Vitality Pro
D3+K2 (MK7) vítamín
3.990 kr
D3 vítamín (4000iu) + K2 vítamín (100µg) í lítilli töflu
180 töflur (180 daga skammtur)
Inniheldur engin erfðabreytt efni, gervilitarefni, rotvarnarefni eða bragðefni.
Prófað af þriðja aðila (tilraunastofu), allar niðurstöður birtar (sjá í myndum af vöru)
Hentar fyrir grænmetisætur (ekki vegan)
100% lífrænt niðurbrjótanlegar pakkningar
Getur innihaldið SOJA
Allar Vitality Pro vörur eru framleiddar og prófaðar af þriðja aðila samkvæmt GMP stöðlum og eru ISO9001:2015 gæðavottaðar.
Fæst í Seiðkarlinum.
Vitality Pro
Apigenin|Fyrir svefn, slöku...
6.290 kr
100mg af Apigenin
90 hylki (22-90 daga skammtur)
Náttúrulegt "Apigenin" úr greipaldinshýði
Inniheldur engin erfðabreytt efni, gervilitarefni, bragðefni eða rotvarnarefni
Hentar vegan
100% lífrænt niðurbrjótanlegt efni
Fyrir svefnstuðning er mælt með að taka 1-3 hylki af apigenin 20-30 mínútum fyrir svefn. Ef markmiðið þitt er að auka NAD gildi með því að hindra CD38 ensímið, þá er mælt með að taka 2-4 hylki á dag.
Apigenin hefur slakandi áhrif, svipað og kamilla, þannig að best er að taka það fyrir svefninn.
Allar Vitality Pro vörur eru framleiddar og prófaðar af þriðja aðila samkvæmt GMP stöðlum og er ISO9001:2015 gæðavottað.
Buteyko Clinic
Myotape | Munnplástrar fyri...
frá 3.290 kr
Myotape plásturinn umlykur munninn með gat fyrir varir og er hannaður til að færa varir saman á öruggan máta til þess að stuðla að neföndun.
Hvernig veistu hvort þú sofir með opinn munninn?
Algeng einkenni þess að sofa með opinn munninn eru:
Að vakna þurr í munninum
Andremma
Að vakna með særindi í hálsi
Morgunhöfuðverkur
Af hverju í ósköpunum ætti ég að plástra á mér munninn?
Eftirfarandi er mögulegur ávinningur af því að plástra munninn og stuðla að neföndun í staðinn fyrir munnöndun:
Draga úr munnhrotum:
Við vitum að hrotur minnka gæði svefns þíns og makans þíns. Það að anda með opinn munninn getur ýkt hrotur þar sem öndunarvegurinn verður þurr og þröngur. Auka rúmmálsflæðið sem verður við oföndun með munni býr til hringiðu í nefi, munni og hálsi og ýtir undir hrotur. Með því að auka grunna, rólega neföndun geturðu dregið úr einkennum hrota og kæfisvefns og farið í slökunarástand.
Bæta kæfisvefn og styðja CPAP (kæfisvefnsvélar)
Kæfisvefn er ekki þæginlegt ástand og truflar svefn, ásamt því að geta valdið einkennum á borð við kvíða, þunglyndi, hjartavandamálum og háþrýstingi. Munnöndun er einn þáttur kæfisvefns. Rannsóknir hafa sýnt að kæfisvefnsvélar virka ekki sem skyldi vegna munnöndunar og fer þá loftið fram hjá munninum í stað þess að komast í öndunarveginn. Með því að nota neföndun þá nýtisti kæfisvefnsvélin þín betur.
Hjálpa við einbeitingu, bæta svefngæði og minnka þreytu:
Þegar við verðum fyrir svefntruflunum, verður allt erfiðara... Þú vaknar upp pirruð/pirraður, átt erfiðara með einbeitingu, framleiðnin minnkar og stressið eykst. Hæga, djúpa öndunin sem þú framkvæmir þegar þú andar með nefinu hjálpar nægu súrefni að komast í heilann þannig að þú hugsir skýrar. Það virkjar einnig parasympatíska taugakerfið og kallar þannig fram slökun.
