrir einkennum strax en aðrir eftir um klukkutíma eftir að fæðu hárri í histamínum hefur verið neytt.  Matur og drykkir sem innihalda mikið af histamínum: Ostar Edik Jógúrt Pylsur  Súrkál Túnfiskur Tómatar Áfengir drykkir Erfitt getur verið að forðast algjörlega mat með histamínum án þess að missa af nauðsynlegum næringarefnum og því getur verið gott að neyta fæðubótarefnis i þeim tilgangi að draga úr einkennum. Athugið að neysla sumra gerla getur aukið histamín í þörmum. Dæmi um gerla sem geta framleitt histamín eru Lactobacillus casei, Lactobacillus reuteri, Lactobacillus bulgaricus.  Takið eftir að Probiota Histamin X virkar EKKI við ofnæmiseinkennum eða selíak einkennum.  Breytingar á hægðum geta átt sér stað þegar byrjað er að taka inn meltingargerla. Ef þetta gerist, hættið þá að taka ProBiota HistaminX þar til hægðir verða eðlilegar.  
DAO Enzyme | Diamine oxidase meltingarensím | Heilsubarinn DAO Enzyme | Diamine oxidase meltingarensím | Heilsubarinn
Seeking Health
DAO Enzyme | Diamine oxidas... frá 7.490 kr
DAO Enzyme (áður Histamin Digest) frá Seeking Health hentar mjög vel fyrir þá sem þola illa histamín eða eru með histamínóþol. Það inniheldur einkaleyfaverndaða ensíma formúlu sem gefur 10000 HDU af diamin oxidase (DAO), ensímið sem hefur stóru hlutverki að gegna í að brjóta niður histamín úr fæðu.  Histamín getur verið tvíeggja sverð. Það er nauðsynlegt fyrir okkur en það getur líka valdið alls konar einkennum. Histamín er frábært til að halda óværum (pathogens) í burtu í meltingunni. Það örvar ónæmiskerfið til að ráðast á óværuna. Það er einnig talioð hjálpa við bylgjuhreyfingar meltingarinnar.  Það er taliðo hjálpa maganum að seita ensímum sem brjóta niður prótein. Þannig að það er augljóst að við viljum endilega hafa histamín í meltingunni okkar, bara ekki of mikið af þeim.  Of mikið af histamínum er ekki gott og getur það sent röng skilaboð til ónæmiskerfisins og hvatt það í að senda drápsfrumur af stað og búa til bólgusvar. Það getur leitt til histamínóþols, meltingareinkenna, ofnæmis og fleira. DAO hefur verið klínískt rannsakað og verið sannað að það brjóti niður histamín í meltingarveginum.  Til þess að viðhalda vörnum meltingarvegarins við histamínum góðum er mælt með ProBiota Histamin X og er mikilvægt að finna rót vandans. Það virðist vera töluvert algengt að fólk sem hefur veikst vegna rakaskemmda finni fyrir histamín viðkvæmni.  En hvar eru öll þessi histamín að fela sig, ertu að innbyrða mikið af histamínum? Því miður er mikið af histamínum í fullt af mat sem þér finnst sennilega góður og ert jafnvel að borða til að bæta heilsuna. Þau finnast helst hér: Gömlum ostum Áfengi (sérstaklega í rauðvíni og kampavíni) Beinasoði Súkkulaði Sítrus (ekki sítrónum samt) Reyktu og unnu kjöti eins og pylsum, salami, pepperoni.. Þurrkuðum ávöxtum Gerjuðum mat eins og jógúrti, sýrðum rjóma, súrkáli, kefir.. Ávaxtasafa Fiski - sérstaklega reyktum eða niðursoðnum Ferskum tómötum Spínati Ediki 
B vítamín blanda með virkum formum|B complex plus | Heilsubarinn B vítamín blanda með virkum formum|B complex plus | Heilsubarinn
Seeking Health
B vítamín blanda með virkum... 4.990 kr
Þessi B vítamín blanda frá Seeking Health inniheldur 8 tegundir af B vítamínum. Fólatatið, B-12, ribóflavín og B6 eru á virku formi. Blandan inniheldur einnig B vítamín samverkandi kólín til að styðja við metabólisma. Virka formið af fólati, L-5-MTHF er sérstaklega hentugt til að styðja við þarfir taugakerfisins þar sem þetta er eina tegundin af fólati sem fer í gegnum heilaþröskuld í blóði (blood brain barrier).  Formið (methylcobalamin og adenosylcobalamin) á B-12 í þessari blöndu er mjög auðupptakanlegt.  Níasín er mikilvægt fyrir meltingu, húð, og taugar og er mikilvægt til að breyta mat í orku.  Thíamín (B1): er mikilvægt fyrir orkuskipti líkamans. Ribóflavín ( B2): er mikilvægt fyrir heilbrigða orku, sterkt ónæmiskerfi, heilbrigt hár og heilbrigða húð og slímhimnur.  P-5-P og B6 er mikilvægt fyrir heilbrigða virkni yfir 100 ensíma, aðallega tengt prótín metabólisma.  Pantóþensýra (B5):  aðstoðar hin B vítamínin í að umbreyta fæðu í nothæfa orku. Hún er líka nauðsynlegur hluti af eiginleika líkamans til að búa til fjölbreytt ensím.  Bíótín: styður heilbrigðan kolvetna metabólisma og er nauðsynlegt fyrir heilbrigt hár, heilbrigða húð og neglur. 
