Magnesíum Byltingin, Drykkur frá Bioptimizers

Magnesíum Byltingin|Drykkur

5,990 kr

Magnesíum Byltingin|Drykkur

5,990 kr

Magnesíum Byltingin|Drykkur

Bragð

Ávaxta Hindberja límónaði
5,990 kr

Magnesíum í drykk frá Bioptimizers, með átta formum af magnesíum.

  • 325 mg magnesíum í skeið, átta form
  • 1 skeið í um 170 ml af vatni á dag
  • Án stevíu, 30 skammtar
  • Líka til í hylkjum

Magnesíum stuðlar að því að draga úr þreytu.

Frí sending yfir 20 þúsund krónur. Afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13 á virkum dögum með Dropp.

Örugg greiðslulausn með Teya eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

  • 325 mg
    magnesíum
  • Átta form
    af magnesíum
  • 1 skeið
    á dag
  • Án
    stevíu
Bioptimizers Magnesíum Byltingin drykkur

Bioptimizers

Magnesíum í drykk

Magnesíum Byltingin drykkur (Magnesium Breakthrough Drink) frá Bioptimizers er duft með átta formum af magnesíum. Í einni skeið (3,9 g) eru 325 mg af magnesíum, sem er hrært út í vatn.

Magnesíum Byltingin er líka til í hylkjum, með sjö formum af magnesíum.

Magnesíum stuðlar að því að draga úr þreytu.

Fyrir hverja?

  • Þá sem vilja magnesíum í drykk frekar en hylkjum
  • Þá sem vilja mörg form af magnesíum í einum skammti

Bragðtegundir

Hindberja límónaði eða ávaxtabragð

Hindberja límónaði

Hindber og sítróna

Magnesíumdrykkur með hindberja- og sítrónubragði.

Ávaxtabragð

Blandað ávaxtabragð

Magnesíumdrykkur með blönduðu ávaxtabragði.

Formin

Átta form af magnesíum

Magnesíum í fæðubótarefnum er alltaf bundið annarri sameind, til dæmis amínósýru eða lífrænni sýru. Sú sameind ræður því hversu stór hluti saltsins er magnesíum og hvernig það leysist upp.

Í drykknum eru átta form: magnesium chelate, magnesium carbonate, magnesium bisglycinate, magnesium taurate, Sucrosomial® magnesium (magnesium oxide), magnesium malate, magnesium orotate og magnesium citrate.

Gæði

Framleitt í Bandaríkjunum

Bioptimizers framleiðir vörurnar í Bandaríkjunum samkvæmt GMP, samkvæmt framleiðanda.

Ávinningur

Magnesíum

Í einni skeið eru 325 mg af magnesíum.

Þetta eru viðurkennd hlutverk magnesíums.

Orka og þreyta

Magnesíum stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum og að því að draga úr þreytu.

Vöðvar og taugar

Magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi vöðva, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi.

Bein og tennur

Magnesíum stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og tanna.

Næringargildi

Næringarupplýsingar

Næringarupplýsingar

Skammtur 1 skeið (3,9 g) · 30 skammtar · *NV = næringarviðmiðunargildi

Í 1 skeið (3,9 g)% NV*
Orka15 kkal
Kolvetni2 g
Magnesíummagnesium chelate, magnesium carbonate, magnesium bisglycinate, magnesium taurate, Sucrosomial® magnesium (magnesium oxide), magnesium malate, magnesium orotate, magnesium citrate325 mg87%

Önnur innihaldsefni (hindberja límónaði): sítrónusýra, goMCT® (medium chain triglycerides, acacia gum), glucono delta lactone, náttúruleg hindberja-, sítrónu- og berjabragðefni, rauðrófa, munkaávaxtaþykkni (monk fruit extract), thaumatin.

Grænmetisfæði, án stevíu og glútens, samkvæmt framleiðanda.

Notkun

Ein skeið á dag

  1. 1

    Hrærðu 1 skeið út í um 170 ml af vatni.

  2. 2

    Einu sinni á dag. Ekki fara yfir ráðlagðan skammt.

Gott að vita

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða tekur lyf skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar.

Of mikið magnesíum getur haft losandi áhrif. Ef þú tekur einnig hylkin eða annað magnesíum skaltu taka tillit til þess.

Geymist á þurrum og svölum stað, varið ljósi.

Meira frá Bioptimizers

Frá sama framleiðanda

Magnesíum Byltingin hylki: sjö form af magnesíum í hylkjum.
Svefn Byltingin: kvöldblanda með glycine, L-theanine, taurine og magnólíuberki, án melatóníns.
HCL Byltingin: betaine HCl og ensím í hylkjum.
MassZymes: blanda af ensímum í hylkjum.
P3-OM: einn bakteríustofn, Lactobacillus plantarum OM.
Sveppa Byltingin: kollagen og heilsusveppir í drykk.

