Pristine Creatine, hreint kreatín mónóhýdrat
Pristine Creatine er 100% hreint kreatín mónóhýdrat, þróað og framleitt í Þýskalandi með áherslu á gæði, hreinleika og virkni. Auðleysanlegt, bragðlaust og lyktarlaust, án bragðefna, fylliefna eða annarra aukaefna.
Hvers vegna kreatín?
Kreatín finnst náttúrulega í líkamanum og gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu. Fullorðinn einstaklingur geymir um 80 til 130 grömm af kreatíni, og allt að 2% af þeim forða er nýttur daglega og þarf því að endurnýja. Líkaminn framleiðir hluta sjálfur og við fáum kreatín úr kjöti, en eldun getur eyðilagt stóran hluta þess og því þyrfti að borða mjög mikið magn til að viðhalda fullum forða.
Orka þegar þú þarft hana mest
Við ákafar eða sprengikraftsæfingar tæmist ATP-orkuforði líkamans á nokkrum sekúndum. Þar kemur kreatín til skjalanna. Með því að halda fosfókreatín gildum háum hjálpar kreatín líkamanum að endurnýja ATP hratt, svo þú getir afkastað meira, lengur og af fullum krafti.
Vísindalega staðfest virkni
Kreatín eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar, stuttar og ákafar æfingar. Dagleg inntaka kreatíns getur einnig eflt áhrif styrktarþjálfunar á vöðvastyrk hjá fullorðnum yfir 55 ára aldri. Þessi jákvæðu áhrif nást með 3 g daglegri inntöku af kreatíni.
Kreatín og heilinn
Heilafrumur eru meðal orkufrekustu fruma líkamans og nýta sömu ATP/fosfókreatín orkukerfi og vöðvar. Um það bil 5% af heildar kreatínforða líkamans er geymdur í heilanum. Rannsóknir á hlutverki kreatíns í heilastarfsemi eru í örum vexti og fylgjumst við vel með þeim og munum skrifa grein um það fljótlega.
Pristine Creatine er einföld, hrein og áhrifarík leið til að viðhalda kreatínforða líkamans í hámarki.