- Án
melatóníns - Án
GABA - 2 hylki
fyrir háttinn - Vegan
hylki
Umsagnir viðskiptavina
4,6
8 staðfestar umsagnir
Það sem viðskiptavinir segja
Betri svefn
Sex af átta umsögnum nefna svefninn beint: að fólk sofi betur, sofni fljótar eða finni mun á svefninum.
Ró á kvöldin
Viðskiptavinir lýsa því að þeir nái frekar ró og slökun áður en þeir fara að sofa.
Betri en búist var við
Nokkrir höfðu litla trú á vörunni í byrjun og passa nú upp á að eiga hana alltaf til.
„Núna passa ég alltaf upp á að eiga nóg því þetta er algjörlega að bjarga svefninum hjá mér.“Vilborg Vilmundardóttir · Staðfest umsögn
Allar umsagnirnar eru neðar á síðunni.
Fer vel saman
Svefn Byltingin og Magnesíum Byltingin
Tvær vörur frá BiOptimizers, hannaðar fyrir kvöldið.
Magnesíumið í Svefn Byltingunni er lítið, 35 mg í skammti, og kemur ekki í stað daglegs magnesíums. Magnesíum Byltingin er daglegi grunnurinn: sjö form af magnesíum, B6-vítamín og mangan í einu hylki með kvöldmatnum.
Saman gefa ráðlagðir skammtar 285 mg af magnesíum. Of mikið magnesíum getur haft losandi áhrif, svo ekki fara yfir ráðlagðan skammt á hvoru glasi.
Kvöldrútína í tveimur skrefum
Með kvöldmat: Magnesíum Byltingin
Fyrir háttinn: Svefn Byltingin
Hvað er í hylkjunum
Sjö efni í einni kvöldblöndu
Í tveimur hylkjum eru þrjár amínósýrur og jurtaþykkni ásamt B6-vítamíni, magnesíum og sinki.
Fyrir hverja?
- Þá sem vilja einfalda kvöldrútínu
- Þá sem vilja kvöldblöndu án melatóníns
- Þá sem taka Magnesíum Byltinguna og vilja para þær saman
- Glýsín588 mg
- L-theanine200 mg
- Taurine200 mg
- Magnólíubörkur75 mg
- Magnesíum35 mg
- B6-vítamín2,4 mg
- Sink1,5 mg
Efnin
Hvað er hvert efni?
Blandan byggir á amínósýrum og jurtaþykkni frekar en hormónum. Hér er stutt lýsing á hverju efni og hvaðan það kemur.
Glýsín
Minnsta amínósýran. Líkaminn framleiðir hana sjálfur og hún finnst meðal annars í kjöti, fiski og kollageni.
L-theanine
Amínósýra sem finnst náttúrulega í telaufum.
Taurine
Amínósýra sem finnst meðal annars í kjöti og fiski.
Magnólíubörkur
Þykkni úr berki magnólíutrésins, staðlað á 2% honokiol og magnolol.
B6-vítamín, magnesíum og sink
B6-vítamín sem pyridoxal-5'-phosphate, magnesíum sem bisglycinate og sink sem picolinate.
Ávinningur
B6-vítamín og sink
Í tveimur hylkjum eru 2,4 mg af B6-vítamíni og 1,5 mg af sinki.
Þetta eru viðurkennd hlutverk B6-vítamíns og sinks.
Taugakerfið
B6-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi.
Þreyta
B6-vítamín stuðlar að því að draga úr þreytu.
Hormónastarfsemi
B6-vítamín stuðlar að stjórnun hormónastarfsemi.
Hugsun
Sink stuðlar að eðlilegri vitsmunastarfsemi.
Vernd frumna
Sink stuðlar að því að vernda frumur gegn oxunarálagi.
Næringargildi
Hvað er í hverjum skammti
Næringarupplýsingar
Skammtur 2 hylki · 30 skammtar
| Innihald | Í 2 hylkjum | % NV* |
|---|---|---|
| B6-vítamínsem pyridoxal-5'-phosphate | 2,4 mg | 171% |
| Magnesíumsem magnesíum bisglycinate | 35 mg | 9% |
| Sinksem sink picolinate | 1,5 mg | 15% |
| glýsín | 588 mg | ** |
| taurine | 200 mg | ** |
| L-theanine | 200 mg | ** |
| Magnólíubarkarþykknistaðlað á 2% honokiol og magnolol | 75 mg | ** |
*NV = næringarviðmiðunargildi · **NV ekki skilgreint
Önnur innihaldsefni: hylkisskel (hypromellose), örkristallaður sellulósi, ascorbyl palmitate.
Notkun
Einföld kvöldrútína
Svefn Byltingin er tekin á kvöldin, um klukkustund áður en þú ferð að sofa.
- 1
Taktu 2 hylki um klukkustund fyrir háttinn.
- 2
Með fullu vatnsglasi.
- 3
Ekki fara yfir ráðlagðan skammt sem er tvö hylki á dag.
Gott að vita
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða tekur lyf skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Fyrir hverja er Svefn Byltingin?
Varan hentar meðal annars þeim sem vilja einfalda kvöldrútínu; þeim sem vilja kvöldblöndu án melatóníns; og þeim sem taka Magnesíum Byltinguna og vilja para þær saman.
Inniheldur Svefn Byltingin melatónín?
Nei. Svefn Byltingin inniheldur ekkert melatónín. Hún byggir á amínósýrunum glýsíni, L-theanine og taurine, magnólíuberki, B6-vítamíni, magnesíum og sinki.
Inniheldur hún GABA?
Nei, það er ekkert GABA í formúlunni.
Hvenær á að taka hana?
Taktu tvö hylki með vatnsglasi um klukkustund áður en þú ferð að sofa.
Má taka hana með Magnesíum Byltingunni?
Já, vörurnar eru hannaðar til að nota saman. Taktu Magnesíum Byltinguna með kvöldmatnum og Svefn Byltinguna fyrir háttinn. Saman gefa ráðlagðir skammtar 285 mg af magnesíum, svo ekki fara yfir ráðlagðan skammt á hvoru glasi. Skoða Magnesíum Byltinguna.
Hvað er magnólíubörkur?
Þykkni úr berki magnólíutrésins. Í Svefn Byltingunni er það staðlað á 2% honokiol og magnolol, sem eru náttúruleg efni í berkinum.
Hvað er L-theanine?
Amínósýra sem finnst náttúrulega í telaufum.
Er varan vegan?
Já. Samkvæmt framleiðanda er varan vegan og án glútens og soja. Hylkin eru úr hypromellose, sem er unninn úr plöntutrefjum.
Hvað dugar glasið lengi?
Í glasinu eru 60 hylki, sem dugar í 30 kvöld miðað við tvö hylki á dag.
Ég er á lyfjum, barnshafandi eða með barn á brjósti. Má ég taka hana?
Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú byrjar.
Hvað heitir Svefn Byltingin á ensku?
Sleep Breakthrough frá BiOptimizers.