Bioptimizers
Plantarum OM gerlar|P3-OM
5.990 kr
P3-OM gerlarnir frá Bioptimizers innihalda 2.5 billjón CFU af Lactobacillus plantarum gerlum.
Gerlarnir hafa langan endingartíma því þeir eru frostþurrkaðir. Þetta er aðlöguð lína af L. Plantarum sem hefur "proteolytic" eiginleika sem þýðir að þeir geta melt prótein.
Bioptimizers
HCL Byltingin|Stuðningur vi...
5.990 kr
HCL byltingin inniheldur betaine hydrochloride sem eykur magasýru til að styðja við meltinguna og hreyfingu í þörmum. Blandan inniheldur einnig 5 tegundir af ensímum. Blandan er ólík öðrum HCL blöndum á markaðnum því hún inniheldur ekki pepsin. Margir þola pepsin illa og geta fengið viðbrögð við því. Blandan inniheldur einnig breiðvirka steinefnablöndu til að styðja við virkni meltingarensíma og auka á steinefnabirgðir líkamans.
Blandan er talin geta hjálpað til við að minnka brjóstsviða og bakflæði.
Organifi
Organifi grænn djús|Fyrir n...
8.990 kr
Organifi blöndurnar eru vel þekktar í heilsuheiminum, sérstaklega í Bandaríkjunum og eru þær þekktar fyrir hágæða lífræn hráefni, ásamt því að bragðast vel (sem er ekki sjálfgefið með græn duft...
Stress, langanir og hormónar tengist allt kortísól gildum líkamans. Það að hafa heilbrigt jafnvægi í kortisól viðbragði í gegnum daginn er nauðsynlegt fyrir góða líðan.
Græni djúsinn frá Organifi er talinn geta:
- Stutt við streituviðbragð með Aswaganda
- Hjálpað við langanir með því að lækka kortisól gildi sem ýta undir langanir (e. cravings).
- Hjálpað við gott vökvajafnvægi
Upprunalega mintu blandan er mest seldi djúsinn hjá þeim úti en nú er í boði takmarkað magn af græna djúsnum með eplabragði.
Lýsing á aðalinnihaldsefnum:
Ashwaganda
Mikilvæg Ayurveda jurt og aðlögunar jurt (adaptogen) sem er talin koma jafnvægi á kortisólið.
Spírúlínu
Næringarríkur blágrænn þörungur sem inniheldur mikið af andoxunarefnum
Rauðrófur
Taldar auka nitric oxide náttúrulega í líkamanum
Sítrónusafa
Hár í c vítamíni og talinn styðja við basískt jafnvægi í líkamanum
Moringa duft
Hlaðið vítamínum, steinefnum, amínósýrum og andoxunarefnum.
Matcha duft
Hátt í pólýfenólum, blaðgrænu og L-theanín
Hveitigras
Fornu Egyptarnir elskuðu það fyrir góðu áhrifin á heilsu og hressleika
Kókosvatn
Hátt í elektrólýtum, sérstaklega kalíum.
Klórellu
Næringarríkt þurrkað sjávar grænmeti sem er hátt í blaðgrænu, vítamínum og steinefnum.
Mintu
Notuð í þúsundir ára til að styðja við meltingu, krampa, hvítta tennur og styðja við góðan svefn.
Túrmerik
Vel þekkt fyrir andoxunareiginleika sína og stuðning við bólguviðbragð.
Designs for Health
Oil of Oregano | Stöðluð Ór...
frá 4.290 kr
Oil of Oregano er mjög frásogandi oreganoolía til að styðja við heilbrigð bólguviðbrögð, heilbrigða meltingarfærastarfsemi og heilbrigt örverujafnvægi í meltingarvegi.
Óreganóolía getur stutt heilbrigði meltingarvegarins með því að stuðla að hreinsun þarma og heilbrigðu jafnvægi þarmabaktería.
Þessi vara er stöðluð til að innihalda karvakról og þýmól, helstu lífvirku fenólsamböndin í oreganó. Hver perla inniheldur 36 mg af karvakról og þýmóli úr 60% til 75% karvakról oreganóolíu.
