Magnesíum byltingin, 7 tegundir af magnesíum söltum frá Bioptimizers

Magnesíum byltingin|7 tegundir af magnesíum söltum

6.330 kr.

Magnesíum byltingin|7 tegundir af magnesíum söltum

6.330 kr.

Magnesíum byltingin|7 tegundir af magnesíum söltum

6.330 kr.
  • 7 tegundir af magnesíumsöltum í einu hylki
  • Með B6-vítamíni og mangani
  • Magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og vöðva
  • Magnesíum stuðlar að viðhaldi heilbrigðra beina og tanna
  • Magnesíum stuðlar að því að draga úr þreytu

Frí sending yfir 20.000 kr

Fyrir hverja er Magnesíum Byltingin?

  • Þá sem vilja mörg form af magnesíum í einu hylki á dag
  • Þá sem hreyfa sig mikiðMagnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi.
  • Þá sem vilja magnesíum ásamt B6-vítamíni
  • Þá sem vilja vegan magnesíumHylkið er úr plöntutrefjum og varan er án glútens og soja, samkvæmt framleiðanda.

4,8

Umsagnir íslenskra viðskiptavina

„Besta magnesíum blanda sem ég hef prófað.“Fjóla Ólafsdóttir, staðfest umsögn

Lesa allar umsagnir

Það sem viðskiptavinir segja

Þetta er það sem kemur oftast fyrir í umsögnunum.

Betri svefn

Svefninn er það sem flestir nefna. Um helmingur umsagnanna segir frá því að fólk sofi betur eftir að það byrjaði að taka Magnesíum Byltinguna með kvöldmatnum.

Minni sinadráttur

Fjölmargir viðskiptavinir segja að sinadráttur og fótapirringur á kvöldin og nóttunni hafi minnkað eða horfið.

Besta magnesíumið

Um tíu viðskiptavinir segja beinlínis að þetta sé besta magnesíum sem þeir hafa prófað, margir eftir að hafa reynt ýmsar aðrar tegundir.

Keypt aftur og aftur

Margir eru komnir á aðra eða þriðju pakkningu. Stór hópur er í áskrift.

Af hverju sjö form?

Magnesíumið er alltaf það sama. Söltin eru ólík.

Magnesíum er steinefni. Í bætiefnum er magnesíum alltaf bundið öðru efni, á sama hátt og natríum er bundið klóri í matarsalti.

Þessi félagi skiptir máli. Hann ræður því hversu stór hluti saltsins er magnesíum, hversu vel það leysist upp og hvernig það hegðar sér í meltingarveginum.

Nánar: hvað er klóbinding?

Í magnesium bisglycinate er magnesíum bundið amínósýrunni glycine, tveimur glycine fyrir hvert magnesíum. Glycine heldur um magnesíumið á tveimur stöðum, líkt og kló. Þaðan kemur nafnið klóbinding.

Nánar: hvernig komast 250 mg í eitt hylki?

Söltin eru misþung. Í magnesium oxide er um 60% af þyngdinni magnesíum en í bisglycinate um 14%. Með því að blanda saman þungum og léttum söltum komast 250 mg af magnesíum fyrir í einu hylki.

Sjö form af magnesíum í einu hylki

Í hverju hylki eru sjö magnesíumsölt. Hvert þeirra ber sama magnesíumið, en með ólíkum félaga.

  • Bisglycinatebundið glycine (×2)
  • Citratebundið citric acid
  • Tauratebundið taurine
  • Oxidebundið oxygen
  • Malatebundið malic acid
  • Phosphatebundið phosphoric acid
  • Ascorbatebundið ascorbic acid

Magnesíum og B6-vítamín

250 mg af magnesíum og 1 mg af B6-vítamíni í hverju hylki. Bæði eiga fjögur hlutverk sameiginleg.

Magnesíum og B6-vítamín stuðla bæði að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, andlegu jafnvægi, eðlilegum orkugefandi efnaskiptum og að því að draga úr þreytu.

Magnesíum stuðlar einnig að eðlilegri vöðvastarfsemi, eðlilegu blóðsaltajafnvægi, viðhaldi heilbrigðra beina og tanna og eðlilegri nýmyndun prótína. Það gegnir líka hlutverki í frumuskiptingu.