Histamin Nutrients|Næringarblanda með DAO meltingarensími | Heilsubarinn Histamin Nutrients|Næringarblanda með DAO meltingarensími | Heilsubarinn
Seeking Health
Histamin Nutrients|Næringar... 9.790 kr
Of mikið histamín í líkamanum getur valdið einkennum eins og að roðna snöggt, nefrennsli, svefnvandamálum og/eða höfuðverkjum. Þessi einkenni geta komið fram þegar hægist á ensímavirkni í histamine ferlinu. Þó að DAO sé aðalensímið sem brýtur niður matartengt histamín í meltingunni, þá taka önnur ensím einnig þátt.  Þessi blanda var hönnuð til að styðja við öll histamín tengdu ensímin, ekki bara DAO. Blandan inniheldur sjö nauðsynleg næringar- og andoxunarefni sem styðja við histamín efnaskiptin í hverri frumu.  Óæskilegar aukaafurðir verða til þegar histamín er metabólliserað, eins og ammónía, vetnisperoxíð og acetaldehýð sem geta einnig valdið aukaverkunum og frumuskaða. Histamin Blok PLUS inniheldur einnig bætiefni sem styðja við niðurbrot á þessum efnum.  Hérna eru aðalinnihaldsefnin og tilgangur: DAO: Inniheldur 5,000 HDU af einkaleyfisvernduðu DAO, aðalensímið sem brýtur niður histamín Kopar: Styður við DAO ensímið SAMe:  Styður við HNMT ensímið, sem er mikilvægt ensím sem styður við niðurbrot á histamíni Alpha Keto-Glutarate: Styður við niðurbrot á ammíníu Riboflavin: Styður við MAOA og MAOB ensímin sem vinna á aukaafurðum histamín niðurbrots.Sink og B3 Vítamín: Stuðningur við ALDH ensíma fjölskylduna sem hjálpar við að brjóta niður acetaldehýð.  Ráðlagður dagsskammtur:  2 hylki hvenær sem er yfir daginn. Þú getur prófað að taka 2 hylki fyrir svefninn, það getur hjálpað til við að sofna. Athugið að það er níasín í vörunni sem getur valdið níasín "flushi" sem er ekkert hættulegt en þá roðnarðu vel og finnur smá kláða. Ef þú ert færð svona (og vilt ekki) þá er um að gera að borða mat með bætiefnunum.  Athugið að þessi vara hentar EKKI vegan og grænmetisætum eða þeim sem eru með ofnæmi fyrir svínakjöti. 