Oreganóolían í þessari vöru er blönduð með ólífuolíu sem burðarefni til að forðast ertingu í slímhúð meltingarvegarins.
Designs for Health
Astaxanthin | AstaREAL®
9.890 kr
Astaxanthin er náttúrulegt andoxunarefni sem kemur úr örþörungnum Haematococcus pluvialis, sama uppsprettan og gefur laxinum og rækjunum sinn fallega bleika lit.
Astaxanthin er miklu meira en bara litarefni. það er eitt öflugasta andoxunarefni sem finnst í náttúrunni.
Í þessari vöru er notast við astaxanthin af hæstu gæðum sem unnið er án sterkra efna, sem tryggir hámarks hreinleika og virkni.
Sérstök bygging astaxanthíns gerir því kleift að vinna beint innan frumna og styðja við heilbrigði þeirra.
Astaxanthin frá Designs for Health:
Hentar þeim sem vilja styðja við daglega frumusvörun og oxunarjafnvægi
Líffræðilega virk formúla með góðri upptöku
Perlur sem auðvelt er að gleypa og taka með máltíð
Beyond Balance
Tox Ease Bind|Bindiefni
8.690 kr
TOX-EASE BIND™ er formúla sem er hönnuð til að bindast eiturefnum sem íþyngja líkamanum.Hörfræolíuduft inniheldur leysanlegar og óleysanlegar trefjar sem geta hjálpað til við að fjarlægja óæskilega málma. Sýnt hefur verið fram á að slímeiginleikar þess smyrja þarmaveggi á sama tíma og þeir veita róandi áhrif og hjálpa til við að fjarlægja úrgang. Margir "binderar" eiga það til að valda hægðatregðu en þetta duft hjálpar til við að koma hægðum í gegn.Forn Ayurvedic læknisfræði lítur á shilajit sem fjölkerfa aðlögunarefni með stjórnandi og styrkjandi hæfileika á sama tíma og það býður upp á verulega afeitrunar eiginleika. Rannsóknir hafa sýnt að það gæti haft einstaka hæfileika til að skila næringu inn í frumur á meðan það flytur´óæskileg efni eins og þungmálma út úr frumum í gegnum brotthvarfsferlana. Shilajit inniheldur hæsta styrk af ætu formi fulvínsýru. Fulvínsýra getur virkað sem klóbindiefni (e.chelate) en samt hefur verið sýnt fram á að hún innihaldi hátt í sextíu steinefni og snefilefni og er mikilvæg uppspretta steinefnasalta.Rannsóknir hafa sýnt að virk kol (e. activated charcoal) nota aðsogsferli til að styðja við brotthvarf yfir 4.000 tegunda eiturefna í líkamanum, þar á meðal þungmálma og sveppaeiturs. Rannsóknir leiddu í ljós að þótt virk kol geti klóað (e.chelate), dregur það ekki úr nauðsynlegum næringarefnum líkamans ef það er notað á réttan hátt (tekið frá fæðu, bætiefnum og lyfjum).Vegna hugsanlegra fitufleytandi eiginleika þess getur plöntusterólið, þekkt sem beta-sítósteról, komið í veg fyrir endurupptöku taugaeiturs sem ákveðnar myglutegundir geta gefið frá sér.
Þessi "binder" hentar vel með öðrum vörum frá Beyond Balance og Nutramedix til þess að ná endurheimt eftir veikindi eftir viðveru í rakaskemmdu húsnæði. Vörurnar eru sérstaklega hannaðar með flóknari veikindi í huga sem umhverfisveikindi geta verið.
Bioptimizers
Magnesíum byltingin|7 tegun...
6.330 kr
7 tegundir af magnesíum söltum sem hvert hefur sýna eiginleika og heilsuávinning.
Betri nýting vegna þess að B6 vítamíni, mangan og snefilsteinefnum er bætt við.
Öflug blanda fyrir svefn, orku, vöðva, taugar, heilavirkni, bein og tennur.
Magnesíum er talið eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans þar sem það tekur þátt í yfir 600 mismunandi lífefnafræðilegum viðbrögðum líkamans.