Nánar: B6-vítamín

B6-vítamín stuðlar einnig að eðlilegri myndun rauðra blóðkorna, eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, eðlilegum efnaskiptum prótína og glýkógens, eðlilegum efnaskiptum homocysteine, eðlilegri myndun cysteine og stjórnun hormónastarfsemi.

Nánar: mangan

Mangan stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum, viðhaldi heilbrigðra beina, eðlilegri myndun bandvefs og að því að vernda frumur gegn oxunarálagi.

Næringarupplýsingar

Skammtur 1 hylki · 60 hylki

InnihaldÍ 1 hylki% NV*
Magnesíumsem bisglycinate, citrate, taurate, oxide, malate, phosphate og ascorbate250 mg67%
B6-vítamínsem pyridoxine hydrochloride1 mg71%
Mangansem manganese citrate0,5 mg25%

*NV = næringarviðmiðunargildi

Önnur innihaldsefni: hylkisskel (hypromellose), hrísgrjónatrefjar, hrísgrjónablanda (hrísgrjónaklíðsþykkni, hrísgrjónatrefjar, arabískt gúmmí, sólblómaolía), kekkjavarnarefni (silicon dioxide).

Algengar spurningar

Eru 250 mg heildarþyngd saltanna eða magnesíumið sjálft?

Magnesíumið sjálft. 250 mg er magn hreins magnesíums í hylkinu, óháð því hve þung söltin eru. Það samsvarar 67% af næringarviðmiðunargildi.

Hvenær dagsins er best að taka vöruna?

Flestir taka hylkið með kvöldmatnum. Ef hylkið veldur örvun er betra að taka það með morgun- eða hádegismat.

Má taka vöruna með Svefn Byltingunni?

Já, vörurnar eru hannaðar til að nota saman.

Hver er munurinn á Magnesíum Byltingunni og öðru magnesíum á Heilsubarnum?

Magnesíum Byltingin er sjö form af magnesíum ásamt B6-vítamíni og mangani í einu hylki á dag. Mag Six frá NoordCode er sex form og B6-vítamín í tveimur hylkjum á dag. Optimal Magnesium frá Seeking Health er glycinate og malate í einu hylki. Magnesíum Glycinate er eitt form í tveimur til þremur hylkjum á dag.

Er varan vegan?

Já. Hylkið er úr hypromellose, sem er unnið úr plöntutrefjum. Varan inniheldur engin dýraefni. Hún er einnig án glútens og soja, samkvæmt framleiðanda.

Hvað dugar pakkningin lengi?

Í pakkningunni eru 60 hylki, sem duga í 60 daga miðað við eitt hylki á dag.

Get ég verið í áskrift?

Já. Í áskrift færðu 15% afslátt af hverri sendingu. Lesa meira um áskriftir.

Ég er á lyfjum, barnshafandi eða með barn á brjósti. Má ég taka vöruna?

Það er gott að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing áður en byrjað er. Magnesíum getur haft áhrif á upptöku sumra lyfja og þá skiptir tímasetning máli.

Hvað heitir Magnesíum Byltingin á ensku?

Magnesium Breakthrough frá BiOptimizers. Við seljum evrópsku útgáfuna, sem er með aðra skammtastærð en sú bandaríska.

Svefn Byltingin frá BiOptimizers

Fer vel með Svefn Byltingunni

Magnesíum Byltingin með kvöldmatnum, Svefn Byltingin fyrir háttinn. Tvær vörur frá BiOptimizers, hannaðar fyrir kvöldið.

Skoða Svefn Byltinguna

Oft keypt saman

Samtals

  • 5 stars: 100 (86%)
  • 4 stars: 9 (8%)
  • 3 stars: 5 (4%)
  • 2 stars: 1 (1%)
  • 1 star: 1 (1%)
M
Margrét G.

Besta Magnesíum sem ég hef prófað

A
Anna Steindal
Frábær vara.

Ég er virkilega ánægð með að hafa fundið Magnesíum byltinguna og það er mjög þægilegt að geta verið í áskrift. Þetta er frábær vara sem mér finnst hjálpa mér bæði að sofa betur og róa taugakerfið.