Draga úr astma einkennum
Astma, nefslímubólga og bólgur haldast í hendur og er það þess vegna sem svo margir sem eiga við öndunarerfiðleika að glíma eru með stíflur í nefi. Það skapar vítahring af stífluðu nefi, pirringi í öndunarvegi, stífluðu nefi og ennþá meiri munnöndun. Jafnvel þótt þú finnir ekki fyrir því þá eru gæði svefnsins þíns verri ef þú ert með stíflað nef vegna ofnæmis, astma eða nefslímubólgu þá ertu tvisvar sinnum líklegri til að upplifa meðal til alvarlegra svefntruflana vegna þessa. Ef þú ert með astma þá getur það að skipta í neföndun úr munnöndun bætt lífsgæði til muna. Margir finna fyrir um helmingi minni einkenna eftir að hafa skipt.
Bæta munn- og tannheilsu:
Sýnt hefur verið fram á að munnöndun valdi tannskemmdum, tannholdssjúkdómum og andremmu. Það er mjög auðvelt að vita hvort þú hafir sofið með munninn opinn eða lokaðan, því þú vaknar með þurran munn og vont bragð í munninum ef þú hefur sofið með munninn opinn og notað munnöndun. Munnvatn er mjög mikilvægt fyrir góða meltingu og hjálpar að halda munninum rökum, hreinum og hlutlausu sýrustigi.
Draga úr kvíða:
Neföndun virkar eins og áður hefur komið fram parasympatíska taugakerfið sem er frábær leið til að minnka einkenni kvíða. Það leiðréttir einnig oföndun sem lækkar koltvísýring í blóði (sem er þekkt kveikja á kvíðaköstum)
Auka íþróttaárangur og þrek:
Þegar þú æfir þá er rétt öndun lykill að góðum árangri og þoli. Þegar þú skiptir í neföndun þá stendurðu sjaldnar á öndinni, færð meiri kjarnastyrk og getur dregið úr meiðslum. Þú færð einnig aukið súrefni til vöðva og getur dregið úr áreynsluastma.
Hvernig virkar plásturinn og hvernig er hann ólíkur teipum sem eru notuð til að loka munninum?
Teygjan í plástrinum gefur létta en stöðuga áminningu um að halda vörum saman sem er ólíkt teipum sem halda munninum alveg saman. Plásturinn er hugsaður sem æfingartæki í að halda munni lokuðum og anda með nefinu. Þar sem hægt er að opna munninn og tala eða ef eitthvað óhapp kemur upp þá er það mun öruggara en að teipa munninn alveg saman.
Talið er að það taki um 60 til 90 daga til að breyta venjum og er því mælt með að nota plásturinn í svo marga daga (að sjálfsögðu með að skipta um á hverjum degi).
Athugaðu að velja skegg plásturinn ef þú ert með skegg. Húðin þarf að vera hrein og ekki nýkremuð, annars haldast plástrarnir ekki á.
Seeking Health
B vítamín blanda með virkum...
4.990 kr
Þessi B vítamín blanda frá Seeking Health inniheldur 8 tegundir af B vítamínum.
Fólatatið, B-12, ribóflavín og B6 eru á virku formi.
Blandan inniheldur einnig B vítamín samverkandi kólín til að styðja við metabólisma.
Virka formið af fólati, L-5-MTHF er sérstaklega hentugt til að styðja við þarfir taugakerfisins þar sem þetta er eina tegundin af fólati sem fer í gegnum heilaþröskuld í blóði (blood brain barrier).
Formið (methylcobalamin og adenosylcobalamin) á B-12 í þessari blöndu er mjög auðupptakanlegt.
Níasín er mikilvægt fyrir meltingu, húð, og taugar og er mikilvægt til að breyta mat í orku.
Thíamín (B1): er mikilvægt fyrir orkuskipti líkamans.
Ribóflavín ( B2): er mikilvægt fyrir heilbrigða orku, sterkt ónæmiskerfi, heilbrigt hár og heilbrigða húð og slímhimnur.
P-5-P og B6 er mikilvægt fyrir heilbrigða virkni yfir 100 ensíma, aðallega tengt prótín metabólisma.
Pantóþensýra (B5): aðstoðar hin B vítamínin í að umbreyta fæðu í nothæfa orku. Hún er líka nauðsynlegur hluti af eiginleika líkamans til að búa til fjölbreytt ensím.
Bíótín: styður heilbrigðan kolvetna metabólisma og er nauðsynlegt fyrir heilbrigt hár, heilbrigða húð og neglur.
Seeking Health
Histamin Nutrients|Næringar...