Ummælin fyrir neðan tala sínu máli :-) Einnig má sjá má vísindagreinar neðar á síðunni.
Magnesíum Byltingin er einnig til í dufti til þess að blanda í bragðgóða drykki. Hún fæst hér.
Hunter & Gather
Beinaseyðis prótein úr gras...
6.990 kr
Grasfóðraða nautabeinaseyðið frá Hunter & Gather veitir öfluga næringu á örfáum sekúndum og gerir þér kleift að styðja heilsu þína hvar og hvenær sem er.
Hver skammtur inniheldur 15 g af próteini og 13 g af kollageni sem styður við heilbrigða meltingu, ljómandi húð og daglegan styrk.
Með aðeins 74 hitaeiningum í bolla er þetta bragðgott og seðjandi snarl sem heldur orkunni stöðugri yfir daginn. Hrærið einfaldlega saman við heitt vatn og njótið.
Kostir:
Styður við heilbrigða meltingu með náttúrulegu kollageni og gelatíni
Styður ónæmiskerfið með amínósýrum eins og glýsín og glútamín
Stuðlar að ljómandi húð, sterku hári og heilbrigðum nöglum
Hjálpar til við að viðhalda sterkum liðum og grönnum vöðvum með háu prótein- og kollageninnihaldi
Styður vellíðan og endurheimt eftir æfingar eða á annasömum, köldum dögum
Bætir máltíðir með ríkulegu, bragðmiklu og næringarríku seyði
Bare Biology
Hágæða ómega 3 fiskiolía úr...
6.690 kr
Mikilvægt er að ómega 3 olía fyrir börn innihaldi nægt magn af DHA sem er mikilvægt fyrir þróun heila og tauga og EPA.Hver skammtur (1ml) inniheldur 470mg af DHA og 90mg af EPA og er þetta hæsta magn DHA sem þú finnur í ómega 3 olíu. Olían er úr norskum, sjálfbærum og villtum smáfiski eins og sardínum, ansjósum og makríl sem er vottaður af bæði "Friends of the Sea" og "Marin Trust". Smáfiskur er neðst í fæðukeðjunni og inniheldur hann mun minna magn þungmálma að aðra mengunarvalda eins og plastefni. IFOS 5 stjörnu hreinleiki: Hvert framleiðslulota er sjálfstætt prófuð auk tveggja fyrri prófana innanhúss. Til þess að tryggja gagnsæi er hægt að nálgast niðurstöður prófananna hér: Fiskiolíurnar frá Bare Biology innihalda ekki joð og eru geislavirkniprófaðar. Eftirbragðið er ekki mikið og kemur flaskan með sprautu til að auðvelt sé að gefa börnunum fullkominn skammt. Action Heros kemur í náttúrulegu þríglýseríðformi sem auðveldar líkamanum að taka olíuna upp.
Exhale
Exhale kaffi |Darkish Roast...
4.990 kr
Exhale kaffið er "Speciality Grade", lífrænt, bragðgott, umhverfisvænt, mjög hollt og prófað á tilraunastofu til þess að tryggja að engin óæskileg efni og eiturefni séu til staðar og að næringarefni eins og pólýfenólar sé hámarkað og alltaf til staðar.
Þegar fyrirtækið Exhale var að þróa Exhale kaffið smökkuðu og prófuðu þau á tilraunastofu yfir 45 tegundir af kaffi frá öllum heiminum til að finna hollasta, bragðbesta og umhverfisvænasta kaffið.
Þau ristuðu kaffið á mjög fjölbreyttan máta til að finna út hvað gæfi hollustu útgáfuna af kaffi með sem mestu af næringarefnunum.
Exhale kaffið - eiginleikar og prófanir:
Exhale kaffið hefur eins og áður sagði verið prófað á tilraunastofu og fyrir áhugasama og fyrir gegnsæi eru allar skýrslurnar settar fram í linkunum hérna fyrir neðan.
