D3- og K2-vítamín frá Vitality Pro í einni lítilli töflu á dag. 100 µg af D3 og 100 µg af K2 sem MK-7.
Prófað af óháðri rannsóknarstofu NánarUm vöruna
Af hverju á Heilsubarnum
Við veljum hverja vöru út frá forminu, skammtinum og gæðaprófunum. Hér er D3-vítamínið cholecalciferol og K2-vítamínið MK-7. Hver lota er prófuð af óháðri rannsóknarstofu sem birtir niðurstöðurnar.
Innihald
D3-vítamín 100 µg (4000 IU) sem cholecalciferol. K2-vítamín 100 µg sem menaquinone-7 (MK-7).
Önnur innihaldsefni: örkristallaður sellulósi, díkalsíumfosfat, magnesíumsterat.
Án algengra ofnæmisvalda. Óháð prófun staðfestir að varan inniheldur ekki soja, samkvæmt framleiðanda.
Notkun og varnaðarorð
Ein tafla á dag, helst að morgni, með máltíð sem inniheldur fitu. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Fyrir barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og þá sem taka lyf er gott að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er. Það á sérstaklega við um þá sem taka blóðþynningarlyf, því K-vítamín getur haft áhrif á verkun þeirra.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Fyrir hverja er D3+K2?
- Þá sem búa norðarlega, eins og á ÍslandiStóran hluta ársins stendur sólin of lágt til að húðin myndi D-vítamín.
- Eldra fólkHúðin myndar minna D-vítamín með aldrinum.
- Þá sem vilja D og K saman í einni töflu á dag
- Þá sem eru grænmetisæturVaran hentar grænmetisætum en er ekki vegan, samkvæmt framleiðanda.
- Fullorðna, 18 ára og eldri
5,0
Umsagnir íslenskra viðskiptavina
„Magnið í hverri töflu er það sem ég vil hafa.“Guðrún B. Hallbjörnsdóttir, staðfest umsögn
„Skipti yfir í þetta D vítamín fyrir tæpum 3 mánuðum, var í basli með að ná upp D en hafði verið að taka annað. Fékk mælingu núna og var komin upp að efri viðmiðum.“
B.B.Þ., staðfest umsögn
Fyrstu mánuðirnir
Mestu skiptir að taka D-vítamín daglega. Gildin breytast smám saman.
Fyrsti dagurinn
Ein tafla með máltíð sem inniheldur fitu, til dæmis eggjum, avókadó eða hnetum.
Fyrstu vikurnar
D- og K-vítamín eru fituleysanleg. Gott er að taka töfluna á sama tíma á hverjum degi. Blóðgildin ráðast meðal annars af skammti, upphafsstöðu og upptöku, svo þau breytast mismikið hjá fólki.
Eftir 2 til 3 mánuði
Margir láta mæla D-vítamíngildið hjá lækni eða heilsugæslu til að sjá stöðuna.
Eftir hálft ár
Pakkningin klárast. Í henni eru 180 töflur, ein fyrir hvern dag.
Af hverju K2 með D3?
D-vítamín hjálpar líkamanum að nýta kalk. K-vítamín hjálpar kalkinu að bindast í beinunum.
Bæði stuðla að viðhaldi heilbrigðra beina. D-vítamín stuðlar einnig að eðlilegri upptöku og nýtingu kalks og fosfórs, eðlilegu kalkmagni í blóði, viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi og heilbrigðra tanna og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. K-vítamín stuðlar einnig að eðlilegri blóðstorknun.
Nánar: hvernig vinna D og K saman?
Beinfrumur mynda prótín sem heitir osteókalsín og festir kalk í beinunum. D-vítamín eykur myndun þess, en prótínið getur ekki bundið kalkið fyrr en K-vítamín hefur virkjað það.
Nánar: hvað er MK-7?
K2-vítamín er hópur skyldra efna. MK-7 er það form sem algengast er í fæðubótarefnum. Það helst lengur í blóði en K1-vítamín og hentar því vel til töku einu sinni á dag.
Á hvaða sviðum eru D3- og K2-vítamín rannsökuð?
D3- og K2-vítamín hafa einkum verið rannsökuð á þremur rannsóknarsviðum, samkvæmt framleiðanda.
- Bein
- Ónæmiskerfi
- Hjarta og æðakerfi

Jurtaplast úr sykurreyr
Pakkningin er úr jurtaplasti sem er unnið úr sykurreyr, samkvæmt framleiðanda.
Hún er vottuð jarðgerðarhæf í iðnaðarjarðgerð samkvæmt evrópska staðlinum EN 13432 og er líka endurvinnanleg.