9.790 kr
Of mikið histamín í líkamanum getur valdið einkennum eins og að roðna snöggt, nefrennsli, svefnvandamálum og/eða höfuðverkjum.
Þessi einkenni geta komið fram þegar hægist á ensímavirkni í histamine ferlinu. Þó að DAO sé aðalensímið sem brýtur niður matartengt histamín í meltingunni, þá taka önnur ensím einnig þátt.
Þessi blanda var hönnuð til að styðja við öll histamín tengdu ensímin, ekki bara DAO.
Blandan inniheldur sjö nauðsynleg næringar- og andoxunarefni sem styðja við histamín efnaskiptin í hverri frumu.
Óæskilegar aukaafurðir verða til þegar histamín er metabólliserað, eins og ammónía, vetnisperoxíð og acetaldehýð sem geta einnig valdið aukaverkunum og frumuskaða. Histamin Blok PLUS inniheldur einnig bætiefni sem styðja við niðurbrot á þessum efnum.
Hérna eru aðalinnihaldsefnin og tilgangur:
DAO: Inniheldur 5,000 HDU af einkaleyfisvernduðu DAO, aðalensímið sem brýtur niður histamín
Kopar: Styður við DAO ensímið SAMe: Styður við HNMT ensímið, sem er mikilvægt ensím sem styður við niðurbrot á histamíni Alpha Keto-Glutarate: Styður við niðurbrot á ammíníu Riboflavin: Styður við MAOA og MAOB ensímin sem vinna á aukaafurðum histamín niðurbrots.Sink og B3 Vítamín: Stuðningur við ALDH ensíma fjölskylduna sem hjálpar við að brjóta niður acetaldehýð.
Ráðlagður dagsskammtur:
2 hylki hvenær sem er yfir daginn. Þú getur prófað að taka 2 hylki fyrir svefninn, það getur hjálpað til við að sofna. Athugið að það er níasín í vörunni sem getur valdið níasín "flushi" sem er ekkert hættulegt en þá roðnarðu vel og finnur smá kláða. Ef þú ert færð svona (og vilt ekki) þá er um að gera að borða mat með bætiefnunum.
Athugið að þessi vara hentar EKKI vegan og grænmetisætum eða þeim sem eru með ofnæmi fyrir svínakjöti.
Seeking Health
Prenatal Essentials |Öll na...
4.990 kr
Einföld meðgöngubætiefni – ekkert umfram nauðsyn.
Mörg meðgönguvítamín innihalda óþarfa innihaldsefni, en meira er ekki alltaf betra.† Prenatal Essentials veitir aðeins þau nauðsynlegu vítamín og steinefni sem styðja heilbrigða meðgöngu – hvorki meira né minna.† Það er hannað fyrir konur sem vilja hágæða og hagkvæmt meðgöngubætiefni án óþarfa aukefna.
Hentar þetta þér?
Hentar vel ef þú borðar hollt og fjölbreytt fæði, vilt þægilegan 2-hylkja skammt, leitar að hagkvæmu og vönduðu meðgönguvítamíni, þarft grunnnæringarefni en ekki sterka skammta og kýst lífvirk form næringarefna.
Helstu kostir
Styður heilbrigðan þroska heila og taugakerfis með metýleruðu fólati, B12 og TMG.† Virk form A-vítamíns styðja eðlilegan þroska augna, húðar, ónæmiskerfis og heila.† D-vítamín (D3) og K2 styðja ónæmi, beinheilsu, skap og hugræna starfsemi.† Andoxunarefni eins og C-vítamín, E-vítamín, sink og selen styðja náttúrulegar varnir líkamans.† Virkt B6-vítamín (P-5-P) styður meltingarþægindi og getur hjálpað við væga ógleði á meðgöngu.†
Fyrir öll stig
Má taka fyrir, á meðan og eftir meðgöngu til að styðja frjósemi, meðgönguheilsu, eðlilegan fósturþroska, bata eftir fæðingu og brjóstagjöf.
Prenatal Essentials styður vellíðan og orku – svo þú getir einbeitt þér að heilbrigðri meðgöngu og heilbrigðu barni.
Seeking Health
Methyl B12 with L-Methylfolate
4.390 kr
B-12 Vítamín með L-5-MTHF er fyrir alla þá sem vilja:
Styðja á náttúrulegan hátt við MTHFR stökkbreytingar.
Styðja gott skap og og góða orku.