1 Exhale kaffibolli inniheldur jafnmikið af andoxunarefnum og 1.8kg af bláberjum eða í 55 appelsínum. (þetta er sannreynt af tilraunastofu, sjá niðurstöður hér.
Kaffið er laust við sveppaeitur eins og Ohratoxin A og Aflatoxin (e.mycotoxins) frá myglu, ásamt því að vera laust við skordýraeitur. Það er einnig laust við myglu- og gersveppi
Kaffið er einnig laust við þungmálma eins og sjá má í þessari skýrslu frá tilraunastofu.
Kaffið með koffíni er frá bænum Belen á Inzá, Cuca svæðinu í Kólumbíu. Koffínlausa kaffið er frá Mexíkó. Kaffið er ristað í London
Kaffið er 100% Arabica.
Exhale kaffið er mjög hátt í pólýfenólum og er talið að það geti dregið úr kvíða eða hruni sem sumir lenda í eftir að drekka kaffi.
Einnig er talið að pólýfenólar geti aukið árangur í bæði þol- og sprett íþróttum. Rannsóknir hafa einnig sýnt að pólýfenólrík fæða sé náttúruleg leið til að styðja við heilbrigðan heila.
Exhale kaffið er sérstaklega hátt í klórógensýru (e.CGA) sem er einn mest rannsakaðisti pólýfenóllinn í kaffi og eru vísindagreinar um hollustu á kaffi helst byggðar á honum.
Exhale kaffið er hátt í B3 vítamínum.
Magn:
450g í pokanum
Athugið að hægt er að velja baunir eða malað í öllum tegundum.
Organic Darkish Roast:
Sama holla kaffið og House roast nema ristað aðeins dekkra fyrir meira súkkulaði bragð.
Bragð: hlynsíróp og kirsuber. Smá keimur af apríkósum og kanil.
Hentar best: Fullkomið fyrir espresso, og alla kaffidrykki með mjólk eins og Bulletproof til dæmis. Eða ef sterkara bragð hentar.
Vitality Pro
Trans-Resveratrol|Hylki og ...
frá 9.490 kr
Sýnt hefur verið fram á að resveratrol sé öflugt andoxunarefni í fjölmörgum rannsóknum. Það getur hjálpað til við að vernda líkama þinn gegn oxunarskemmdum sem geta gert þig viðkvæmari fyrir aldurstengdum sjúkdómum.
Trans-Resveratrol duft:
Engin viðbætt efni
100-200 daga skammtur
Duft á míkróformi fyrir aukið frásog
Náttúrulegt Trans-Resveratrol úr "Japanese Knotweed)
500mg skeið fylgir með
Prófað að þriðja aðila (rannsóknarlabbi) - niðurstöður birtar
Hentar fyrir vegan
Pakkning endurvinnanleg en ekki niðurbrjótanleg ennþá (eins og aðrar umbúðir frá þeim).
Best er að taka 1 eða 2 skeiðar á morgnana með máltíð sem er há í hollri fitu.
Það er mælt með að para Trans-Resveratrol saman með NAD+ "booster". Það er talið auka ávinning af báðum bætiefnum.
Trans-Resveratrol hylki:
500mg af Trans-Resveratrol í hverju hylki
Engin aukaefni, bara hylki úr grænmetis sellúlósa (HPMC)
90 hylki sem er 45 til 90 daga skammtur eftir því hvort 1 eða tvö hylki eru tekin á dag.
Prófað að þriðja aðila (rannsóknarlabbi) - niðurstöður birtar
Hentar fyrir vegan
100% lífrænt niðurbrjótanlegar umbúðir
Allar Vitality Pro vörur eru framleiddar og prófaðar af þriðja aðila samkvæmt GMP stöðlum og er ISO9001:2015 gæðavottað.
NoordCode
Performance Electrolytes | ...
7.490 kr
Þessi byltingarkennda elektrólýta blanda er fullkomlega sykurlaus, kaloríulaus og inniheldur nákvæma blöndu af fjórum mikilvægustu steinefnunum: natríum, kalíum, magnesíum og klóríð. Allt í vísindalega mótuðum hlutföllum sem spegla raunverulegt tap líkamans við átök, svo frásogið er hratt og áhrifin koma fljótt.
