Beinaseyðis prótein úr grasfóðruðum nautgripum frá Nyttoteket

Beinaseyðis prótein úr grasfóðruðum nautgripum

8.990 kr.

Beinaseyðis prótein úr grasfóðruðum nautgripum

8.990 kr.

Beinaseyðis prótein úr grasfóðruðum nautgripum

Bragð

Hreint Súkkulaði Kryddað
8.990 kr.

Þrjár bragðtegundir úr sama duftinu: hreint, kryddað eða með súkkulaði.

  • 14,3 g prótín í 15 g skammti (hreint)
  • Hreint og kryddað í heitt vatn, súpur eða mat
  • Súkkulaði í kaffi, heitt kakó eða þeyting
  • 500 g, um 33 skammtar

Prótín stuðlar að viðhaldi vöðvamassa og heilbrigðra beina.

Frí sending yfir 20.000 kr

Fyrir hverja er beinaseyðispróteinið?

  • Þá sem vilja prótín úr grasfóðruðum nautgripum út í drykk eða mat
  • Þá sem vilja mjólkurlaust prótínEkki þola allir mysuprótín. Engin mjólkurafurð er í innihaldslýsingu neinnar bragðtegundar.
  • Þá sem vilja bolla af beinaseyði án þess að sjóða bein sjálfDuftið er hrært út í heitt vatn.
  • Þá sem vilja eitthvað út í morgunkaffiðHreina útgáfan og súkkulaðiútgáfan fara í kaffi. Kryddaða útgáfan er drukkin eins og súpa.
  • Þá sem borða ketó eða carnivoreHreina og kryddaða útgáfan innihalda 0 g af kolvetnum.

4,95

Umsagnir íslenskra viðskiptavina

„Algjörlega það besta prótein sem ég hef prófað.“Helena Vigdís Kristjánsdóttir, staðfest umsögn

Lesa allar umsagnir

Það sem viðskiptavinir segja

Þetta er það sem kemur oftast fyrir í umsögnunum.

Besta prótínið

Nokkrir segja að þetta sé besta prótín sem þeir hafa prófað og að þeir noti ekki önnur lengur.

Stuttur innihaldslisti

Fólk nefnir oft hve fá innihaldsefni eru í duftinu. Í hreinu útgáfunni er beinaseyðisduftið eina innihaldsefnið. Í hinum tveimur bætast við salt og krydd eða kakó og stevía.

Gott bragð

Bæði súkkulaðið og kryddaða útgáfan fá hrós fyrir bragðið. Margir nefna líka hve vel duftið blandast.

Hluti af morgninum

Margir byrja daginn á bolla af beinaseyði eða setja matskeið út í morgunkaffið.

Hreint, kryddað eða súkkulaði

Allar þrjár eru úr sama beinaseyðisduftinu. Munurinn liggur í því sem bætt er við.

Hreina útgáfan passar í nánast allt, heitt og kalt, sætt og salt. Kryddaða útgáfan er drukkin eins og súpa eða notuð í mat. Súkkulaðiútgáfan fer vel í kaffi, heitt kakó og þeytinga.

  • Hreintbeinaseyðisduft án krydds og sætuefna
  • Kryddaðmeð sjávarsalti, lauk, hvítlauk, svörtum pipar, túrmerik og steinselju
  • Súkkulaðimeð kakói, sjávarsalti og stevíu

Hvernig verður beinaseyði að dufti?

Fyrst er soðið lengi, svo er seyðið þurrkað á nokkrum sekúndum.

Beinaseyði er soð af beinum sem eru soðin lengi í vatni. Nyttoteket spreyþurrkar seyðið svo eftir situr duft. Það sparar suðu í potti tímunum saman.

Beinaseyði er fyrst og fremst prótín. Í 15 g af hreina duftinu eru 14,3 g af prótíni. Engu kollageni eða öðru prótíni er bætt við í neinni bragðtegund, svo prótínið kemur úr seyðinu sjálfu.

Nánar: hvað er spreyþurrkun?

Spreyþurrkun er sama aðferð og notuð er til að búa til mjólkurduft og skyndikaffi. Seyðinu er úðað í örfína dropa inn í klefa með heitu lofti. Vatnið gufar upp á sekúndum og eftir situr fínt duft.

Nánar: helst næringin í þurrkuninni?

Prótín og amínósýrur þola spreyþurrkun vel. Droparnir hitna minna en loftið í kringum þá, því vatnið sem gufar upp kælir þá. Þeir eru auk þess aðeins örstutta stund í hitanum.

Seyðið hefur þegar verið soðið lengi og suðan er mun lengri hitameðferð en þær sekúndur sem þurrkunin tekur. Næringargildin á síðunni eru mæld í tilbúnu duftinu.