B-12 vítamín er nauðsynlegt til þess að mynda heilbrigð rauð blóðkorn, fyrir orkuframleiðslu, stuðning við taugakerfið, heilavirkni og reglun hómócysteins.
Fólat á formi L-5-MTHF tekur einnig þátt í hómócystein metabólisma og styður metýlun og virkni taugakerfis.
Seeking Health
Optimal Magnesium (glycinat...
4.990 kr
Þessi blanda frá Seeking Health inniheldur malate form (80%) og glycinate (20%). Flestir þola þessa blöndu vel og fá ekki meltingaróþægindi eins og algengt er með sum önnur form af magnesíumi. Margir segjast ekki þola magnesíum og fá niðurgang en eru þá mögulega að taka form af magnesíumi sem þekkt eru fyrir að valda meiri meltingaróþægindum.
Magnesíum er talið eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans. Það tekur þátt í yfir 600 mismunandi lífefnafræðilegum viðbrögðum líkamans [1-18].
Designs for Health
Taurín + Glýsín duft | 50 s...
6.990 kr
Þessi þétta blanda af táríni og glýsini er vandlega samsett til að tryggja hæfilega inntöku þessara amínósýra og styðja þannig mikilvægar líffræðilegar starfsemi sem tengjast heilbrigðri öldrun.
Taurine + Glycine Powder er einstök blanda sem sameinar 3 g af táríni og 2 g af glýsini í hverjum skammti til að styðja við heilbrigða öldrun.
Þessar tvær amínósýrur styðja hjarta- og æðakerfið, andoxunarstöðu líkamans, heilsu hvatbera og frumna, heilbrigða bólgusvörun, svefn og minni.
Glýsín er nauðsynlegt fyrir myndun glútaþíons, öflugs andoxunarefnis, og er einnig byggingarefni í bandvef.
Tárín styður við efnaskiptajafnvægi með því að hjálpa til við að viðhalda heilbrigðum blóðþrýstingi og stuðla að eðlilegum sykru- og fituefnaskiptum.*
Magn táríns og glýsíns getur minnkað með aldri og getur verið ófullnægjandi hjá þeim sem borða lítið prótein eða fylgja grænmetis- eða veganmataræði. Því getur Taurine + Glycine Powder stutt við heilsu og vellíðan þegar við eldumst.
Biostack Labs
NAD Regen|Háþróað bætiefni ...
10.990 kr
Fæst í Heilsuveri líka.
Byltingarkennt NAD+ bætiefni sem talið er styðja orkuframleiðsluna, heilavirkni og heilbrigða öldrun. Athugið þeir sem keyptu blönduna fyrst hjá okkur að innihaldið hefur aðeins breyst.
Hvað er NAD+?
Þegar við eldumst þá lækkar NAD+ í líkamanum. NAD+ er náttúrulega eldsneytið sem sérhver fruma treystir á til að halda áfram að virka eins vel eins og vel smurð vél.
NAD+ gildi okkar lækka allt að 50% á aldrinum 40-60 ára sem gerir það erfiðara fyrir líkamana okkar að framleiða þá orku sem við þurfum til að viðhalda góðri heilsu.
Án nægilegs magns af NAD+ brotnar orkuflutningur í frumunum niður sem leiðir til aldurshraðandi truflunar á starfsemi hvatbera.
Lægri NAD+ gildi og lækkun á SRT1 og SIRT3 ensímum geta leitt til fjölmargra heilsufarsvandamála svo sem æðabólgu, þreytu, tap á vöðvastyrk, sykursýki, insúlínviðnámi og fitulifur.
Innihald:
Niacinamide
NAD3® (Wasabi Extract, Theacrine, Cuprous Niacin)
Resveratrol 50% (Polygonum cuspidatum)
Astragalus membranaceus (root) and Panax notoginseng (root)(as AstraGin®)
Spermidine HCL (sem Yüth™)
(Lítið magn af kopar)
Sjá nánar um vísindin bakvið vöruna neðar á síðunni.
Framleiðendur mæla með að taka vöruna í 12 vikur til þess að ná að hækka NAD gildin og finna mun. Sumir finna mun strax en fyrir aðra tekur það lengri tíma.
Athugið að margir eru að skipta úr NMN í NAD Regen erlendis vegna betri virkni.
Designs for Health
GI Revive | Öflug meltingar...
frá 12.250 kr
Framúrskarandi blanda af róandi jurtum og næringarefnum sem styður heilbrigða þarmaslímhúð og bætir meltingarheilsu.