Helstu Kostir:
Enginn Sykur, Engar Hitaeiningar: Vökvun sem styður heilsuna án óþarfa fylliefna eða öfga
Fullkomin Rafvökvablanda: Öll fjögur lykilsteinefnin í réttum hlutföllum fyrir orku, vöðvastarfsemi og jafnvægi
Hröð Virkni: Finnur fyrir endurnærandi áhrifum á örfáum mínútum — hvort sem þú ert að æfa eða jafna þig eftir álag
Aðstoðar við Vöðvastarfsemi: Hjálpar til við að fyrirbyggja krampa og þreytu eftir æfingar eða langar dagferðir
Styður Einbeitingu: Viðheldur hugrænni skerpu og stuðlar að betri árangri undir álagi
Athugaðu að þú getur stjórnað seltunni. Veldu sterka útgáfu með minna vatni, eða bættu við meira vatni til að hafa bragðið mildara. Mælt er með líter af vatni fyrir kúfaða skeið. Finndu þitt fullkomna salt-/vatnshlutfall.
Performance Electrolytes er súr drykkur. Eins og allir algengir súrir drykkir (appelsínusafi, sítrónuvatn, gosdrykkir, kaffi, íþróttadrykkir) er mælt með að drekka skammt í einu sæti, frekar en að sopa yfir allan daginn. Stöðug snerting við súran mat eða drykki getur valdið því að tann glerungur eyðist. Tannlæknar mæla með að nota vatn til að endurheimta pH í munninum eftir að hafa klárað súran drykk. Einnig getur notkun rörs dregið úr snertingu tanna við sýru.
Haltu rakavörnarpokanum í umbúðunum og lokaðu þeim fljótt og alveg eftir notkun til að koma í veg fyrir kekkjun.
NoordCode
Vegan ómega Hár styrkur EPA...
9.750 kr
Háskammta EPA & DHA Omega-3 er vegan ómega-3 fæðubótarefni sem veitir samtals 2000 mg af omega-3 í hverjum skammti, þar af 1200 mg EPA og 800 mg DHA í náttúrulegu þríglýseríð (TG) formi. Það er unnið úr örþörungum (Schizochytrium sp.), upprunalegum náttúrulegum uppruna omega-3, framleitt með stýrðri gerjun til að tryggja hreina og sjálfbæra framleiðslu.
Formúlan er náttúrulega rík af EPA og er hönnuð til að veita hátt styrkleikaform án fiskafurða. Hún er vernduð gegn oxun með náttúrulegum tokoferólum og hefur lágt oxunargildi (TOTOX < 5). Smá magni af sítrónuolíu frá Sikiley er bætt við fyrir mildara og þægilegra bragð, án lyktar eða eftirbragðs.
Hver framleiðslulota er sjálfstætt prófuð fyrir þungmálma, díoxín og PCB-efni með áherslu á öryggi, gæði og stöðugleika.
Varan er 100% jurta- og veganvæn.
NoordCode
Pure Marine Collagen
7.790 kr
NoordCode Pure Marine Collagen er kollagen hydrolysate framleitt úr húð villts, MSC-vottaðs Atlantshafsþorsks (Gadus morhua). Kollagenið er unnið úr aukaafurð sjávarútvegsins og veitir kollagen af tegund I í auðleysanlegu formi sem hentar vel til daglegrar notkunar í mat og drykki.
Með mildu og hlutlausu bragði leysist þetta sjávarkollagen auðveldlega upp í bæði heitum og köldum drykkjum, sem gerir það hentugt í hristina, kaffi, bakstur og aðrar uppskriftir án þess að hafa áhrif á bragðið. Það inniheldur 95% prótein og er framleitt án aukaefna eða fylliefna.
Hver framleiðslulota er sjálfstætt prófuð fyrir hreinleika og þungmálma með áherslu á gæði, rekjanleika og stöðuga framleiðslustaðla.
