JAFNVÆGI - SVEFN OG HVÍLD
Magnesíum fyrir svefn
Svefnblöndur
Melatónín og svefnhormónar
Kvöldrútína og slökun
Quicksilver Scientific
Liposomal Magtein í glerflösku
11.290 kr
Öflug magnesíumblanda fyrir hugann, skapið og svefninn.
Liposomal Magtein sameinar einstaka lípósómatækni Quicksilver með heilamiðaða magnesíum L-threonate (Magtein) og hágæða fosfatidýlkólíni (PC) – þekktu fosfólípíði sem styður við heilbrigðar frumuhimnur í heila og eðlilega boðefnaflutninga.
Af hverju Magtein® (magnesíum L-threonate)?
Vísindalega rannsakað innihaldsefni – Þróað út frá rannsóknum við MIT
Nær heilanum – Talið fara yfir blóð-heila þröskuldinn fyrir hámarks áhrif
Talið stuðla að betri minni, einbeitingu og námi – Eykur taugamótanleika (neural plasticity)
Hjálpar til við að róa streitu og styðja djúpan svefn – Stjórnar taugaboðefnum fyrir betra jafnvægi
Snjallari upptaka – Magtein + lípósómatækni tryggir frábæra upptöku og árangur
Designs for Health
Magnesium Citrate | Duft fy...
6.450 kr
Magnesium citrate duft fyrir meltingarveg og svefn.
MagCitrate Powder er þægilegt sítrónubragðbætt duft sem veitir 300 mg af nauðsynlegu steinefni, Magnesium (sem Magnesium Citrate).
Magnesium tekur þátt í yfir 300 lífefnafræðilegum viðbrögðum í líkamanum, þar á meðal þeim sem stjórna framleiðslu frumuorku, vöðva- og taugastarfsemi, og viðhaldi eðlilegs hjartsláttar.
Magnesium Citrate styður hreyfingu í gegnum meltingarveginn og stuðlar að slökun í þörmum, sem er mikilvægt fyrir reglubundnar hægðir. Slakandi eiginleikar Magnesium styðja einnig við almenna slökun og geta stuðlað að góðum svefni.
Fyrir hverja:Þessi formúla er kjörin fyrir einstaklinga sem þurfa aukið magn af Magnesium til að styðja við reglulegar hægðir.
Bioptimizers
Magnesíum byltingin|7 tegun...
6.330 kr
7 tegundir af magnesíum söltum sem hvert hefur sýna eiginleika og heilsuávinning.
Betri nýting vegna þess að B6 vítamíni, mangan og snefilsteinefnum er bætt við.
Öflug blanda fyrir svefn, orku, vöðva, taugar, heilavirkni, bein og tennur.
Magnesíum er talið eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans þar sem það tekur þátt í yfir 600 mismunandi lífefnafræðilegum viðbrögðum líkamans.
Ummælin fyrir neðan tala sínu máli :-) Einnig má sjá má vísindagreinar neðar á síðunni.
Magnesíum Byltingin er einnig til í dufti til þess að blanda í bragðgóða drykki. Hún fæst hér.
Bioptimizers
Magnesíum Byltingin|Drykkur
6.330 kr
8 tegundir af magnesíum söltum sem hvert hefur sýna eiginleika og heilsuávinning.
Betri nýting vegna þess að B6 vítamíni, mangan og snefilsteinefnum er bætt við.
Öflug blanda fyrir svefn, orku, vöðva, taugar, heilavirkni, bein og tennur.
Bragðgott drykkjarform
Magnesíum er talið eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans þar sem það tekur þátt í yfir 600 mismunandi lífefnafræðilegum viðbrögðum líkamans.
Drykkurinn fæst í þremur mismunandi brögðum.
Ummælin fyrir neðan tala sínu máli :-) Einnig má sjá má vísindagreinar neðar á síðunni.