GI Revive® er öflug 15-í-1 formúla sem sameinar valin næringarefni og jurtir til að veita heildrænan stuðning við heilbrigði og starfsemi meltingarvegarins.
Slímhúð meltingarvegarins þarf að vera nægilega gegndræp til að taka upp næringarefni, en á sama tíma skapa vörn gegn eiturefnum, ofnæmisvökum og ákveðnum örverum.
Innihaldsefni þessarar formúlu hjálpa til við að viðhalda heilbrigðri starfsemi þarmanna með því að húða og róa slímhúðina og styðja við náttúrulegt viðgerðarferli líkamans.
Varan er bæði til í duftformi sem er sætt með stevíu og munkfrúarþykkni og má auðveldlega blanda í hvaða drykk eða annarra duftblöndu sem er, ásamt hylkjum.
GI Revive® styður heilbrigði meltingarvegarins, jafna bólgusvörun og reglulega þarmahreyfingu.
Vörulínan frá Designs for Health er hönnuð með hliðsjón af ítarlegum rannsóknum og gæðum.
Designs for Health
Calcium D-Glucarate | Stuðn...
5.990 kr
Calcium D-Glucarate frá Designs for Health er hágæða bætiefni sem styður við náttúrulegt afeitrunarkerfi líkamans og eðlilegt hormónajafnvægi.
D-glúkarat er efni sem myndast í litlu magni í líkamanum og finnst einnig í ávöxtum og grænmeti eins og eplum, sítrusávöxtum, spergilkáli og káli. Þetta form er bundið kalsíum fyrir stöðugleika og stuðlar að eðlilegum ferlum í lifur og meltingu.
Vinnan við að losa úrgangsefni og endurvinna hormón fer fram stöðugt í líkamanum. Calcium D-Glucarate styður þetta ferli á náttúrulegan hátt.
Hentar þeim sem vilja styðja við:• Eðlilega afeitrun líkamans• Hormónajafnvægi og vellíðan• Heilbrigðan efnaskiptastuðning
Apex Energetics
Trizomal Glutathione|NAC+Li...
10.990 kr
Trizomal™ Glutathione er byltingarkennd formúla þar sem blandað er saman tveimur mismunandi tegundum af liposomal glutathione með N-acetyl-L-cysteine (NAC).
Formúlan er talin styðja líkamann á þrjá vegu til að auka og hámarka glutathione gildi:
Innanfrumu með S-acetyl L-glutathione
Innanfrumulífmyndun með NAC
Innan- og utanfrumu (kerfis stuðningur) með reduced glutathione (SAG)
Athugið að glerflaskan inniheldur 47 dagskammta.
Liposomal S-acetyl L-glutathione-ið í formúlunni gefur einnig tvöfalt lag (asetýlering+lípósóm) til að vernda glutathione sameindina sem gefur meira aðgengi innanfrumu.
Glútaþíón er nauðsynlegt líffræðilegt andoxunarefni og afeitrunarefnasamband sem er mikilvægt fyrir heilsuna og er virkt í öllum frumum og vefjum.
Glútaþíón virkar sem „meistara andoxunarefnið“ til að vinna gegn oxunarálagi og frumuskemmdum um allan líkamann. Glútaþíon gegnir sérstaklega mikilvægu hlutverki í lifrarheilbrigði og afeitrun, og í heilsu lungna og öndunarfæra.
Skortur á glútaþíóni getur stafað af öldrun, ófullnægjandi neyslu á amínósýrunni cysteini sem inniheldur brennistein í mataræði, eða vegna útsetningar fyrir skaðlegum efnum eins og sveppaeiturefnum (e. mycotoxins), lyfjum, áfengi og umhverfismengun.
Lágt glútaþíón magn er talið geta aukið hættuna á frumuskemmdum vegna sindurefna sem tengjast fjölmörgum heilsufarskvillum tengdum oxunarálagi og bólgu.Rannsóknir sýna að hægt er að hækka magn glutathione-s með bætiefnum eins og þessu. Erfitt er að ná því með glutathione sem er ekki liposomal því það brotnar hratt niður af magasýru, sem skerðir getu þess til að hækka glutathione magn í líkamanum.Liposomal glutathione er mjög stöðugt form glutahione-s sem þolir niðurbrot í maga með því að vera umlukið í feitu „lípósómi“ - hlífðarhjúp sem er búið til með fosfatidýlkólíni sem er unnið úr sólblómalesitíni sem er ekki erfðabreytt.