Prenatal Essentials |Öll nauðsynlegustu vítamínin fyrir meðgöngu | Heilsubarinn Prenatal Essentials |Öll nauðsynlegustu vítamínin fyrir meðgöngu | Heilsubarinn
Seeking Health
Prenatal Essentials |Öll na... 4.990 kr
Einföld meðgöngubætiefni – ekkert umfram nauðsyn. Mörg meðgönguvítamín innihalda óþarfa innihaldsefni, en meira er ekki alltaf betra.† Prenatal Essentials veitir aðeins þau nauðsynlegu vítamín og steinefni sem styðja heilbrigða meðgöngu – hvorki meira né minna.† Það er hannað fyrir konur sem vilja hágæða og hagkvæmt meðgöngubætiefni án óþarfa aukefna. Hentar þetta þér? Hentar vel ef þú borðar hollt og fjölbreytt fæði, vilt þægilegan 2-hylkja skammt, leitar að hagkvæmu og vönduðu meðgönguvítamíni, þarft grunnnæringarefni en ekki sterka skammta og kýst lífvirk form næringarefna. Helstu kostir Styður heilbrigðan þroska heila og taugakerfis með metýleruðu fólati, B12 og TMG.† Virk form A-vítamíns styðja eðlilegan þroska augna, húðar, ónæmiskerfis og heila.† D-vítamín (D3) og K2 styðja ónæmi, beinheilsu, skap og hugræna starfsemi.† Andoxunarefni eins og C-vítamín, E-vítamín, sink og selen styðja náttúrulegar varnir líkamans.† Virkt B6-vítamín (P-5-P) styður meltingarþægindi og getur hjálpað við væga ógleði á meðgöngu.† Fyrir öll stig Má taka fyrir, á meðan og eftir meðgöngu til að styðja frjósemi, meðgönguheilsu, eðlilegan fósturþroska, bata eftir fæðingu og brjóstagjöf. Prenatal Essentials styður vellíðan og orku – svo þú getir einbeitt þér að heilbrigðri meðgöngu og heilbrigðu barni.
Methyl B12 with L-Methylfolate | Heilsubarinn Methyl B12 with L-Methylfolate | Heilsubarinn
Seeking Health
Methyl B12 with L-Methylfolate 4.390 kr
B-12 Vítamín með L-5-MTHF er fyrir alla þá sem vilja: Styðja á náttúrulegan hátt við MTHFR stökkbreytingar. Styðja gott skap og og góða orku. B-12 vítamín er nauðsynlegt til þess að mynda heilbrigð rauð blóðkorn, fyrir orkuframleiðslu, stuðning við taugakerfið, heilavirkni og reglun hómócysteins. Fólat á formi L-5-MTHF tekur einnig þátt í hómócystein metabólisma og styður metýlun og virkni taugakerfis. 
Optimal Magnesium (glycinate og malate) | Heilsubarinn Optimal Magnesium (glycinate og malate) | Heilsubarinn
Seeking Health
Optimal Magnesium (glycinat... 4.990 kr
Þessi blanda frá Seeking Health inniheldur malate form (80%) og glycinate (20%). Flestir þola þessa blöndu vel og fá ekki meltingaróþægindi eins og algengt er með sum önnur form af magnesíumi. Margir segjast ekki þola magnesíum og fá niðurgang en eru þá mögulega að taka form af magnesíumi sem þekkt eru fyrir að valda meiri meltingaróþægindum. Magnesíum er talið eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans. Það tekur þátt í yfir 600 mismunandi lífefnafræðilegum viðbrögðum líkamans [1-18].
Hýdroxó B12 með fólínsýru | Heilsubarinn Hýdroxó B12 með fólínsýru | Heilsubarinn
Seeking Health
Hýdroxó B12 með fólínsýru 4.350 kr
Hýdroxó B12 með fólínsýru sameinar tvö nauðsynleg B-vítamín í ómetýleruðu formi sem styðja við heilbrigða orkuframleiðslu, skýra hugsun og metýleringu. Þessi formúla hentar sérstaklega þeim sem eru viðkvæmir fyrir metýleruðum næringarefnum eins og L-metýl fólati og metýlkóbalamíni. Í staðinn býður hún upp á mild og árangursrík form: 1.000 míkrógrömm af hýdroxókóbalamíni, ómetýleruðu formi B12-vítamíns 1.360 míkrógrömm DFE (800 míkrógrömm) af fólínsýru, ómetýlerað form fólats Töflurnar eru bragðgóðar og auðmeltar, hannaðar fyrir góða upptöku og nýtingu í líkamanum. Þessi næringarefni umbreytast auðveldlega í virk form án þess að valda óþægindum sem sumir upplifa við metýleruð vítamín.
