Digestzymes

Digestzymes

4.890 kr

Digestzymes

4.890 kr

Digestzymes

4.890 kr
  • Heildstæð blanda meltingarensíma sem styður niðurbrot próteina, fitu og kolvetna.
  • Betaín HCl styður eðlilegt sýrustig í maga, niðurbrot próteina og upptöku járns, B6, B9, B12 og kalks
  • Nautagall (ox bile) styður fleyti fitu og upptöku fituleysanlegra vítamína
  • Inniheldur ensímið DPP IV sem hjálpar til við niðurbrot torleystra peptíða úr glúteni (gluteomorphin), kaseini (casomorphin) og soja (soymorphin)
  • Inniheldur laktasa sem styður niðurbrot mjólkursykurs (laktósa)
  • Getur dregið úr vindgangi, uppþembu, hægðatregðu eða seddutilfinningu eftir litlar máltíðir

Frí sending yfir 15 þúsund krónur. Pantanir eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13, annars daginn eftir (virka daga). Ekki er afgreitt um helgar. Þær eru afhentar með Dropp, á þann stað sem þú velur.

Örugg greiðslulausn með Saltpay eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

Nánari Lýsing

Digestzymes™ frá Designs for Health: Brisensím + Betaín HCl

Digestzymes™ er heildstæð meltingarformúla sem sameinar sérvalda blöndu af brisensímum, betaín saltsýru (HCl) og nautagalli til að styðja fullkomið niðurbrot próteina, fitu og kolvetna.

Af hverju skiptir meltingin máli

Jafnvel besta fæði nýtist líkamanum ekki nema það sé brotið rétt niður og næringarefnin tekin upp. Streita, öldrun, ýmis lyf og meltingarkvillar geta dregið úr framleiðslu magasýru, brisensíma og galls, en þetta þrennt er lykillinn að því að breyta fæðu í þau smærri næringarefni sem líkaminn þarfnast.

Betaín HCl

Betaín hýdróklóríð er áreiðanleg uppspretta saltsýru, sömu magasýru og líkaminn framleiðir náttúrulega. Nægilegt sýrustig í maga er nauðsynlegt til að brjóta niður prótein úr fæðunni, koma af stað losun brisensíma og styðja upptöku járns, B6, B9 og B12 vítamína og kalsíums. Magasýra er einnig fyrsta vörn líkamans gegn óæskilegum örverum og hjálpar til við að viðhalda jafnvægi í örveruflórunni.

Blanda brisensíma

Brisið framleiðir þau ensím sem knýja stóran hluta meltingarinnar. Digestzymes™ inniheldur markvissa blöndu, þar á meðal:

  • Próteasa og pepsín fyrir prótein
  • Amýlasa og glúkóamýlasa fyrir sterkju og kolvetni
  • Lípasa fyrir fitu og fituleysanleg vítamín
  • Laktasa fyrir mjólkursykur (laktósa)

Nautagall (ox bile)

Nautagall inniheldur gallsýrur sem fleyta fitu úr fæðunni, gera hana auðmeltanlegri og styðja upptöku fituleysanlegu vítamínanna A, D, E og K.

DPP IV (Dipeptidyl peptidase IV)

Sérhæfður próteasi sem hjálpar til við að brjóta niður þau torleystu peptíð sem finnast í hveiti, soja og mjólk, þ.e. gluteomorphin, soymorphin og casomorphin.

Hverjum getur þetta hentað

Digestzymes™ getur verið góð viðbót fyrir þá sem finna fyrir vindgangi eða uppþembu eftir máltíðir, hægðatregðu af og til, eða seddutilfinningu eftir litlar máltíðir. Vörin nýtist einnig vel sem almennur stuðningur við meltingu og upptöku næringarefna.*

Notkunarleiðbeiningar

Taktu 1 hylki með máltíð, eða samkvæmt leiðbeiningum heilbrigðisstarfsmanns.

ÍTARLEGRI UPPLÝSINGAR