NoordCode
Mag Six
5.690 kr
NoordCode Mag Six er magnesíum fæðubótarefni sem sameinar sex lífvirkar gerðir magnesíums með B6 vítamíni til að styðja við eðlilega orkuefnaskipti, vöðvastarfsemi og andlega frammistöðu. Hvert hylki inniheldur 100 mg af magnesíum (26% RI) í hreinni, vegan formúlu án sérblöndu (proprietary blend) og án gerviefna.
Þessi háþróaða blanda er hönnuð til að veita fjölbreyttar gerðir af magnesíum söltum, þar sem hvert form hefur sín sérkenni og frásog. Magnesium citrate er vel þekkt fyrir góða upptöku, magnesium malate tengist orkuefnaskiptum, magnesium taurate sameinar magnesíum við amínósýruna taurín, og magnesium bisglycinate er vel þolað kelatform. Magnesium glycerophosphate er mjög lífvirkt form, á meðan magnesium hydroxide er náttúrulegt magnesíum unnið úr sjó með snefilefnum.
B6 vítamín á P5P formi er bætt við til að styðja upptöku magnesíums og stuðla að eðlilegum orkuefnaskiptum. Saman styðja þessi næringarefni við orku, vöðva, taugakerfi, bein og rafvökvajafnvægi.
Allar framleiðslulotur eru NZVT vottaðar og prófaðar fyrir bannefnum, sem gerir vöruna hentuga fyrir keppnisíþróttafólk.
NoordCode
Ultimate EAA Formula
7.990 kr
Ultimate EAA Formula veitir 5 g af öllum níu nauðsynlegum amínósýrum (EAAs) í hverjum skammti í formúlu sem er hönnuð til að styðja við daglega próteinneyslu, ásamt jafnvægi í mataræði. Hún inniheldur heildstæðan amínósýruprófíl, þar á meðal 2 g af leucíni í hverjum skammti, með fínstilltu hlutfalli lýsíns og þreóníns.
Formúlan er fullkomlega gegnsæ án sérblandna (proprietary blends) og er hönnuð til notkunar þegar próteinneysla úr fæðu er breytileg, til dæmis á dögum með léttari máltíðum eða fyrir og á æfingu á fastandi maga. Prótein stuðlar að vexti og viðhaldi vöðvamassa, sem og viðhaldi eðlilegra beina.
Hver framleiðslulota er prófuð af óháðum aðila fyrir þungmálma, varnarefni og sveppaeiturefni og er framleidd í Evrópu til að tryggja stöðug gæði.
NoordCode
Ultimate Omega Formula
7.490 kr
Ultimate Omega Formula
Hreinni, fjölbreyttari og næsta kynslóð omega-3.
Unnið úr hreinni, óunninni Calanus-olíu. Þessi blanda býður upp á einstakt og fjölbreytt úrval fitusýra, þar á meðal EPA, DHA og sjaldgæfu omega-3 fitusýruna SDA, auk náttúrulega hás astaxanthín-innihalds sem veitir öflugan andoxunarstuðning.
Náttúrulegt vaxesterform olíunnar gerir hana mun stöðugri og ferskari en hefðbundna fiski- og krillolíu.
Af hverju hún er betri:
Fjölbreytt næringarprófíl: 40+ fitusýrur + 1,8 mg astaxanthín í hverri skammtaeiningu
Hrein & stöðug: náttúrulega ósnortin, ómenguð og varin af astaxanthíni
Sjálfbær: ábyrg veiði úr einni mestu og endurnýjanlegustu lífveru hafsins
Nálægt náttúrunni: lágmarksvinnsla varðveitir allar náttúrulegar eiginleika olíunnar
Með einstaka hreinleika, stöðugleika og sjálfbærni setur Ultimate Omega Formula ný viðmið fyrir ómega-3 fæðubótarefni.
NoordCode
Pure Whey | Lífrænt mysupró...
6.490 kr
Þetta prótein er unnið úr 100% grasfóðruðum kúm sem búa við lífrænar aðstæður, sem tryggir hreinleika og yfirburða næringargildi. Með 80% próteininnihaldi sérðu til þess að vöðvarnir fái öll helstu amínósýrur sem þeir þurfa til viðhalds, uppbyggingar og hraðrar endurheimtar. Formúlan er alfarið án aukaefna, viðbætts sykurs, hormóna eða óþarfa fylliefna.
