Liposomal PC, Phosphatidylcholine blanda frá BodyBio

Liposomal PC|Phosphatidylcholine blanda

8,290 kr

Liposomal PC|Phosphatidylcholine blanda

8,290 kr

Liposomal PC|Phosphatidylcholine blanda

Form

Á vökvaformi - 118ml Á vökvaformi - 237ml Á vökvaformi - 473ml 100 mjúkgel 300 mjúkgel
8,290 kr

Fosfólípíðblanda með phosphatidylcholine frá BodyBio.

  • 1300 mg fosfólípíð í dagskammti
  • Unnið úr sojalesitíni, með hörfræolíu
  • Vökvi: 118, 237 eða 473 ml
  • Mjúkhylki: 100 eða 300

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • 1300 mg
    fosfólípíð
  • Phosphatidyl-
    choline
  • Vökvi eða
    mjúkhylki
  • Úr
    sojalesitíni
BodyBio BodyBio PC

BodyBio

Fosfólípíðblanda

BodyBio PC er blanda af fosfólípíðum unnin úr sojalesitíni. Mest er af phosphatidylcholine, en í blöndunni eru líka phosphatidylethanolamine og phosphatidylinositol.

Í dagskammti, hálfri teskeið af vökva eða tveimur mjúkhylkjum, eru 1300 mg af fosfólípíðum. Kaldpressaðri hörfræolíu er bætt við.

Fyrir hverja?

  • Þá sem vilja phosphatidylcholine á fljótandi formi eða í mjúkhylkjum
  • Þá sem vilja fosfólípíðblöndu úr sojalesitíni

Stærðir

Vökvi eða mjúkhylki

118 ml

Vökvi

Minnsta flaskan.

237 ml

Vökvi

Miðstærðin.

473 ml

Vökvi

Stærsta flaskan.

100 mjúkhylki

50 skammtar

Tvö mjúkhylki á dag.

300 mjúkhylki

150 skammtar

Tvö mjúkhylki á dag.

Fosfólípíð

Hvað er phosphatidylcholine?

Fosfólípíð eru fituefni sem finnast í himnum allra frumna. Phosphatidylcholine er það fosfólípíð sem mest er af í þeim.

Í fæðu finnast fosfólípíð meðal annars í eggjarauðu, soja og sólblómafræjum. Lesitín er heiti á blöndu fosfólípíða, og úr því er BodyBio PC unnið.

Framleiðandinn lýsir blöndunni sem fjórum helstu fosfólípíðunum í frumuhimnum, þar sem phosphatidylcholine er í mestu magni.

Lípósóm

Hvað þýðir liposomal?

Fosfólípíð hafa vatnssækinn enda og fitusækinn enda. Í vatni raða þau sér í tvöfalt lag og geta myndað örsmáar kúlur, sem kallast lípósóm.

Samkvæmt framleiðanda er BodyBio PC lípósómal fosfólípíðblanda.

Tvö form

Vökvi eða mjúkhylki

VökviMjúkhylki
Dagskammtur½ teskeið (2,5 ml)2 mjúkhylki
Fosfólípíð1300 mg1300 mg
Etanól5 til 8%3 til 5%
HylkisskelEnginGelatín (nautgripa)
Stærðir118, 237 og 473 ml100 og 300 mjúkhylki

Sami skammtur af fosfólípíðum er í báðum formum. Mjúkhylkin henta vel þeim sem vilja ekki bragðið af vökvanum.

Gæði

Framleitt í New Jersey

BodyBio er fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir vörurnar sínar í New Jersey í Bandaríkjunum. Vörurnar eru prófaðar af óháðum aðilum, samkvæmt framleiðanda.

Næringargildi

Næringarupplýsingar

Næringarupplýsingar

Skammtur ½ teskeið (2,5 ml) af vökva eða 2 mjúkhylki

Í dagskammti
Fosfólípíðblanda (phospholipid complex)phosphatidylcholine, phosphatidylethanolamine, phosphatidylinositol1300 mg
Fita1,5 g

Innihald í vökva: sojalesitín, kaldpressuð hörfræolía, hreinsað vatn, etanól.

Innihald í mjúkhylkjum: sojalesitín, kaldpressuð hörfræolía, etanól, gelatín (nautgripa), glýseról, hreinsað vatn.

Notkun

Einu sinni á dag með mat

  1. 1

    Vökvi: ½ teskeið (2,5 ml) á dag með mat.

  2. 2

    Mjúkhylki: 2 mjúkhylki á dag með mat.

Gott að vita

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar, samkvæmt framleiðanda.

Inniheldur soja.