Prófað af óháðum rannsóknarstofum
Vitality Pro lætur óháðar rannsóknarstofur með faggildingu samkvæmt ISO/IEC 17025, alþjóðlegum staðli fyrir rannsóknarstofur, prófa hverja vöru og birtir niðurstöðurnar. Vörurnar eru framleiddar samkvæmt GMP, alþjóðlegum reglum um góða framleiðsluhætti. Fyrirtækið er með gæðavottun samkvæmt staðlinum ISO 9001.
- Nýjasta lotan var prófuð fyrir innihaldi D3- og K2-vítamíns og fyrir örverum.
- Án erfðabreyttra efna, gervilitarefna, rotvarnarefna og bragðefna.
Nánar: hvernig Vitality Pro prófar vörurnar
Vitality Pro prófar þrjá þætti, samkvæmt framleiðanda.
Rétt efni í réttu magni. Virka efnið er greint og magn þess mælt, svo staðfest sé að varan standist það sem stendur á miðanum.
Hreinleiki og óhreinindi. Hreinleiki efnisins er metinn og leitað að óhreinindum. Þar sem við á er líka prófað fyrir þungmálmum, varnarefnum og örverum, því ólík hráefni bera ólíka áhættu.
Aðferðirnar sjálfar. Niðurstaða er aðeins jafn góð og aðferðin á bak við hana. Vitality Pro fer yfir greiningaraðferðir, viðmiðunarefni og niðurstöður. Ef niðurstaða vekur spurningar er hún skoðuð nánar.
Prófanirnar fylgja vörunni alla leið:
- Birgjar. Aðeins birgjar sem standast kröfur um skjölun, rekjanleika og gæði.
- Hráefni. Hvert hráefni er prófað við komu: hvort það sé rétt efni, hvort það sé mengað og hvort það standist forskrift.
- Framleiðsla. Fylgst er með þyngd hylkja eða skammta, jafnri blöndun og öðrum mikilvægum þáttum.
- Tilbúin vara. Hver lota er prófuð af óháðri rannsóknarstofu, niðurstöðurnar eru yfirfarnar og vottorðin birt.
Vottorð nýjustu lotu
Næringarupplýsingar
Skammtur 1 tafla · 180 töflur
| Innihald | Magn |
|---|---|
| D3-vítamínsem cholecalciferol, 4000 IU | 100 µg |
| K2-vítamínsem menaquinone-7 (MK-7) | 100 µg |
Önnur innihaldsefni: örkristallaður sellulósi, díkalsíumfosfat, magnesíumsterat.
Algengar spurningar
Hvenær á að taka vöruna?
Framleiðandinn mælir með einni töflu að morgni, með máltíð sem inniheldur fitu. D- og K-vítamín eru fituleysanleg og eru tekin upp ásamt fitunni úr matnum.
Hversu mikið D-vítamín er í töflunni?
100 µg, sem eru 4000 IU (alþjóðlegar einingar).
Á hvaða formi er K2-vítamínið?
Sem menaquinone-7 (MK-7), 100 µg í töflu. MK-7 er það form K2-vítamíns sem algengast er í fæðubótarefnum og helst lengur í blóði en K1-vítamín.
Hvað dugar pakkningin lengi?
Í pakkningunni eru 180 töflur, sem duga í 180 daga.
Ég tek blóðþynningarlyf. Má ég taka vöruna?
Það er gott að ráðfæra sig við lækni fyrst, því K-vítamín getur haft áhrif á verkun sumra blóðþynningarlyfja.
Inniheldur varan ofnæmisvalda?
Nei. Varan er án algengra ofnæmisvalda og óháð prófun staðfestir að hún inniheldur ekki soja, samkvæmt framleiðanda. Önnur innihaldsefni eru örkristallaður sellulósi, díkalsíumfosfat og magnesíumsterat.
Hentar varan grænmetisætum?
Já, en hún er ekki vegan, samkvæmt framleiðanda.
Er varan prófuð?
Já. Óháð rannsóknarstofa með faggildingu samkvæmt ISO/IEC 17025 prófar hverja lotu. Vottorð nýjustu lotu eru undir Gæði hér ofar á síðunni.
Úr hverju eru umbúðirnar?
Úr jurtaplasti úr sykurreyr, samkvæmt framleiðanda. Pakkningin er vottuð jarðgerðarhæf í iðnaðarjarðgerð (EN 13432) og er líka endurvinnanleg.

Ein tafla á dag með máltíð
D3 og K2 frá Vitality Pro. 180 töflur sem duga í hálft ár. Pakkningin er úr jurtaplasti úr sykurreyr.
Oft keypt saman
-
D3- og K2-vítamín (MK-7)Þessi vara
4.990 kr.
-
Magnesíum byltingin
6.330 kr.
-
Beinaseyðis prótein úr grasfóðruðum nautgripum
8.990 kr.