Liposome tækni veitir vernd gegn oxun og niðurbroti, gerir frásog í þörmum skilvirkara og eykur flutning glútaþíons til frumna og vefja. Nýleg rannsókn benti til þess að hámarkshækkun á glútaþíonmagni hafi náðst innan tveggja vikna eftir lípósómal glútaþíonuppbót hjá heilbrigðum fullorðnum sem tóku annað hvort 500 mg eða 1000 mg á dag.
Algengt er að þessi blanda sé notuð þegar verið er að ná endurheimt eftir umhverfisveikindi. Einnig er blandan mjög vinsæl erlendis sem "anti-aging" bætiefni.
Formúlan kemur í glerflösku.
Varan er glútenlaus og mjólkurlaus (prófað fyrir því)
47 skammtar eru í flöskunni ef tekinn er fullur skammtur.
Hunter & Gather
Hrein tómatsósa án sykurs e...
930 kr
"Great Taste Award Winning" tómatsósa frá Hunter & Gather.
Alvöru innihaldsefni - ekkert drasl.
<1g kolvetni í hverjum skammti
Keto vingjarnlegt og lágkolvetna
Glútenlaust, fræolíulaust og plöntumiðað
Engin efnafræðileg rotvarnarefni
Hunter & Gather
Sriracha sterk sósa úr hrei...
1.140 kr
Sriracha sterk sósa úr hreinum innihaldsefnum er snilldar sósa fyrir þá sem vilja hrein innihaldsefni og elska sterkan mat.
Sósan er gerð úr einföldum og ekta hráefnum, þannig að þú færð ekkert nema það besta.
Hvort sem þú ert á keto fæði eða vilt hafa góða stjórn á kolvetnainntektinni, þá passar þessi sósa fullkomlega inn í matarplanið þitt þar sem hún er lág í kolvetnum. Sósan inniheldur hvorki viðbættan sykur né sætuefni, auk þess er hún glútenlaus, án fræolía og algjörlega plöntumiðuð, sem hentar breiðu úrvali af mataræðiskostum.
Innihaldslýsing:
Rauð paprika (44%), vatn, eplaedik, hvítlaukur (4%), Cayenne pipar, bleikt himalaya salt, koníak rót. (keto, paleó og glútenlaus).
Vitality Pro
Luteolin
6.750 kr
Luteolin er náttúrulegur plöntuflavínóði sem rannsóknir benda til að geti minnkað uppsöfnun öldrunarfrumna og haft taugaverndandi eiginleika.
Hvað er þetta?
Luteolin er náttúruleg plöntusameind, þekkt sem flavóníð, sem finnst í sellerí, steinselju, laukblöðum og rómverskri kamillu.
Rannsóknir benda til þess að það geti haft áhrif á heilsu frumna, sérstaklega með því að miða að öldrunarfrumur. Luteolin er frábrugðið öðrum senolytum, eins og fisetíni og kversetíni, vegna mögulegra áhrifa þess á taugaverndun og heilsu heilans.
Hvernig þetta virkar?
Luteolin hefur senolytíska eiginleika sem þýðir að það miðar valbundið að og hjálpar til við að hreinsa öldrunarfrumur - frumur sem hafa hætt að skipta sér og safnast upp yfir tíma, losandi bólguefni sem skaða nágrannafrumur. Luteolin gæti hindrað vegi sem vernda öldrunarfrumur frá dauða. Með því að trufla þessa verndunarferla leyfir luteolín náttúrulega hreinsun þessara frumna.
Hunter & Gather
Lífræn Grass Fed Beef Tallow
2.750 kr
Lífræn Grass Fed Beef Tallow er framleitt úr 100% suet fitu frá lífrænt grasfóðruðum breskum nautgripum. Þessi hefðbundna eldunarfita inniheldur náttúruleg vítamín A, D, E og K og er vandlega hreinsuð til að veita fjölhæfa og hágæða fitu til daglegrar matargerðar.
Vegna hás reykpunkts hentar nautafeiti vel til steikingar, ofnsteikingar, sauteringar og annarra eldunaraðferða við háan hita. Hún inniheldur blöndu af mettaðri og einómettaðri fitu og er náttúrulega laus við mjólkurvörur og glúten. Varan er framleidd úr einu innihaldsefni og inniheldur engin erfðabreytt hráefni.