Methyl B12 5000 Methyl B12 5000
Seeking Health
Methyl B12 5000 4.590 kr
Methyl B12 5000 er hástyrk B12-vítamín sem veitir lífvirk form B12 í þægilegu munnsogstöfluformi. Það inniheldur blöndu af metýlkóbalamíni og adenosýlkóbalamíni sem eru form sem líkaminn getur nýtt beint án flókinna umbreytinga. Hver skammtur inniheldur 5.000 mcg af B12-vítamíni í bragðgóðri töflu sem leysist upp í munni og stuðlar að góðu frásogi. Þetta form hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eiga erfitt með að taka upp B12 í gegnum hefðbundna meltingu. B12-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í mörgum lykilferlum líkamans, þar á meðal orkumyndun, vitrænni starfsemi, myndun rauðra blóðkorna og heilbrigði taugakerfisins. Það styður einnig eðlileg homócystein efnaskipti og myndun DNA, sem gerir það að mikilvægu næringarefni fyrir almenna heilsu. Skortur á B12 er algengur og getur tengst þáttum eins og mataræði (sérstaklega grænmetis- eða veganfæði), lágri magasýru eða skertu upptökugetu. Með því að nota lífvirk form af B12 er auðveldara fyrir líkamann að nýta vítamínið á skilvirkan hátt. Ólíkt mörgum hefðbundnum B12 fæðubótum sem innihalda cyanókóbalamín, inniheldur Methyl B12 5000 eingöngu lífvirk form sem líkaminn þekkir og nýtir fljótt.  Hægt er að skipta töflunum niður til að aðlaga skammtastærð eftir þörfum.
Energy Nutrients|Fyrir orkuna og þrekæfingarnar | Heilsubarinn Energy Nutrients|Fyrir orkuna og þrekæfingarnar | Heilsubarinn
Seeking Health
Energy Nutrients|Fyrir orku... 4.990 kr
Ath að Seeking Health hefur breytt formúlunni.  Algengt er að fólk noti þetta fæðubótarefni fyrir meiri orku, gott minni og einbeitingu, ásamt stuðningi við miklar þol- og þrekæfingar. Margir taka strax á morgnana, jafnvel áður en þeir fara fram úr ef það er erfitt að koma sér á fætur. ATP (sem PEAKATP ™) klínískt staðfest og einkaleyfisvarin form af adenosíni 5'-þrífosfat (ATP) dínatríum sem er eins að byggingu og ATP sem mannslíkaminn framleiðir og notar. Það veitir orku og eykur hlutverk ATP í líkamanum, sérstaklega í samspili við hreyfingu sem gerir notendum kleift að gera meira og ná meira með minni þreytu. Glutathione (sem Emothion™) klínískt rannsakað, munnlega stöðugt, einkaleyfisvottað og öflugt næringarefni með andoxunareiginleika. Það losnar beint í frumur eftir líffræðilega virkjun.
HistaminX HistaminX
Seeking Health
HistaminX 7.990 kr
HistaminX er sérhönnuð formúla sem styður náttúruleg viðbrögð líkamans við algengum umhverfisáhrifum eins og frjókornum, ryki og gæludýrahári, og hjálpar þér að líða betur yfir daginn.* Formúlan inniheldur plöntuefni, bioflavóníða og ensím sem vinna saman að því að styðja við eðlilegt histamínjafnvægi og heilbrigða starfsemi mastfrumna. Með því að hjálpa líkamanum að stjórna histamínmagni getur hún stutt við þægindi í augum, nefi, kinnholum og öndunarfærum - sérstaklega á árstíðabundnum tímum eða við útsetningu fyrir algengum ertandi þáttum.* HistaminX er hannað til að vera sveigjanlegt og auðvelt í notkun, þannig að þú getur aðlagað notkunina að þínum þörfum, lífsstíl og umhverfi. Hvort sem þú ert heima eða á ferðinni er þetta þægileg viðbót við daglega rútínu til að styðja almenna vellíðan.
Uppselt
D-vítamín dropar í ólívuolíu | Heilsubarinn D-vítamín dropar í ólívuolíu | Heilsubarinn
Seeking Health
D-vítamín dropar í ólívuolíu 4.490 kr
D-vítamín í ólívuolíu frá Seeking Health. Einföld formúla sem hentar flestum með fæðuóþol eða -ofnæmi þar sem blandan inniheldur ólívuolíu í stað kókosolíu eins og margar tegundir D-vítamíns.  D-vítamín styður eins og flestir þekkja við góða beinaheilsu (ásam kalkríku fæði) og heilbrigt ónæmiskerfi. Athugaðu að 2000IU eru í hverjum dropa.   