Helstu Ávinningar:
Hröð endurheimt: Gæðaprótín og amínósýrur styðja við hraða viðgerð vöðva eftir álag.
Bættur vöðvavöxtur: Breiðvirkar amínósýrur stuðla að hámarksvexti og styrk vöðva.
Auðveld upptaka: Grasfóðrun gerir vöruna auðmeltanlegri og nýtist líkamanum betur en hefðbundin prótein.
Fullkominn hreinleiki: Engin gerviefni, engin aukaefni – aðeins náttúrulegt gæði sem þú getur treyst.
Hvort sem þú ert að hamra á líkamsræktarsalnum, jafna þig eftir æfingar eða byggja upp styrk til framtíðar, gæti Pure Whey hentað þér. Bættu því í drykki, boost eða uppskriftir – þetta fjölhæfa prótein fellur auðveldlega að heilbrigðum lífsstíl.
NoordCode
Pure Coffee Medium Roast
frá 3.990 kr
Pure Coffee Medium Roast frá Brasilíu er eins uppruna 100% Arabica kaffi framleitt úr Bourbon afbrigði baunum sem koma frá Norte Pioneiro svæðinu í Brasilíu.
Þetta einuppruna kaffi er miðlungsristað í samstarfi við verðlaunað evrópskt ristarhús í Slóvakíu, þar sem notaðar eru nákvæmlega stýrðar ristunar- og náttúrulegar vinnsluaðferðir til að viðhalda jafnvægi í bragði og stöðugum gæðum.
Það gefur mjúkan og kaffibolla með bragðtónum af hnetum, dökku súkkulaði og hlynsírópi, ásamt miðlungs fyllingu og mildri sýru.
Kaffið hentar sérstaklega vel fyrir espresso, Americano og aðra sterka kaffidrykki þar sem óskað er eftir ríkulegu bragði í jafnvægi.
Kaffið er náttúrulega unnið með stýrðri gerjun sem er innblásin af hefðbundnum aðferðum og stuðlar að mýkri sætleika og dýpt í bragði.
Hver lota er einnig rannsóknarprófuð fyrir sveppaeiturefnum (þ.m.t. aflatoxínum) með áherslu á gæðaeftirlit, rekjanleika og stöðugleika. Þetta er sérvöru kaffi með cupping einkunn 88,5.
NoordCode
Pure Collagen
5.490 kr
Pure Hydrolysed Collagen í stökum skömmtum er kollagen hydrolysate framleitt úr 100% grasfóðruðum evrópskum kúm sem alin eru við ábyrg skilyrði. Það er unnið með ensímferli til að tryggja góða leysni og auðvelda notkun og inniheldur kollagen af tegund I og III í þægilegum stökum skömmtum sem má blanda í bæði heita og kalda drykki.
Varan hefur hlutlaust bragð og inniheldur engin viðbætt sætuefni, bragðefni eða rotvarnarefni. Hún er hönnuð til einfaldrar daglegrar notkunar án þess að hafa áhrif á bragð matar eða drykkja. Hún er einnig laktósafrí, halal vottuð og rannsóknarprófuð fyrir hreinleika og gæðastaðla.
Kollagen er náttúrulegt byggingarprótein sem finnst víða í líkamanum, meðal annars í bandvef eins og húð, beinum, sinum og æðum. Formúlan inniheldur náttúrulegar amínósýrur eins og glýsín, prólín og hýdroxýprólín.
Roam
Grasfóðraðir nautakjöts pró...
990 kr
Grasfóðraðir nautabitar með sjávarsalti, pipar og porcini sveppadufti . Engin rotvarnarefni og framleidd með aðeins 6 náttúrulegum innihaldsefnum. Óviðjafnanlegt alvöru prótein hvar og hvenær sem er.
6 náttúruleg innihaldsefni
Engin gervi rotvarnarefni, sætuefni eða bragðefni
32g af próteini í 70g poka
257 kkal í pokanum.