Meira frá BodyBio

Frá sama framleiðanda

Butyrate: sodium butyrate í hylkjum.
Calm: taurine, glycine, rhodiola og phosphatidylserine í hylkjum.
ReMineralize: fljótandi steinefnaþykkni með magnesíum.
E-Lyte: fljótandi steinefnasölt út í vatn.

BodyBio

Bandarískt fjölskyldufyrirtæki í New Jersey sem framleiðir fosfólípíð, fitusýrur og steinefni.

Skoða vörumerkið

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er BodyBio PC?

Varan hentar meðal annars þeim sem vilja phosphatidylcholine á fljótandi formi eða í mjúkhylkjum og þeim sem vilja fosfólípíðblöndu úr sojalesitíni.

Hvað er í BodyBio PC?

Fosfólípíðblanda úr sojalesitíni, þar sem mest er af phosphatidylcholine, ásamt kaldpressaðri hörfræolíu.

Hvað er mikið af fosfólípíðum í dagskammti?

1300 mg í ½ teskeið af vökva eða tveimur mjúkhylkjum.

Hver er munurinn á vökvanum og mjúkhylkjunum?

Sami skammtur af fosfólípíðum er í báðum. Mjúkhylkin eru úr gelatíni og henta þeim sem vilja ekki bragðið af vökvanum.

Er alkóhól í vörunni?

Já, etanól er í innihaldinu. Í vökvanum er það 5 til 8% og í mjúkhylkjunum 3 til 5%, samkvæmt framleiðanda.

Hvernig á að taka það?

½ teskeið af vökva eða 2 mjúkhylki á dag með mat.

Inniheldur það soja?

Já, fosfólípíðin eru unnin úr sojalesitíni.

  • 5 stars: 6 (86%)
  • 4 stars: 0 (0%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 1 (14%)
V
V.F.
Loksins fékk ég alvöru bata

Á 8 vikum á stórum skammti af PC fékk ég meiri bata en ég hafði fengið rúma eina og hálfa árið á undan sem ég hafði verið í endurhæfingu. Aukin orka, bættur svefn og geta til að gera meira á einum degi en ég hef getað gert lengi tengi ég beint við það að bæta þessari olíu inn hjá mér. Gæti ekki verið þakklátari fyrir að hafa kynnst þessari olíu!

S
S.H.
Virkaði gegn þreytuköstum eftir mygluveikindi

Ég hafði þjáðst um nokkuð skeið af þreytukostum eftir að ég veiktist illa v/myglu þótt ég væri flutt í nýtt húsnæði. Ég hafði ekki þrek fyrir heilan vinnudag og þurfti ofta að hvíla mig ef ég æfði eða hreyfði mig of mikið. Til að byrja með þoldi ég olíuna ekki, hætti en byrjaði svo á minni skömmtum, 1 tsk á morgnana. Ég fékk fyrst um sinn nánast alltaf þreytukast upp úr hádegi en svo hættu þau að koma. Ég tók oliuna í nokkra mánuði og get nú t.d. farið á skíði dag eftir dag án þess að þurfa að liggja á sófanum eftir á! Ég hef meira úthald og hef getað lengt vinnudaginn. Því miður hefur þetta ekki unnið á heilaþokunni sem fylgdi veikindunum.

B
B.B.Þ.
Mjög ánægð með PZc olíuna

Ég finn að PC olían eykur orku hjá mér og bætir líðan hjá mér í heildina. Mæli með!

K
K.K.
Skerpir hugsun og linar verki

Mæli heilshugar með PC olíunni við verkjum og bólgum vegna sjálfsofnæmis. Ég fann mikinn mun á mér eftir fyrstu flöskuna og hef tekið matskeið á dag síðan.

F
F.T.
Mæli með Þessari olíu

Tek PC þegar ég er undir miklu álagi eða þegar ég hef verið í rakaskemdum í einhvern tíma. Ég finn mun strax eftir fyrstu 3 dagana. Finnst ég mikið skýrari í hugsun og meltingin léttist.
Kostar sitt en hef ekki fundið neitt sem virkar jafn fljótt og vel á mig.

N
N.I.
Frábær ólía

Það var búið að mæla með þessari olíu við mig og satt að segja vissi ég ekki út í hvað ég var að fara. Olían byrjaði að virka mjög fljótt og heilaþokan er farin. Ég mæli mjög mikið með olíunni.

L
L.R.H.1.
Virkaði ekki fyrir mig

Ég keypti stærstu flöskuna og tók 1 msk á dag eftir ráðleggingum sem ég fékk. Flaskan entist í um 4 vikur og ég fann enga breytingu á mér. Er með ME, vefjagigt og ADHD. Mikla þreytu og heilaþoku. Þar sem dagskammturinn kostaði tæpar 800 krónur þá ákvað ég að gefa þessu ekki lengri tíma.