Uppselt
Gallsölt|Ox Bile |Fyrir meltingu á fitu | Heilsubarinn Gallsölt|Ox Bile |Fyrir meltingu á fitu | Heilsubarinn
Seeking Health
Gallsölt|Ox Bile |Fyrir mel... 4.490 kr
Hvað gera gallsölt? Styðja við heilbrigt niðurbrot á fitu Styður við heilbrigða meltingu Viðheldur heilbrigðri orkuframleiðslu Styður við upptöku næringarefna
Uppselt
Bile Nutrients (áður Gallbladder Nutrients) | Heilsubarinn Bile Nutrients (áður Gallbladder Nutrients) | Heilsubarinn
Seeking Health
Bile Nutrients (áður Gallbl... 5.990 kr
"Næringarefni fyrir gallið" blandan er yfirgripsmikil formúla sem er hönnuð til að styðja og hámarka virkni gallblöðrunnar og gall heilsu. Blandan samanstendur af fimm næringarefnum og níu jurtum til að styrkja gallblöðru og lifur og heilbrigt gall og gallflæði.  Athugið að blandan hentar einnig fyrir þá sem eru ekki með gallblöðru. Myndun galls án þess að flæðið á því sé gott er einungis hálf jafnan. Að sama skapi er gallflæði án gallmyndunar ekki mjög gagnlegt. Þeir sem eru með vandamál tengdu gallinu eru oft vandamál tengd bæði gallmynduninni og gallflæðinu. Algengt er að blöndur einblíni einungis á annað vandamálið, ekki bæði í einu.  Gallið spilar stórt hlutverk í meltingu og nýtingu á fitu og fituleysanlegum vítamínum, ásamt því að koma úrgangi, kólestróli og óæskilegum efnum útúr líkamanum. Minna þekkt virkni gallsins er að það styður við heilbrigt magn baktería í smáþörmunum sem er sérstaklega mikilvægt hjá þeim með SIBO (Small intestinal bacterial overgrowth) eða önnur ójafnvægi í þarmaflórunni.  Mikilvægt að næg gallframleiðsla sé til staðar og að gallið flæði vel. Ef lifrin er ekki að framleiða nóg gall eða ef flæðið er slakt þá getur líkaminn átt erfitt með að melta fitu, olíur og fituleysanleg vítamín, ásamt því að óæskileg efni (e. toxins) geta safnast upp í líkamanum.  Vegna þess að lifrin og gallblaðran vinna saman í að framleiða og losa gall, þá er mikilvægt að styðja vel við lifrina þegar þú ert að vinna í gallheilsunni og flæðinu. Þess vegna er lifrarstuðningur hafður með í þessari blöndu.  Tilgangur innihaldsefna: Glycine og Taurine; Byggingarblokkir gallsalts Betain HCL: Styður við magasýru gildi sem styður við heilbrigða meltingu Choline: Styður myndun phosphatidylcholine (PC) framleiðslu - gall samanstendur aðallega úr PC Burdock, Bupleurum, Dandelion: Styður við gallseytingu og flæði.  Caffeolyquinic acid (úr ætilþistla extract): Styður við lifrarvirkni og seytingu galls. Innihaldslýsing: Serving Size: 4 CapsulesServings Per Container: 30 AMT %DV Choline (as choline bitartrate) 125 mg 23% Magnesium (as DiMagnesium Malate¤) 100 mg 24% Betaine hydrochloride 328 mg ** Glycine 125 mg ** Taurine 125 mg ** Dandelion (Taraxacum officinale)(root) 125 mg ** Burdock Extract (Arctium lappa)(root) 125 mg ** Artichoke Extract (Cynara scolymus)(aerial parts)(13% Caffeoylquinic Acid) 125 mg ** Peppermint Extract (Mentha x piperita)(aerial parts) 125 mg ** Slippery Elm (Ulmus fulva)(bark) 125 mg ** Marshmallow (Althaea officinalis)(root) 125 mg ** Milk Thistle Extract (Silybum marianum)(seeds) 100 mg ** Bupleurum Extract (Bupleurum spp.)(root) 75 mg ** Ginger (Zingiber officinale)(rhizomes) 25 mg ** **Daily Value (DV) not established. Other Ingredients:Vegetarian capsule (hypromellose and water), ascorbyl palmitate, L-leucine, and silica   Ráðlagður dagsskammtur: 4 hylki á dag með mat. Má skipta upp í 2 hylki tvisvar á dag með síðdegishressingu og kvöldmat. Ekki er ráðlagt að taka gallblöðru næringarefnin: - Á meðgöngu - Ef þú ert með verki vegna gallsteina eða gallsteinakast
Uppselt
Methyl B12 (1000μg) | Heilsubarinn Methyl B12 (1000μg) | Heilsubarinn
Seeking Health
Methyl B12 (1000μg) 3.590 kr