Grasfóðruð nautafeiti inniheldur einnig náttúrulega CLA (conjugated linoleic acid), fitusýru sem finnst í fitu jórturdýra, og er því vinsæll kostur fyrir þá sem fylgja keto-, paleo- eða lágkolvetnamataræði.
Natroceutics
Ashwagandha bioactive
4.590 kr
Ashwagandha Bioactive, er frábært streitustjórnunar fæðubótarefni sem inniheldur öflugasta lífvirka ashwagandha þykkni heims, Shoden®.
Með leiðandi 35% styrk af withanolid glýkósíðum, býður þessi nýstárlega samsetning upp á óviðjafnanlega virkni við að stuðla að jafnvægi og orku um líkama og huga.
Umbúðir eru úr gleri og endurvinnanlegum pappa.
Helstu kostir:
Markaðsleiðandi styrkleiki með 35% withanolid glýkósíðum fyrir hámarks verkun og frásog.
Finndu muninn frá fyrsta skammti, með klínískt sönnuðum árangri.
Talið bæta svefngæði, hjálpa líkamanum að hvíla sig og endurhlaða sig náttúrulega.
Stjórna streitu og kvíða, efla ró á náttúrlegan hátt.
Styður við ónæmi og eykur seiglu líkamans fyrir bætta heilsu.
Með rætur í visku Ayurveda, nýtir Ashwagandha Bioactive alda gamla hefð ásamt fremstu vísindum til að hjálpa þér að laga þig að áskorunum lífsins. Hvort sem það er líkamlegt álag, tilfinningalegt eða svefnlausar nætur sem taka sinn toll - þessi viðbót veitir náttúrulega, örugga og áhrifaríka leið til að endurheimta jafnvægi.
Taktu næsta skref í að hámarka heilsu þína.
Natroceutics
CoQ10 + PQQ
4.990 kr
Helstu eiginleikar CoQ10 + PQQ Advanced:
Lífvirkt CoQ10 með PQQ.
Eina CoQ10 sem sannað hefur verið að eykur frumustyrk CoQ10 innan 30 daga.
Sannað að það er þrisvar sinnum aðgengilegra en venjulegt CoQ10.
99,5% hreint PQQ framleitt með náttúrulegri gerjun
Virkt frá fyrsta skammti.
Notar háþróaða afhendingartækni.
Studd af birtum klínískum rannsóknum á mönnum.
Þægilegt hylki á dag.
Natroceutics CoQ10 + PQQ Advanced notar háþróaða afhendingartækni sem eykur verulega frásog CoQ10 í líkamann og eykur styrk þess beint þar sem það telur innan frumanna.
CoQ10 er nauðsynlegt fyrir bestu virkni og heilsu hvatbera innan frumna okkar. Líta má á hvatbera sem orkuver frumna okkar sem veita orku og knýja lífskraft okkar. CoQ10 magn lækkar með aldrinum og getur rýrnað enn frekar vegna lífsstílsvandamála, ákveðinna lyfja og veikinda.
Bare Biology
Hágæða ómega 3 fiskiolía úr...
6.990 kr
Framleiðandinn er að breyta vörunni og verður hún því miður ekki fáanleg fyrr en í janúar. Við bendum á olíuna í millitíðinni, bæði barna og fullorðins.
Life and Soil ómega 3 perlur frá Bare Biology innihalda 1100mg EPA og 500mg af DHA í 2 perlum og er það jafnmikið og úr heilli sardínudós. Olían er úr norskum villtum smáfiski eins og sardínum, ansjósum og makríl sem er vottaður af bæði "Friends of the Sea" og "Marin Trust". Smáfiskur er neðst í fæðukeðjunni og inniheldur hann mun minna magn þungmálma að aðra mengunarvalda eins og plastefni. Smá E vítamíni (tókóferólum) er bætt við til að halda ferskleika.IFOS 5 stjörnu hreinleiki: Hvert framleiðslulota er sjálfstætt prófuð auk tveggja fyrri prófana innanhúss. Til þess að tryggja gagnsæi er hægt að nálgast niðurstöður prófananna hér. Fiskiolíurnar frá Bare Biology innihalda ekki joð og eru geislavirkniprófaðar. Gelhylkin eru úr sjálfbæru fiskigelatíni.