Magnesíum Byltingin er einnig til í hylkjum og fæst hún hér. Athugaðu að magnið af magnesíum í drykknum er lægra en í hylkjunum.
Vitality Pro
Magnesíum Glycinate
5.590 kr
Magnesíum glycinate er fæðubótarefni sem sameinar magnesíum við amínósýruna glýsín. Þetta form af magnesíum frásogast vel og er milt fyrir magann. Það er oft notað til að styðja við beinheilsu, tauga- og vöðvastarfsemi og til að hjálpa við vandamál eins og vöðvakrampa og svefntruflanir.
Magnesium Glycinate (600mg) í hverji hylki
"Fully reacted" - gefur 84mg af magnesíum innihaldi (14%)
120 hylki (30-40 daga skammtur)
Inniheldur engin erfðabreytt efni, gervilitarefni, rotvarnarefni eða bragðefni.
Prófað af þriðja aðila (tilraunastofu), allar niðurstöður birtar (sjá í myndum af vöru)
Hentar fyrir vegan
100% lífrænt niðurbrjótanlegar pakkningar
Glýsín er hluti af magnesíumglýsinati sem hefur reynst hafa róandi áhrif sem getur stutt svefn. Þess vegna er mælt með því að viðbótin sé tekin á kvöldin til að forðast syfju á daginn.
Framleiðendur mæla með að taka 3-4 hylki á dag með eða án fæðu.
Bioptimizers
Svefn Byltingin
5.990 kr
Nýjasta varan frá Bioptimizers, framleiðendum magnesíum byltingarinnar!
Hjálpar til við að endurkvarða sólarhringstaktinn þinn fyrir betri svefn-vöku lotur
Stuðlar að því að þú náir að sofna hraðar.
Talin auka endurnærandi djúpsvefn.
Hjálpar til við að róa mikið af ofhugsanir fyrir svefninn
Engar aukaverkanir eins og margir finna fyrir af melatóníni.
Athugaðu að það er ekki GABA í þessari formúlu, þar sem það virðist að um 10% af fólki örvist frekar af GABA en róist.
Magnesíum byltingin og svefn byltingin henta vel saman.
Healthy Gut
BeSerene™ Daily | Öflugur s...
8.990 kr
Öflug aðlögunarjurtablanda fyrir daglegan stuðning fyrir mildan kvíða, stress og streitu.
Hraðvirk blanda, ættir að geta fundið mun á slökun á huga og líkama á 45 mínútum.
Blandan er talin jafna og stilla streituhormónin og taugakerfið
Talin bæta svefngæði
Hvernig virkar blandan?
BeSerence er talin hjálpa til við að draga úr kvíðahugsunum með því að bæta viðbragð þitt við streitu.
Nýjar rannsóknir sýna að þessar aldagömlu jurtir virka á viðtaka í taugakerfinu sem hjálpa þér að stilla það betur af. Þegar bætiefnið er tekið reglulega (daglega) getur það hjálpað taugakerfinu og látið þig slaka á á náttúrulegan hátt, án aukaverkana.
Flestir finna fyrir virkni innan 45 mínútna með tveimur hylkjum á dag.
Best er að taka blönduna milli klukkan 13 og 19 á daginn. Eftir 30, 60 eða 90 daga er meiri seigla komin í streitukerfið og ættir þú að vera betur í stakk búin/n til að tækla streitu.
Organifi
Organifi Gold kakó Fyrir sl...
9.490 kr
Fæst í Nettó líka :)
Organifi Gold blöndurnar er hugsaðar sem kvölddrykkur eða þegar þú vilt ná þér niður fyrir svefninn eða slaka á.
Það má drekka þær hvenær sem er yfir daginn en flestir kjósa hana á kvöldin.
Blöndurnar er taldar styðja við góðan svefn, endurheimt og til að viðhalda heilbrigðu streitu viðbragði.
Vitality Pro
Apigenin|Fyrir svefn, slöku...