Eftir opnun skal geyma í kæli og neyta innan 72 klukkustunda.
Innihaldsefni
Grasfóðrað nautakjöt, mysupróteinþykkni, "chikory root" trefjar, sjávarsalt, porcini sveppaduft, svartur pipar.
Mögulegir ofnæmisvaldar í feitletruðu.
Næringarupplýsingar
Orka: 257Kcal / 1078KJ
Fita (þar af mettuð): 12,5 g (3,8 g)
Kolvetni (þar af sykur): 3.5g (2.5g)
Prótein: 32.7g
Trefjar: 0.1g
Salt: 3.4g
Designs for Health
Carnitine Synergy™ | Stuðni...
10.550 kr
Carnitine Synergy™ frá Designs for Health sameinar L-Carnitine og Acetyl-L-Carnitine í einni formúlu til að styðja við eðlilega orkumyndun og fituefnaskipti.
Carnitine er náttúrulegt efni sem tekur þátt í orkuframleiðslu frumna og flutningi fitusýra inn í hvatbera þar sem þær nýtast sem orka. Þessi blanda hentar þeim sem vilja styðja við orku, úthald og heildarbruna sem hluta af heilbrigðum lífsstíl.
Formúlan er hönnuð til að styðja við:
• Daglega orku og frumuorku• Eðlileg fituefnaskipti og líkamsjafnvægi• Heilbrigða orkunýtingu í hvatberum• Andlega orku og einbeitingu
Designs for Health
DGL Synergy
5.490 kr
DGL Synergy™ er hraðverkandi, tyggjanlegt fæðubótarefni sem er hannað til að styðja við heilbrigða meltingu og eðlilega magasýru.
Formúlan inniheldur deglycyrrhizeraðan lakkrís (DGL) ásamt glysíni og kalki (sem kalsíum glýserófósfat) til að bæta meltingarheilsu og stuðla að vellíðan í meltingarfærum.
DGL Synergy™ hefur bragðgott lakkrísbragð, er án frúktósa, inniheldur engan sykur og er náttúrulega sætt með xylitóli, mannitóli og luo han guo plöntuútdrætti.
Deglycyrrhizeraður lakkrís fjarlægir glycyrrhizin, sem gerir hann öruggari og skilvirkari fyrir meltingarstuðning.
Lakkrís hefur verið vel rannsakaður fyrir getu sína til að róa og vernda slímhúð meltingarfæranna. Hann styður eðlilega bólgusvörun líkamans og stuðlar að heilbrigðuri slímhúð í hálsi, maga og þörmum. Þessi róandi áhrif stuðla að almennri heilsu meltingarfæranna og styðja við heilbrigðar slímframleiðslufrumur.
Glysín í DGL Synergy™ hjálpar til við framleiðslu galls sem stuðlar að meltingu fitu og er forveri glútathíóns, öflugs andoxunarefnis sem styður heilbrigði meltingarfæra og meltingarferli. Kalsíum glýserófósfat hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu sýrujafnvægi í meltingarfærum, sem eykur enn frekar vellíðan og meltingarheilsu.
DGL Synergy™ er mjúkur, bragðgóður og áhrifaríkur stuðningur við heilbrigða meltingu, róar tímabundna magasýru og styður náttúrulegar verndandi aðgerðir líkamans
Natroceutics
Curcumin Fortified
7.490 kr
Öflug blanda af BCM-95™ - Curcumin, AKBAMAX™ - Boswellia, auk engiferþykknis.
Helstu eiginleikar
Hröð áhrif
BCM-95™ stutt af yfir 75 birtum rannsóknum og fer fjölgandi.
Skilar yfir 700% meira Bioactive Curcumin inn í líkamann.
AKBAMAX™ Boswellia serrata þykkni, reynst 5 sinnum öflugra en venjuleg þykkni.
Nýtt hlutfall boswellic sýra, stutt með 7 birtum rannsóknum.
Engiferþykkni - 5% engiferólstyrkur
Curcumin Fortified sameinar þrjú virk efni sem hafa verið vísindalega rannsökuð.