Natroceutics
Activated B-Complex Advanced
5.490 kr
Activated B-Complex Advanced hefur verið framleitt fyrir þá sem eru að leita að ákjósanlegum dagskammti af metýleruðum B-vítamínum.
Blandan er bætt enn frekar með liposomal delivery tækni sem eykur frásog vítamínanna og veitir viðvarandi losun og lífvirkni. Þetta er mikilvægt atriði þar sem B-vítamín eins og B12 frásogast annað hvort illa eða önnur hverfa hratt í venjulegum B-vítamín blöndum.
Helstu eiginleikar Activated B-Complex Advanced:
Alhliða virkjuð B-vítamín blanda
Bætt með L-theanine.
Aukið frásog + lífvirkt
Liposomal afhendingartækni
1 hylki á dag
B-vítamín falla undir hóp, þar af 8 sem hvert um sig hefur sérstakt og mikilvægt hlutverk í heilsunni þar sem sameiginlegi hópurinn hefur margvíslegan ávinning. Ákveðnar aðstæður, lífsstílsþættir og aldur gætu þurft viðbótar B-vítamínstuðning.
Advanced B-Complex veitir ákjósanlegan og yfirgripsmikinn dagskammt með afhendingartækni sem styður við aukið frásog. Varan er sérstaklega gagnleg fyrir einstaklinga sem hafa skerta getu til að taka upp og umbrotna B-vítamín.
Hunter & Gather
Hágæða majónes úr 100% ólív...
1.420 kr
Hreint majónes úr 100% ólívuolíu og án allra aukaafna (og fræolía) og í glerkrukku.
4-6 innihaldsefni.
Meira en 250 ólívur í hverri krukku.
Framleiðsluferlið:
Spænskar ólívur pressaðar (laus við hexane).
Eggjarauða frá frjálsum, breskum hænum frá "Red Lion" vottuðum býlum
Vara unnin í smáum skömmtum í Bretlandi.
Endingartími tryggður með notkun eplaediks og bleiku Himalaya salti.
Innihald: 250g
Hreint: 80% ólívuolía, 9% eggjarauður, eplaedik og bleikt himalaya salt.
Sítrónu: 78% ólívuolía, 9% eggjarauður, eplaedik, 3% sítrónusafi, -börkur og -olía, bleikt himalaya salt og svartur pipar.
Bragð:
Hlaut "Great Taste" gullverðlaun
NoordCode
Organic Power Cacao | Lífræ...
5.990 kr
NoordCode Organic Power Cacao er úrvals blanda af sjaldgæfu hráu Criollo kakói, virkum sveppa-útdrætti og næringarríkum jurtum.
Unnið úr sjálfbærum Criollo kakóbaunum og með lágmarks vinnslu til að varðveita magn andoxunarefna.
Með Lion’s Mane og Chaga útdrætti frá KÄÄPÄ Mushrooms, lífrænu peruversku maca, inulíni og blæ af Ceylon kanil og vanillu, býður upp á bragðgóðan og virkan drykk án viðbætts sykurs.
Lífrænt, vegan og glútenfrítt, og prófað í rannsóknarstofu til að tryggja hreinleika.
Organic Power Cacao hentar fullkomlega í kakó, hristinga eða bakstur.
Roam
Grasfóðraðir nautakjöts pró...
990 kr
Grasfóðraðir þurrkaðir nautakjötsbitar með Jalapeño og chilli bragði. Engin rotvarnarefni og framleidd með aðeins 6 náttúrulegum innihaldsefnum. Óviðjafnanlegt alvöru prótein hvar og hvenær sem er.
6 náttúruleg innihaldsefni
Engin tilbúin rotvarnarefni, sætuefni eða bragðefni.
28,2 g af próteini í 70 g poka.
220 kkal í pokanum
Þegar það hefur verið opnað skaltu geyma í kæli og neyta innan 72 klukkustunda.
Innihaldsefni
Grasfóðrað nautakjöt, rautt jalapenos, mysupróteinþykkni, "chikory root" trefjar, sjávarsalt.
Mögulegir ofnæmisvaldar í feitletruðu.
Næringarupplýsingar
Orka: 314 Kcal / 9233 KJ
Fita (þar af mettuð): 8.9g (4.22g)
Kolvetni (þar af sykur): 4.3g (0.52g)
Prótein: 28.21g
Trefjar: 0.1g
Salt: 2.8g