Ó
Óþekktur
Góð vara

4 dtjörnum

Ó
Óþekktur
Betri melting og svefn

Betri melting og svefn.

Ó
Óþekktur
Hittir beint í mark fyrir mig

Hittir beint í mark fyrir mig :)

A
Anna Guðmunda Stefansdottir
Mjög

Mjög anægð

Ó
Óþekktur
Mjög góð

Mjög góð vara

H
Halldór Jónsson
Mjög

Mjög ánægður

A
Auður
Mjög ánægð

Mjög ánægð með

Ó
Óþekktur
Sef

Sef

Þ
Þorbjörg Jónsdóttir
Magnesíum byltingin hjálpar mér með fótapirring

Magnesíum byltingin hjálpar mér með fótapirring sem hefur fylgt mér alla tíð.

H
Herdís
Búin að taka þetta í ca ár, mér líður mjög vel af

Búin að taka þetta í ca ár, mér líður mjög vel af þessu og get ekki verið án 👍🏻

H
Halldóra Ingimundardóttir

Góð vara

K
Kristin Blondal
Góðar vörur

Góðar vörur

R
Rakel Benediktsdóttir
Bylting

Þegar ég byrjaði að taka inn Magnesium Brakethrough var ég búin að þjást af sinadrætti - aðallega á nóttunni , vaknaði við hann 3-5 sinnum á nóttu. Síðan eru liðnir 4 mánuðir og ég hef eignast nýtt líf . Sinadrættir heyra sögunni til og þar af leiðandi sef ég mun betur

O
Ottó Sverrisson
Virkar ekki fyrir mig

Búinn að vera taka þetta í tæpan mánuð en finn því miður enga virkni.

B
Bjarney Hafsteinsdóttir
Magnesíum Breakthrough

Magnesíum Breakthrough hefur hjálpað mér mikið við að ná betri svefni og finn fyrir meiri orku yfir daginn. Einnig hefur fótapirringur og krampar í fótum minnkað mikið..
Mæli eindregið með þessari vöru.

Þ
Þórhildur Sturlaugsdóttir

Er ekki að sja mikinn mun enn þó einhvern ☺️

Á
Ásta Óskarsdóttir

Virkar vel

J
Jóhanna Gísladóttir

virkar bar ágætlega á svefnin

B
Bylgja Bragadóttir

Sinadrátturinn horfinn, það var það sem ég sóttist eftir, og þessi vara virkaði frá fyrst degi.

S
Sigurlaug Valgardsdottir
Ætla að gerast áskrifandi

Ég sef betur og fæ síður sinadrátt.

M
María Weinberg
Undra vara.

Þetta er undra vara. Hjálpar mér að sofna of sofa værum svefni á næturnar. Ekkert annað virkar eins vel og þetta.

G
Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir
Magnesíum byltingin

Líst rosa vel á þetta magnesíum ...flott í þessu en hentar mér ekki ...sef illa á nóttunni þegar ég tek það þó ég taki það inn í hádeginu

I
Ingibjörg Ásgeirsdóttir

Er áskrifandi og líkar mjög vel.
Getið þið ekki flutt inn Akkermansia frá Pendulum? Þeir neita að senda mér til Íslands.

E
Elisabet Magnusdottir
Virkar vel á sinadrátt

Sef betur líður betur í vöðvum

G
Gerður Pálsdóttir
Frábært fyrir svefn

Hef tekið þessar í um ár og þær hjálpa mér mikið með svefninn og rosa þægilegt að vera í áskrift 🤗

H
Herdís

Er búin að taka þetta þrisvar, og ætla að gefa þessu meiri tíma, finn ekkert eins og er

E
Erna Ulfhedinsdottir
Hjálpar svefninum

Ég á auðveldara með að ná slökun á kvöldin og festa svefn.
Frábær vara.

A
Anna Sigga Eyjólfsdóttir
Flott vara

Hjálpar mikið við að draga úr liðverkjum yfir daginn og bætir orkuna yfir miðja daginn.

S
Sigrún M
Vonbrigði

Hentar mér ekki.

R
Rakel Bergsdóttir
Virkar mjög vel

Meiri og betri svefn

V
Valgeir Þorvaldsson
Frábær vara.

Frábær vara.