Bioptimizers

Bandarískt fyrirtæki sem framleiðir fæðubótarefni, meðal annars magnesíumblöndur og ensím.

Skoða vörumerkið

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er Magnesíum Byltingin drykkur?

Varan hentar meðal annars þeim sem vilja magnesíum í drykk frekar en hylkjum og þeim sem vilja mörg form af magnesíum í einum skammti.

Hver er munurinn á drykknum og hylkjunum?

Drykkurinn er duft sem er hrært út í vatn, með átta formum af magnesíum. Magnesíum Byltingin í hylkjum er með sjö formum og 250 mg af magnesíum í einu hylki. Í einni skeið af drykknum eru 325 mg af magnesíum.

Hvaða form af magnesíum eru í honum?

Átta form: magnesium chelate, magnesium carbonate, magnesium bisglycinate, magnesium taurate, Sucrosomial® magnesium (magnesium oxide), magnesium malate, magnesium orotate og magnesium citrate.

Hvernig á að nota hann?

1 skeið í um 170 ml af vatni, einu sinni á dag.

Hvaða bragðtegundir eru til?

Hindberja límónaði og ávaxtabragð.

Hvað er mikið magnesíum í skeið?

325 mg í einni skeið (3,9 g). Í dósinni eru 30 skammtar.

  • 5 stars: 9 (82%)
  • 4 stars: 1 (9%)
  • 3 stars: 1 (9%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 0 (0%)
M
Margrét Sif
Svefninn dýpri og betri

Ég er á dollu nr.2 núna og þessi vara fer fram úr Calm vórununum sem ég hef notað í mörg ár.
Ég finn mikinn mun á gæði svefnsins og hvað vöðvarnir eru ekki eins "þreyttir" og að vakna úthvíld á morgnanna gefur mér svo mikla orku og úthald yfir daginn.
Kv. Magga 🧡

H
Helga
Betri svefn og endurheimt

Sef betur og vakna fersk. Fór að finna greinilegan mun eftir 2-3 vikur. Drekk drykkinn sirka 2klst fyrir svefn.

J
Jónína Gissurardóttir
Þetta magnesíum og beserene

Þessi tvö efni hafa hjálpað mér þvílíkt mikið varðandi svefn og meltingu.
Hef lengi átt í vanda með hvoru tveggja en eftir að ég byrjaði að taka þessi efni - eru þessi vandamál nánast úr sögunni.
Ég sef lengur og betur þ.e. dýpri og betri svefn. Og meltingin nánast orðin góð.

H
Hrund Gautadóttir
Gott Magnesium

Öll fjölskyldan hefur verið að drekka þetta Magnesium með hindberja/límonaði bragði. Okkur finnst þetta mjög gott og virka jafn vel og hylkin. Mæli með.

E
Elín Rós Hansdóttir
Magnesíum sem virkar vel

Þetta er að virka mjög vel, hef verið að fá heiftarlegan sinadrátt í fætur sem hefur ekki komið frá því ég hóf inntöku

Á
Ágústína Haraldsdóttir
Magnesíum Byltingin

Búin að nota efnið ca 10 daga, finn mikin mun á svefni og svefngæðum, sofna fljótt og sef betur og lengur😊 og er þar af leiðandi orkumeiri yfir daginn, mæli með😊

V
Vilborg Sigurðardóttir
Frábær bætiefni.

Þetta er frábær vara mér líður mjög vel af þessu og frábær bætiefni.

Þ
Þórhildur Þórarinsdóttir
Blandast illa

Prófaði fyrst hindberja/límonaði sem var fínt á bragðið, keypti síðan banana/mangó sem blandast mjög illa og erfitt að koma niður. Finn persónulega ekki mun á þessu magnesíumi og einhverju öðru.

Við mælum með því að nota hristibrúsa eða sprota til að hræra í drykknum, þá blandast hann mjög vel :)

Þ
Þórunn Margrét Jónasar
Magnesium byltingin

Ég er búin að taka þetta inn í uþb 2 vikur og ég finn mikinn mun á svefninum, ég er fljótari að sofna, svefngæðin betri og ég er ekki endalaust að vakna upp,

G
Guðrun S.

Mér finnst þetta hafa jákvæð áhrif á svefninn hjá mér.

H
Hafdís Sigurðardóttir

Ég er búin að taka Magnesíumumið frá því ég keypti það, eitt glas að kvōldi fyrir svefn, ég átti von á betri svefngæðum 🥲
Tekur það kannski meiri tíma að virka ??