Nánar: amínósýrurnar

Í 15 g af hreina duftinu er mest af glycine (3,0 g), proline (1,8 g), glutamic acid (1,7 g), hydroxyproline (1,5 g) og alanine (1,3 g). Glycine, proline og hydroxyproline eru einkennandi fyrir kollagen, aðalprótín beina og bandvefs.

Svona notar fólk það

Grunnurinn er einfaldur: 1 til 2 matskeiðar í um 2 dl af heitu vatni. Duftið blandast best ef það er fyrst hrært út í smá heitu vatni og svo fyllt upp.

Morgunbollinn

Tvær matskeiðar af hreinu í heitt vatn, þeytt með mjólkurþeytara. Sumir bæta við matskeið af kókos- eða MCT-olíu.

Síðdegisbollinn

Heitur bolli af hreinu eða krydduðu síðdegis, í staðinn fyrir kaffi.

Í kaffið eða kakóið

Matskeið af hreinu eða súkkulaði út í morgunkaffið. Súkkulaðiútgáfan er líka góð hrærð út í volga mjólk eða jurtamjólk.

Súpa í hádeginu

Tvær fullar matskeiðar af krydduðu í heitt vatn, drukkið eins og súpa.

Grænmeti og sósur

Hreint eða kryddað út í vatnið þegar grænmeti er soðið, eða út á pönnuna eftir steikingu til að gera fljótlega sósu.

Í matinn og baksturinn

Hreint eða kryddað í súpur og pottrétti. Hreint eða súkkulaði í jógúrt, þeytinga og bakstur, til dæmis í próteinvöfflur Kristu.

Prótín í hverjum bolla

Beinaseyðispróteinið er prótínríkt.

Prótín stuðlar að auknum vöðvamassa og að viðhaldi vöðvamassa. Prótín stuðlar einnig að viðhaldi heilbrigðra beina.

Næringarupplýsingar

Skammtur 15 g · um 33 skammtar í 500 g

Í 15 gHreintKryddaðSúkkulaði
Orka61 kcal54 kcal59 kcal
Fitaþar af mettuð0,5 g0,1 g0,4 g0,1 g0,7 g0,4 g
Kolvetniþar af sykurtegundir0 g0 g0 g0 g0,6 g0,1 g
Trefjar0 g0 g0,9 g
Prótín14,3 g11,9 g12,2 g
Salt0,5 g1,3 g0,5 g

Hreint: beinaseyðisduft.

Kryddað: beinaseyðisduft, sjávarsalt, laukduft, hvítlauksduft, svartur pipar, túrmerik, steinselja.

Súkkulaði: beinaseyðisduft, kakóduft, sjávarsalt, sætuefni (steviol glycosides úr stevíu).

Eldri pakkningar geta einnig innihaldið sólblómalesitín, sem framleiðandinn hefur nú tekið út. Innihaldslýsingin á pakkningunni gildir.

Algengar spurningar

Hver er munurinn á beinaseyðispróteini og kollageni?

Beinaseyðispróteinið er beinaseyði sem hefur verið soðið úr mergbeinum og þurrkað í duft. Clean Collagen frá Nyttoteket er hreint vatnsrofið kollagen, aðallega af gerð I og smá af gerð III. Bæði eru úr grasfóðruðum nautgripum og blandast í heita og kalda drykki.

Hversu mikið prótín er í skammti?

Í 15 g skammti eru 14,3 g af prótíni í hreinu útgáfunni, 11,9 g í krydduðu og 12,2 g í súkkulaði.

Hvernig er best að blanda vöruna?

Ein til tvær matskeiðar eru settar í bolla og hrærðar út í smá heitu vatni þar til úr verður slétt mauk. Svo er fyllt upp með um 2 dl af heitu vatni og hrært eða þeytt með mjólkurþeytara. Duftið blandast bæði í heitan og kaldan vökva.

Má nota vöruna í matargerð og bakstur?

Já. Hreina og kryddaða útgáfan passa í súpur, pottrétti og sósur. Hreina útgáfan og súkkulaðiútgáfan passa í þeytinga og bakstur. Krista er með uppskrift að próteinvöfflum þar sem beinaseyðispróteinið er notað.

Er sykur eða sætuefni í vörunni?

Hreina og kryddaða útgáfan eru án sykurs og sætuefna og innihalda 0 g af kolvetnum. Súkkulaðiútgáfan er sætt með stevíu.

Er mikið salt í kryddaða beinaseyðinu?

Í 15 g skammti af krydduðu eru 1,3 g af salti. Í hreinu útgáfunni eru 0,5 g í skammti, sem kemur úr beinaseyðinu sjálfu.

Er mjólk í vörunni?

Engin mjólkurafurð er í innihaldslýsingu neinnar bragðtegundar.

Hentar varan á ketó eða carnivore?

