Creatine Monohydrate | Creapure | Kreatín
Heilsubarinn
Creatine Monohydrate | Crea... 5.990 kr
Pristine Creatine, hreint kreatín mónóhýdrat Pristine Creatine er 100% hreint kreatín mónóhýdrat, þróað og framleitt í Þýskalandi með áherslu á gæði, hreinleika og virkni. Auðleysanlegt, bragðlaust og lyktarlaust, án bragðefna, fylliefna eða annarra aukaefna. Hvers vegna kreatín? Kreatín finnst náttúrulega í líkamanum og gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu. Fullorðinn einstaklingur geymir um 80 til 130 grömm af kreatíni, og allt að 2% af þeim forða er nýttur daglega og þarf því að endurnýja. Líkaminn framleiðir hluta sjálfur og við fáum kreatín úr kjöti, en eldun getur eyðilagt stóran hluta þess og því þyrfti að borða mjög mikið magn til að viðhalda fullum forða. Orka þegar þú þarft hana mest Við ákafar eða sprengikraftsæfingar tæmist ATP-orkuforði líkamans á nokkrum sekúndum. Þar kemur kreatín til skjalanna. Með því að halda fosfókreatín gildum háum hjálpar kreatín líkamanum að endurnýja ATP hratt, svo þú getir afkastað meira, lengur og af fullum krafti. Vísindalega staðfest virkni Kreatín eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar, stuttar og ákafar æfingar. Dagleg inntaka kreatíns getur einnig eflt áhrif styrktarþjálfunar á vöðvastyrk hjá fullorðnum yfir 55 ára aldri. Þessi jákvæðu áhrif nást með 3 g daglegri inntöku af kreatíni. Kreatín og heilinn Heilafrumur eru meðal orkufrekustu fruma líkamans og nýta sömu ATP/fosfókreatín orkukerfi og vöðvar. Um það bil 5% af heildar kreatínforða líkamans er geymdur í heilanum. Rannsóknir á hlutverki kreatíns í heilastarfsemi eru í örum vexti og fylgjumst við vel með þeim og munum skrifa grein um það fljótlega. Pristine Creatine er einföld, hrein og áhrifarík leið til að viðhalda kreatínforða líkamans í hámarki.
Creatine Pro | Creapure + AstraGin Creatine Pro | Creapure + AstraGin
Heilsubarinn
Creatine Pro | Creapure + A... 3.790 kr
Noordcode Creatine Pro með Creapure® og AstraGin® Noordcode Creatine Pro er einföld og öflug formúla úr aðeins tveimur innihaldsefnum: Creapure® kreatín mónóhýdrati og AstraGin® jurtaseyði. Engin fylliefni, engin bragðefni, engin aukaefni. Creapure®, hreinasta kreatín á markaðnum Creapure® er framleitt af Alzchem Trostberg GmbH í Þýskalandi í sérhannaðri verksmiðju með ströngum gæðakröfum. Með 99,9% hreinleika er Creapure® hreinasta form kreatín mónóhýdrats sem völ er á. Hver framleiðslulota er prófuð fyrir aukaafurðum á borð við kreatínín, dícýandíamíð (DCD) og díhýdrótríazín (DHT). Framleiðsluferlið er vatnsbundið og notar engar dýraafurðir, sem gerir Creapure® hentugt fyrir grænmetisætur og vegan, auk þess að vera Halal og Kosher vottað. Hvers vegna kreatín? Kreatín finnst náttúrulega í líkamanum og gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu. Í vöðvunum myndar það fosfókreatín, hraðvirkan orkuforða sem er notaður í ATP myndun við stuttar og ákafar æfingar á borð við spretti eða lyftingar. Líkaminn framleiðir um eitt gramm á dag sjálfur og við fáum lítið magn úr kjöti og fiski, en eldun eyðileggur stóran hluta þess. Bætiefni er einfaldasta leiðin til að viðhalda fullum kreatínforða. Vísindalega staðfest virkni Kreatín eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar, stuttar og ákafar æfingar. Dagleg inntaka kreatíns getur einnig eflt áhrif styrktarþjálfunar á vöðvastyrk hjá fullorðnum yfir 55 ára aldri. Þessi jákvæðu áhrif nást með 3 g daglegri inntöku af kreatíni. Noordcode mælir með 5 g skammti á dag. AstraGin®, einstök viðbót AstraGin® er einkaleyfisvarið seyði úr rótum Panax notoginseng og Astragalus membranaceus, þróað af NuLiv Science. Þessar jurtir eru hluti af hefðbundinni austurlenskri jurtafræði og AstraGin® hefur verið rannsakað klínískt fyrir áhrif sín á upptöku næringarefna í þörmum. NZVT vottað fyrir keppnisíþróttafólk Noordcode Creatine Pro er NZVT vottað, sem er hollenska öryggiskerfið fyrir bætiefni í afreksíþróttum. Hver framleiðslulota er prófuð og staðfest að innihaldi engin dóptengd efni, sem gefur keppnisíþróttafólki fulla tryggingu. Skammtur og notkun Ein sleif (5 g) á dag, hrært vel saman við vatn, próteindrykk eða annan drykk að eigin vali. Duftið leysist ekki að fullu upp og því er best að drekka strax eftir blöndun. Ein dós inniheldur 150 g, eða 30 skammta.