6.290 kr
100mg af Apigenin
90 hylki (22-90 daga skammtur)
Náttúrulegt "Apigenin" úr greipaldinshýði
Inniheldur engin erfðabreytt efni, gervilitarefni, bragðefni eða rotvarnarefni
Hentar vegan
100% lífrænt niðurbrjótanlegt efni
Fyrir svefnstuðning er mælt með að taka 1-3 hylki af apigenin 20-30 mínútum fyrir svefn. Ef markmiðið þitt er að auka NAD gildi með því að hindra CD38 ensímið, þá er mælt með að taka 2-4 hylki á dag.
Apigenin hefur slakandi áhrif, svipað og kamilla, þannig að best er að taka það fyrir svefninn.
Allar Vitality Pro vörur eru framleiddar og prófaðar af þriðja aðila samkvæmt GMP stöðlum og er ISO9001:2015 gæðavottað.
Nu Mind
NuMind|Öflug streitublanda
8.990 kr
NuMind blandan hentar frábærlega fyrir ferðalögin!
Nu Mind fyrirtækið hefur hannað magnaða blöndu sem er talin tækla bæði hugarró og streitu á sama tíma.
Blandan var hönnuð af bræðrum sem voru með mikinn kvíða og kvíðaköst. Þeir voru búnir að leita lengi að lausnum og ákváðu sjálfir að búa til blöndu.
Þeir eru mikið fyrir heilbrigðan lífstíl líka og samþættingu af hlutum eins og hugleiðslu, öndun, mataræði og bætiefnum.
Blandan inniheldur 23 vísindalega rannsökuð innihaldsefni sem talin eru styðja líkamann og hugann. Þar á meðal eru vítamín, steinefni og aðlögunarjurtir. Sjá má allar vísindagreinarnar fyrir hverja tegund af vítamíni og bætiefni í blöndunni hér fyrir neðan undir vísindagreinar.
Blandan byggir á mikilli rannsóknarvinnu til þess að finna bestu lausnina til að hjálpa við streitu og auka hugarró.
Boxið inniheldur pakka af bætiefnum fyrir hvern dag í 30 daga. Í hverjum pakka eru 5 hylki og er einn pakki tekinn á dag.
Við erum einnig með blöndu frá NuMind sem henta fyrir tíðahvörf og fæst hér.
Hylki 1: Nauðsynlegasta: B vítamín, C vítamín, D3 vítamín, sink, járn og joð.
Vítamín og steinefnablanda til að hjálpa við næringarskort og skort á helstu vítamínum og steinefnum sem byggir sterkan grunn til að tækla daglega stress og streitu.
Hylki 2+3: Heildræna hetjan: inniheldur magnesíum glycinate sem er talið vera frábært steinefni til að tækla stress og svefn ásamt 300 lífeðlisfræðilegum ferlum í líkamanum.
Hylki 4: Aldagamli heilarinn: Inniheldur ashwaganda, burnirót, "bacoba monniere", "lemon balm" og svartan pipar.
Inniheldur aðlögunarjurtir sem hafa verið notaðar í þúsundir ára til að draga úr áhrifum stress og streitu.
Hylki 5: "Chill pill": Inniheldur "L-theanine", "lavander", "passion flower" og "chamomile". Inniheldur slakandi blómategundir sem hafa róandi áhrif og og jákvæð áhrif á svefninn, án þess að hafa sljóvgandi áhrif.
Quicksilver Scientific
LipoCalm®|Fyrir slökun og s...
6.990 kr
Fyrir þig, ef þú vilt stuðla að endurnærandi svefni, slökun og viðgerðarham líkamansVirku innihaldsefnin í LipoCalm® geta:- Dregið úr spennu og stuðlað að slökun- Hjálpað þér að komast í góðan nætursvefn- Stytt tímann sem það tekur að sofna og lengt tímann í djúpum, endurnærandi svefni- Boðið upp á hratt og skilvirkt frásog fyrir bestu áhrif vegna fitutækni
LipoCalm® er úrvals svefnformúla sem inniheldur blöndu af PharmaGABA® og öflugum grasaefnum sem eru fullkomlega kvörðuð til að auðvelda líkamanum endurnærandi svefn og heilbrigðan svefnhring.