Hreina útgáfan er beinaseyðisduft án krydds og sætuefna, með 0 g af kolvetnum. Margir nota hreinu útgáfuna þannig. Kryddaða útgáfan er líka án kolvetna en inniheldur krydd.

Hvað dugar pakkningin lengi?

Í pakkningunni eru 500 g. Það eru um 33 skammtar af 15 g, eða um mánuður miðað við einn skammt á dag.

Hvað heitir beinaseyðispróteinið á ensku?

Real Broth frá sænska fyrirtækinu Nyttoteket. Það er gert úr mergbeinum sænskra grasfóðraðra nautgripa.

Clean Collagen frá Nyttoteket

Fer vel með Clean Collagen

Beinaseyði í bollann og kollagen út í kaffið. Bæði frá Nyttoteket, úr grasfóðruðum sænskum nautgripum.

Skoða Clean Collagen

Oft keypt saman

Samtals

  • 5 stars: 20 (95%)
  • 4 stars: 1 (5%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 0 (0%)
Ó
Óþekktur
Besta prótein sem ég hef

Besta prótein sem ég hef notað

Ó
Óþekktur
Frábært! Ekkert illt í magann eins og af sumum

Frábært! Ekkert illt í magann eins og af sumum próteinum of svo gott á bragðið! Ekta súkkulaði bragð

S
Sigrún
Hreint og bragðgott

Mæli með :) kaupi aftur og aftur

Ó
Óþekktur
Er ànægð með þessa vöru serstaklega að engin

Er ànægð með þessa vöru serstaklega að engin viðbótum bætt í hana og er samt ekki alveg nóg reglulega að nota en tel þetta gera mer gott
Tek á kvöldin ( bæta svefn)

B
Birna
Elska kryddað beinaseyðið!

Elska kryddað beinaseyðið! Ég fæ mér tvær fullar matskeiðar útí heitt vatn og drekk eins og súpu í stað hádegismatar suma daga og finnst það geggjað. Gott á bragðið og mér líður vel í maganum af þessu.

Ó
Óþekktur
Frábær vara, mér hentar prótein sem er án

Frábær vara, mér hentar prótein sem er án bragðefna.

R
Rannveig
Beinaseyðisprótin-súkkulaði

Mjög ánægð. Gott prótin með lítið af aukaefnum sem var akkúrat það sem ég vildi 😊

Ú
Úlfar Úlfarsson
besta prótein sem ég hef fengið

besta prótein sem ég hef fengið..

M
María Elínar Arnfinnsdóttir
Mjög ánægð

Flott þjónusta og góð vars

Ó
Ólafía Ingólfsdóttir
Best !

Gæða vara og góð þjónusta 👌👏

Á
Ásdís Jónsdóttir

Bara mjög fínt, pantaði líka með súkkulaði og fleiri vörur.

E
Elín
Frábært prótein

Hef verið að kaupa beina prótein hjá ykkur og það er alveg frábært, eitt það besta sem ég hef prófað. Eins MCT bulletproof olían - fer vel í mig.

A
Alma Sigurðardóttir
Beina-prótein

Fràbært efni finn mikinn mun á ristlinum, ekki eins mikið loft. Set matskeið í morgunkaffið

H
Helena Vigdís Kristjánsdóttir

Algjörlega það besta prótein sem ég hef prófað 😊

I
Ingibjorg Stefansdottir
Frábær vara

Elska að byrja daginn á að fá mér beinaseyði. Einfalt og gott.

K
Kristjana Kristjansdottir
Langbesta beinaseyðið og aukin próteininntaka

Þetta beinaseyði er mitt allra uppáhalds þar sem það blandast mjög vel í vatn og ég veit að ég er að fá algjöra næringabombu og engin óþarfa aukaefni. Til að toppa þetta er próteininnihaldið gífurlega hátt svo ég byrja alla mína morgna á þessu (2 msk) út í heitt vatn og matskeið af kókosolíu. Þannig fer ég mun betri inn í daginn og fæ minni löngun í sykur og að nasla. Mæli með!

H
Hulda Helgadóttir

Tók dálítinn tíma til að virka á mig en er búin með 1 poka og þarf annan, mér líður svo vel í líkamanum

J
Jóhanna Briem
Beinaseyðisprótein

Hef verið að nota óbragðbætta beinaseyðispróteinið undanfarið sem prótein uppbót. Finnst það fara sérlega vel i maga og hef trú á að það hjálpi beinum og vefjum. Þetta er vara sem ég ætla að nota áfram

S
Svanhildur Steinarsdóttir
Geggjað!

Nota engin önnur prótein lengur. Elska þetta!

Ó
Óþekktur
Mjög gott

Mjög gott og blandast vel, geggjað í gríska jógúrt 👌

L
L.Ó.
Frábært fæðubótarefni

Hef meiri einbeitingu og orku