Fyrir alla þá sem: Vilja styðja gott skap og og góða orku. Vilja vernda heilann fyrir öldrun. Vilja draga úr þreytu. Telja sig vera í B-12 skorti (sérstaklega mikilvægt fyrir vegan og grænmetisætur). Af hverju B-12? B-12 vítamín er nauðsynlegt til þess að: mynda heilbrigð rauð blóðkorn fyrir orkuframleiðslu mynda og styðja við taugakerfið, heilavirkni og reglun hómócysteins.  Þetta vítamín inniheldur 80% methylcobalamin og 20% adenosylcobalamin. Dæmi um einkenni B-12 vítamín skorts [1] Blóðleysi Magnleysi, aukinn hjartsláttur, mæði og svimi Meltingartruflanir, vindverkir og niðurgangur Snertiskyn breytist eða minnkar Náladofi Særindi á tungu Minnistap og sjóntruflanir Innihaldslýsing: Serving Size: 1 LozengeServings Per Container: 60 AMT %DV Vitamin B12 (80% as MECOBALACTIVE® methylcobalamin and 20% as adenosylcobalamin) 1,000 mcg 41,667% Serving Size: 1 LozengeServings Per Container: 60 AMT %DV Vitamin B12 (as MECOBALACTIVE® methylcobalamin and adenosylcobalamin) 5000 mcg 208,333% DV = Daily Value Other Ingredients: Xylitol, ascorbyl palmitate, silica, and natural flavors. MECOBALACTIVE® is a registered trademark of HealthTech BioActives SLU d.b.a. Ferrer HealthTech. Ráðlagður dagskammtur 1 tuggutafla daglega, eða eins og sérfræðingurinn þinn mælir með. Hægt er að skipta töflunni upp í minni bita ef þú vilt taka minni skammt. Ekki eru allir sem þola heila töflu. Ekki er mælt með að taka vítamínið minna en 5 klukkutímum fyrir svefn, þar sem taflan getur haft áhrif á svefn, þar sem hún getur virkað örvandi.  Algengar spurningar til framleiðanda: Is the vitamin suitable for vegans and vegetarians? Yes, Active B12 is suitable for vegans and vegetarians. Is the vitamin safe to use while pregnant or breastfeeding? Not enough is known about the use of Active B12 during pregnancy or breastfeeding to make conclusive statements about its safety. We recommend that you consult a healthcare professional when considering the use of Active B12 1000 for health purposes, especially when pregnant or breastfeeding. As we are not licensed medical professionals, we cannot engage in diagnosing, dispensing medical advice, or prescribing the use of any of our products as a treatment for disease or illness. Can the vitamin be used for children? For children, we recommend that you consult with a healthcare professional prior to administering Active B12 or any dietary supplement. Your qualified healthcare professional should be able to determine whether the product is safe and appropriate for a child to take, and should also be able to advise as to whether adjustments need to be made in the dosage of the product. Are there any side-effects or precautions when using the vitamin? The most common side-effects of B12 supplements are rash, itching, mild fever, and sometimes stomach upset. If you believe that you are experiencing any of these symptoms or side-effects, please see your healthcare professional. Individuals who have recently undergone surgery for a coronary stent should contact their healthcare professional prior to use. If you believe that you are experiencing any adverse reactions, please see your healthcare professional immediately. Each individual may react differently to any product or supplement. We always recommend that you consult with your healthcare professional prior to considering the use of Active B12 or any supplement. Upplýsingum sem eru á síðunni er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar á lyfjum, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. 
Uppselt
D3 og K2 vítamín í ólívuolíu|Fyrir beinin | Heilsubarinn D3 og K2 vítamín í ólívuolíu|Fyrir beinin | Heilsubarinn
Seeking Health
D3 og K2 vítamín í ólívuolí... 4.990 kr
Erum að skipta í D3+K2 frá Noordcode sem fæst hér. Einföld formúla sem hentar flestum með fæðuóþol eða -ofnæmi þar sem blandan inniheldur ólívuolíu í stað kókosolíu eins og margar tegundir D-vítamíns.  D-vítamín styður eins og flestir þekkja við góða beinaheilsu (ásam kalkríku fæði) og heilbrigt ónæmiskerfi.   Vítamínblandan inniheldur einnig K2 sem er talið nauðsynlegt að taka með D vítamíni til að fá sem mest útúr því fyrir beinheilsu. K2 sjálft er talið gott fyrir hjarta-og æðakerfið, ásamt beinaheilsu.