Heilsuhagur í hnotskurn:Jurtirnar þrjár "Skullcap", "Passion Flower" og "Egyptian Blue Chamomile" olía eru mikið notaðar í evrópskum og amerískum hefðbundnum jurtalækningum til að draga úr spennu, róa eirðarlausan huga og styðja við slökun.Af hverju hún virkar:GABA hamlar eða hægir á taugaboðum og í ljós hefur komið að bætiefnið eykur róandi alfa-bylgjumynstur við krefjandi andleg verkefni.Sýnt hefur verið fram á að náttúrulegt GABA stuðli að slökun og dragi úr tíma sem það tekur að sofna, ásamt því að auka tímann sem varið er í djúpsvefni. Ennfremur stuðlar það einnig að heilbrigðu svefnferli.Glæsilegur miðpunktur þessarar formúlu er GABA, fyrsta taugaboðefnið „róa og tengja, hvíla og gera við“. Notast er við náttúrulega upprunnið GABA sem framleitt er með gerjun af Lactobacillus hilgardii, sem er að finna í kimchi, hefðbundnum kóreskum söltuðum gerjuðum rétti. Við bætist jurta- og ilmkjarnaolíur sem styðja einnig við GABA.Vegna þess að hefðbundnar jurtablöndur til inntöku geta haft lítið aðgengi, þróaði Quicksilver Scientific® liposomal LipoCalm®. Fitukerfi afhendingarkerfis verja sameindir fyrir niðurbroti á sama tíma og það gerir hraðari upptöku.Auk óvenjulegs frásogshraða, auka þessar örsmáu fitu- og nanóblönduðu agnir dreifingu yfir slímhimnur, auka sogæðablóðrás næringarefna og styðja við frumuflutning.Liposomal Phosphatidylcholine býður upp á mikilvæga byggingareiningu fyrir fituríkar heilafrumur.
Nu Mind
NuMind | Stress Support | D...
8.990 kr
Þessi margverðlaunaða allt-í-einni formúla sameinar 23 vísindalega studd innihaldsefni til að styðja alhliða líkama og huga. Einn skammtapoki á dag inniheldur 5 öflugar formúlur – fjölvítamín, steinefni, aðlögnarjurtir, blóm og fleira – sem vinna saman til að hjálpa þér að finna jafnvægi.
Talið:
Stuðla að slökun
Bæta svefngæði
Draga úr þreytu og orkuleysi
Quicksilver Scientific
Liposomal GABA+L-theanine|F...
6.490 kr
Fyrir þig, ef þú ert að leita að vöru sem getur hjálpað þér að slaka á og róa hugannÖflug blanda Liposomal GABA með L-Theanine getur:- Hjálpað til við að koma jafnvægi á taugakerfið- Stutt rólegt skap án þess að sljóvga.
Öflug formúla Liposomal GABA með L-Theanine býður upp á margvíslega slakandi og róandi heilsufarslega ávinninga sem geta bætt huga þinn og skap.
Nutramedix
RelaxMedix ® | Valerian rót...
4.990 kr
Valerian rótar þykkni mætir Samento í samverkandi samsetningu sem miðlar gagnlegum eiginleikum beggja jurtanna.
Samento er fljótandi þykkni sem er búið til úr sjaldgæfri pentasýklískri efnagerð af kattarkló og er frábær stuðningur við ónæmiskerfið.
Heilbrigt ónæmiskerfi er lykillinn að almennri góðri heilsu. Valerian rót getur stuðlað að ró og stutt góðan nætursvefn, en Samento hámarkar heildarvirkni formúlunnar.