DAO Enzyme | Diamine oxidase meltingarensím | Heilsubarinn

DAO Enzyme | Diamine oxidase meltingarensím

7.490 kr

DAO Enzyme | Diamine oxidase meltingarensím

7.490 kr

DAO Enzyme | Diamine oxidase meltingarensím

Hylki

30 90
7.490 kr

• Inniheldur einkaleyfaverndað DAOgest® ensím
• 10.000 HDU af DAO (Diamine Oxidase) í hverju hylki
• Náttúrulegt ensím sem brýtur niður histamín úr mat
• Tekið fyrir máltíðir með histamínríkum mat
• Hentar vel með Probiota Histamin X fyrir heildrænan stuðning

  • Fæst í Heilsuveri

Frí sending yfir 15 þúsund krónur. Pantanir eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13, annars daginn eftir (virka daga). Ekki er afgreitt um helgar. Þær eru afhentar með Dropp, á þann stað sem þú velur.

Örugg greiðslulausn með Saltpay eða Netgíró.

Auðveld skil með Dropp.

Nánari Lýsing

DAO Enzyme (áður Histamin Digest) frá Seeking Health hentar mjög vel fyrir þá sem þola illa histamín eða eru með histamínóþol.

Það inniheldur einkaleyfaverndaða ensíma formúlu sem gefur 10000 HDU af diamin oxidase (DAO), ensímið sem hefur stóru hlutverki að gegna í að brjóta niður histamín úr fæðu. 

Histamín getur verið tvíeggja sverð. Það er nauðsynlegt fyrir okkur en það getur líka valdið alls konar einkennum.

Histamín er frábært til að halda óværum (pathogens) í burtu í meltingunni.

Það örvar ónæmiskerfið til að ráðast á óværuna.

Það er einnig talioð hjálpa við bylgjuhreyfingar meltingarinnar.  Það er taliðo hjálpa maganum að seita ensímum sem brjóta niður prótein.

Þannig að það er augljóst að við viljum endilega hafa histamín í meltingunni okkar, bara ekki of mikið af þeim. 

Of mikið af histamínum er ekki gott og getur það sent röng skilaboð til ónæmiskerfisins og hvatt það í að senda drápsfrumur af stað og búa til bólgusvar. Það getur leitt til histamínóþols, meltingareinkenna, ofnæmis og fleira.

DAO hefur verið klínískt rannsakað og verið sannað að það brjóti niður histamín í meltingarveginum. 

Til þess að viðhalda vörnum meltingarvegarins við histamínum góðum er mælt með ProBiota Histamin X og er mikilvægt að finna rót vandans.

Það virðist vera töluvert algengt að fólk sem hefur veikst vegna rakaskemmda finni fyrir histamín viðkvæmni. 

En hvar eru öll þessi histamín að fela sig, ertu að innbyrða mikið af histamínum?

Því miður er mikið af histamínum í fullt af mat sem þér finnst sennilega góður og ert jafnvel að borða til að bæta heilsuna.

Þau finnast helst hér:

  • Gömlum ostum
  • Áfengi (sérstaklega í rauðvíni og kampavíni)
  • Beinasoði
  • Súkkulaði
  • Sítrus (ekki sítrónum samt)
  • Reyktu og unnu kjöti eins og pylsum, salami, pepperoni..
  • Þurrkuðum ávöxtum
  • Gerjuðum mat eins og jógúrti, sýrðum rjóma, súrkáli, kefir..
  • Ávaxtasafa
  • Fiski - sérstaklega reyktum eða niðursoðnum
  • Ferskum tómötum
  • Spínati
  • Ediki 

ÍTARLEGRI UPPLÝSINGAR

1 hylki rétt áður en histamíns ríks matar eða drykkjar er neytt. Eða á fastandi maga til að styðja við heilbrigt magn histamína í meltingunni.

Þegar Histamin Block er tekið með mat hjálpar það að brjóta niður histamín í mat og drykk.

Einnig má taka það á fastandi maga og þá hjálpar það við að brjóta niður histamín sem framleitt er af meltingarörverum. Virkt ónæmiskerfi býr almennt til töluvert magn af histamínum.

Athugið að Histamin Block kemur ekki í veg fyrir ofnæmisviðbrögð.

Upplýsingum sem eru á síðunni er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustu.

Sjúklingar á lyfjum, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Ekki skal neyta meira af vörunni en ráðlagður neysluskammtur segir til um.

Fæðubótarefna skal ekki neyta í stað fjölbreyttrar fæðu.

Geyma skal vöruna þar sem börn ná og sjá ekki til.